05.12.1973
Efri deild: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1076 í B-deild Alþingistíðinda. (955)
107. mál, lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar 1973
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson) :
Herra forseti. Á þskj. 179 er frv. til l. um lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar og til sérstakrar lántökuheimildar vegna hafnarframkvæmda. Meginhluti þessa frv. er staðfesting á brbl., sem út voru gefin á s. l. sumri vegna lántöku, sem þá var tekin eða fram fór á vegum fransks banka. Ástæðan til þess, að þau brbl. voru gefin út, var sú, að fyrir þeirri lántöku var heimild, en hún var í mörgu lagi, og það þótti rétt, þegar kom að því að fara að bjóða lánið út, að sameina þetta í eina löggjöf. Þess vegna voru brbl. sett. Áður en þau voru gefin út, hafði ég samband við formenn stjórnarandstöðuflokkanna um málið og skýrði þeim frá ástæðum fyrir því, að brbl. væru sett, eða þeirri nauðsyn, er bæri til að setja þau.
Ráðstöfun á þessu fé, sem er 1300 millj. ísi. kr., er í stórum dráttum þannig, að 800 millj. ganga til Framkvæmdasjóðs Íslands til endurlána þar, til framkvæmda samkv. framkvæmdaáætlun 273 millj. og til togarakaupa 233 millj. kr.
Auk þessa, sem fram kemur í þessum brbl., var við 2. umr. í hv. Nd. bætt við frv. heimild til töku á 7 millj. dollara láni hjá Alþjóðabankanum vegna hafnarframkvæmda í Grindavík, Þorlákshöfn og Höfn í Hornafirði.
Á s. l. sumri, hinn 4. júní s. l., skipaði þáv. samgrh. n. til að athuga hafnamálin á Suðurlandi, og var það í samræmi við þáltill., sem samþ., var hér á hv. Alþ. hinn 13. apríl s. l. Í n. voru skipaðir eftirtaldir menn: Jón Sigurðsson hagrannsóknastjóri, sem var formaður n., Aðalsteinn Júlíusson vita- og hafnamálastjóri, sem var tilnefndur af Hafnamálastofnun ríkisins, Karl Guðmundsson útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, sem var tilnefndur af Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja, Högni Magnússon gjaldkeri Sjómannafélagsins Jötuns í Vestmannaeyjum, sem var tilnefndur af sjómanna- og verkalýðsfélögum í Vestmannaeyjum, séra Ingimar Ingimarsson prestur í Vík, tilnefndur af Sambandi sveitarfélaga á Suðurlandi, Jón Bergsson verkfræðingur í Hafnarfirði, sem var tilnefndur af Skipulagsstjórn ríkisins, og Magnús H. Magnússon bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sem var tilnefndur af bæjarstjórn Vestmannaeyjakaupstaðar.
Það varð niðurstaða þessarar n., eftir að hún hafði athugað málið og það lá fyrir n., að Alþjóðabankinn hefði boðist til þess að lána Íslendingum verulega fjárhæð til að bæta úr hafnaraðstöðu á suðurströndinni í sambandi við það áfall, sem Vestmannaeyjar urðu fyrir í byrjun þessa árs, að mæla með lántökunni. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að þetta tilboð Alþjóðabankans var algerlega bundið við Vestmannaeyjaáfallið, og var því ekki hægt að fá lán til annarra hafna en þeirra, sem að athuguðu máli væri talið, að bættu úr hafnaraðstöðu fyrir Vestmanneyinga. Í stuttu máli sagt var suðurströndin athuguð, og var m. a. skoðuð Dyrhólaey, en talið var, að það mundi taka svo langan tíma að taka ákvarðanir um framkvæmdir þar og þær mundu komast það seint í verk, að Vestmannaeyjahöfn mundi fyrr, ef að líkum léti, verða komin til fullra nota heldur en þessi nýja höfn. Auk Dyrhólaeyjar voru svo athugaðir möguleikar á Stokkseyri, Eyrarbakka, Þorlákshöfn og Grindavík. Var það álit n., að af þessum fjórum stöðum væri Stokkseyri talin síst til hafnabóta fallin og aðstæður til hafnargerðar slíkar, að útilokað mætti telja, að hún kæmi til greina. Hugsanleg stækkun og endurbætur Eyrarbakkahafnar til þess að ná þar aðstöðu fyrir nokkra tugi báta er að öllu leyti að dómi n. í gildi byggingar nýrrar hafnar og tæki undirbúningur og framkvæmdir, ef fýsilegar teldust, allt að 5–6 ár. Þá eru í raun og veru aðeins tvær hafnir eftir, Þorlákshöfn og Grindavík.
Innsiglingin í Grindavíkurhöfn er þröng og viðsjárverð, sérstaklega í sunnan- og suðvestanveðrum. Þegar inn er komið, er höfnin kyrr, en viðlegurými skortir. Ekkert er því til fyrirstöðu að dómi n., að viðlegurými í höfninni yrði strax á þessu ári aukið þannig, að 20–30 fleiri bátar gætu legið þar heldur en áður hefur verið. Áður en n. var farin að starfa, var farið að vinna að þessum framkvæmdum, og hafði Viðlagasjóður lánað fé til þess. Grindavíkurhöfn býður þannig upp á möguleika til endurbóta, sem kæmu strax að gagni. Hins vegar er það álit Vestmanneyinga, að Grindavík liggi mun verr við fiskimiðum þeirra en Þorlákshöfn, og kom það t. d. fram á s. l. vetri í því, að innan við 10 Eyjabátar höfðu fasta hafnaraðstöðu í Grindavík, en um 40–50 í Þorlákshöfn þrátt fyrir mikil þrengsli.
Möguleikar til skjótra hafnarbóta í Þorlákshöfn eru lakari en í Grindavík, en þó er talið, að þar megi á 18 mánuðum skapa um 30 bátum til viðbótar þolanlega aðstöðu með því að bæta hafnaraðstöðuna í heild, þótt erfitt verði að byggja þar upp á svo skömmum tíma örugga allra veðra höfn. Fulltrúar Vestmannaeyja í n. leggja á það mikla áherslu, að hafnaraðstaðan í Þorlákshöfn verði bætt sem fyrst með það í huga, að þaðan sé heppilegast að sækja á hefðbundin mið Eyjabáta, meðan ekki er hægt að hafa fulla aðstöðu í Eyjum. Þá benda þeir á, að í framtíðinni sé Þorlákshöfn heppileg höfn fyrir ferju milli Eyja og lands.
Í nál. segir, með leyfi hæstv. forseta, orðrétt: „Nm. eru sammála um, ef tæknilegar aðstæður og kostnaður leyfa, kæmu skjótar hafnarbætur í Þorlákshöfn að beinu gagni fyrir Eyjabáta, en einnig, að hafnarbætur í Grindavík, sem kæmu fljótt í gegnið, gætu beint og óbeint verið þáttur í lausn vandans, einkum með því að létta ásókn á Þorlákshöfn.“
Það varð því niðurstaða allra nm. að mæla með því, að farið yrði í framkvæmdir á þessum tveimur höfnum, og auk þess gerði n. till. um það, að farið yrði í framkvæmdir í Höfn í Hornafirði í smáum stíl.
Þegar þessi niðurstaða var fengin og fyrir lá, að möguleikar voru á að fá þetta hafnalán hjá Alþjóðabankanum, og samkv. þeim fregnum, sem þeir höfðu, sem best höfðu athugað málin, var telið heppilegt að bíða ekki með afgreiðslu á því, enda var þá farið að draga úr gosinu í Vestmannaeyjum, og menn ályktuðu sem svo, að Alþjóðabankinn teldi síðar, að ástæðulaust væri að bjarga málinu við á þann veg, sem hér væri lagt til. Þá tók ríkisstj. ákvörðun um það, að þetta lán skyldi tekið til þess að bæta úr fyrir þeim höfnum, sem þarna er ætlast til. Samningar hafa verið gerðir við Alþjóðabankann um lánið, og bíða þeir staðfestingar, þar sem undir þá var skrifað með fyrirvara. Því miður, og má þar stjórnvöldum um kenna, hefur dregist lengur en skyldi að leggja þetta mál fyrir hv. Alþ., og má kannske um það deila, þó að við sjáum ekki mun á því, hvort þetta hefði átt að vera sjálfstætt frv. eða tengjast hinu lántökufrv. Það var að áliti þeirra, sem um það fjölluðu, réttara, að svo yrði gert. En það þýðir það, að ég verð að leyfa mér að fara fram á það við hv. d., að hún hraði þessu máli, þar sem sá tími færist óðfluga nær, að frá því þurfi að ganga til fullnustu. Enda þótt nokkrar umr. yrðu um þetta mál í hv. Nd., var þó d. í heild að segja mátti samhljóða um að veita málinu brautargengi, og ég vona, að það verði eins í þessari hv. d., að brautargengi verði veitt.
Ég leyfi mér svo, herra forseti, að leggja til. að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.