04.12.1973
Sameinað þing: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1059 í B-deild Alþingistíðinda. (944)
77. mál, hækkun íbúðarlána úr Byggingarsjóði
Flm:
(Þorv. Garðar Kristjánsson) : Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja þáltill. þá, sem hér er til umr. Þar er kveðið svo á, að Alþingi ályktar að skora á félmrh. að hlutast til um, að húsnæðismálastjórn breyti hámarki íbúðarlána Byggingarsjóðs ríkisins úr 800 þús. kr. í 1200 þús. kr. til samræmis við breytingar á vísitölu byggingarkostnaðar.
Í l. um Húsnæðismálastofnun ríkisins, nr. 30 frá 1970, var fjárhæð lána úr Byggingarsjóði ríkisins ákveðin 600 þús. kr. Jafnframt var það nýmæli þá tekið upp í lög þessi, að húsnæðismálastjórn geti að fengnu samþykki félmrh. breytt lánsfjárhæð þessari á tveggja ára fresti til samræmis við breytingar á vísitölu byggingarkostnaðar.
Eftir að lög þessi voru sett, hefur orðið, svo sem kunnugt er, mikil hækkun byggingarkostnaðar. Í maí 1970 var vísitala byggingarkostnaðar 439 stig. Tveim árum síðar, eða í maí 1972, var þessi vísitala orðin 603 stig og hafði því hækkað um 37.4%. Enn hækkaði byggingarvísitalan 1. júlí 1972 í 683 stig og var þá orðin 55.6% hærri en í maí 1970. Svo var komið 1. nóv. 1972, að vísitala byggingarkostnaðar var orðin 689 stig, og var þar um að ræða 56.9% hækkun síðan lög um Húsnæðismálastofnun ríkisins voru sett 1. maí 1970.
Þrátt fyrir þessa miklu hækkun byggingarkostnaðar hafði upphæð íbúðarlána byggingarsjóðs ríkisins verið óbreytt. Augljóst var þá, að við svo búið gat ekki staðið, og þess vegna flutti ég á síðasta þingi þáltill. um hækkun íbúðarlána úr 600 þús. í 900 þús. kr. Till. þessi hlaut ekki afgreiðslu, en hún kom samt hreyfingu á málið. Þáv. félmrh. rumskaði af værum blundi, og ríkisstj. lagði fram frv. um hækkun lánanna, sem samþ. var í apríl s. l. á þá leið, að lánsfjárhæðin var hækkuð í 800 þús. kr. í stað 600 þús. kr., sem áður gilti.
En hér var bæði of lítið og of seint að gert. Í apríl s. l. var byggingarvísitalan 708 stig og hafði því hækkað um 61.3% síðan í maí 1970, en lánsfjárupphæðin hækkaði á sama tíma aðeins um 33.3%. En hér er ekki öll sagan sögð. Síðan þetta gerðist hefur komið til mikil hækkun á byggingarkostnaði, svo sem kunnugt er. Nú er vísitala byggingarkostnaðar orðin 913 stig, eða hefur hækkað frá því í maí 1970 um 108%, en lánsfjárupphæðin aðeins um 33.3%.
Af þessu má marka, að það er meira en tímabært að hækka fjárhæð íbúðarlána Byggingarsjóðs ríkisins, svo að þau lækki ekki hlutfallslega miðað við byggingarkostnað frá því sem var, þegar gildandi lög um Húsnæðismálastofnun ríkisins voru sett. Það er augljóst, að hækkun sú, sem nú þarf að ákveða á íbúðarlánum, þarf að nema a. m. k. allt að 100% frá því sem var 1970 eða 50% frá því sem nú gildir, og þess vegna er lagt til í þáltill. þessari, að lánsfjárupphæðin megi nema allt að 1200 þús. kr.
Það væri hægt að halda hér langa ræðu um mikilvægi þessa máls, því að það hljóta allir að sjá, að það er höfuðatriði fyrir húsbyggjendur í landinu, að þeir njóti íbúðarlána, sem séu þeim jafngagnleg og var, þegar núverandi húsnæðislöggjöf var sett, þ. e. a. s. að lánsupphæðin sé eins mikill hluti af byggingarkostnaði og var í maí 1970. Ég hygg, að við getum allir, hv. þm., verið sammála um þetta. Það hlýtur að vera æskilegt, að íbúðarlánin fari ekki hlutfallslega minnkandi frá því, sem var, þegar löggjöfin um Húsnæðismálastofnun ríkisins var sett 1970.
Mér virðist líka, að þessi skilningur hafi komið fram á sinn hátt hjá fyrrv., félmrh. á síðasta þingi, eins og ég gat um áðan. Þegar ég hafði flutt tillögu mína þá um hliðstætt efni, komst hreyfing á málið. En því miður var ekki gengið eins langt og nauðsynlegt var, ef menn vildu ekki una því, að um afturför yrði að ræða í þessu efni.
Ég segi: ef menn vildu ekki una því, að um afturför væri að ræða í þessu efni. Það er kannske ekki sett hátt markið að segja það. Auðvitað þurfum við að setja markið hærra. Við þurfum að setja okkur það mark, að við hækkum íbúðarlánin hlutfallslega miðað við byggingarkostnað, því að við erum hvergi nærri nógu langt komnir í þessu efni. Við stöndum öðrum þjóðum, t. d. nágrannaþjóðum okkar, langt að baki hvað snertir þessa þjónustu. Hér þarf ýmislegt að koma til. Það þarf að lengja lánstíma íbúðarlánanna, það þarf að bæta vaxtakjör íbúðarlánanna, og það þarf að hækka íbúðarlánin.
Hér er fjallað einungis um síðasta atriðið, að hækka íbúðarlánin. Okkur hefur miðað nokkuð í rétta átt í þessum efnum.
Það er fróðlegt að athuga, hvernig ástandið var, þegar fyrrv. ríkisstj., Viðreisnarstjórnin, tók við völdum árið 1959. Þá var byggingarvísitalan 132 stig. En þegar Viðreisnarstjórnin lét af völdum 1971, var byggingarvísitalan orðin 535 stig, eða hafði hækkað um 305.3%. En á sama tíma hafði orðið breyting á lánsfjárhæðinni. Þegar Viðreisnarstjórnin tók við völdum, var hámarkslán Húsnæðismálastofnunar ríkisins 100 þús. kr. Það var 1959. En þegar Viðreisnarstjórnin lét af völdum árið 1971, voru þessi lán orðin að hámarki 600 þús. kr. Þau höfðu sexfaldast eða hækkað um 500%, á sama tíma og vísitala byggingarkostnaðar hafði hækkað aðeins um 305.3%. Ég rek hér þessar staðreyndir til þess að undirstrika, að það er rétt, sem ég sagði hér áður, að okkur hefur miðað nokkuð áfram í þessu efni. Það gerðist einmitt á valdatíma Viðreisnarstjórnarinnar. Hér var um verulega framför að ræða.
Ef við gerðum sömu kröfur til núv. ríkisstj. og sjálfsagt þótti að gera til Viðreisnarstj., þá ættum við að gera þá kröfu, að það yrði framhald á þessari þróun. En það er svo að sjá, að enginn geri slíkar kröfur til núv. ríkisstj. Það reiknar enginn með, að hún sé þess umkomin að bæta það ástand, sem var, þegar hún tók við völdum. Hins vegar er það svo með mig og ýmsa aðra þm., að við viljum gjarnan mega bera það traust til núv. ríkisstj. að ætlast til þess, að hún haldi í horfinu. En svo er að sjá sem stuðningsmenn núv. hæstv. ríkisstj. beri ekki svo mikið traust til hennar. Það er ekki að finna hljómgrunn hjá þeim fyrir stuðningi við till., sem byggir á því, að núv. ríkisstj. sé ekki lakari í þessum efnum en fyrrv. ríkisstj. Það er svo að sjá sem þessir hv. þm., sem styðja þó ríkisstj., treysti henni ekki til þess að halda í horfinu eins og var í þessum efnum, þegar hún tók við völdum, hvað þá að bæta um.
Þetta hefur verið svo fram að þessu. Ég vildi nú leyfa mér að vona, að stuðningsmenn hæstv. ríkisstj. hefðu nú eitthvað breyst í þessu efni og væru nú fúsir til þess að ljá svo sjálfsögðu máli lið sem farið er fram á með þáltill. þeirri, sem hér er til umr. Í þeirri von, að svo verði, legg ég til, herra forseti, að till. þessari verði vísað til hv. allshn.