05.12.1973
Efri deild: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1079 í B-deild Alþingistíðinda. (956)
107. mál, lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar 1973
Magnús Jónsson:
Herra forseti: Hæstv. fjmrh. lét í ljós þá von, að þessi hv. d. veitti brautargengi því frv., sem hér er um að ræða, og ég hygg, að óhætt muni fyrir hann að treysta því, að svo verði, því að ég hygg, að þessi d. eigi ekki minna langlundargeð en hv. Nd. Það má hins vegar segja, að hæstv. ráðh. hafi tekist að ganga eins langt í því efni að treysta á langlundargeð manna og nokkur kostur var að ganga, því að sannast sagna voru öll vinnubrögð í sambandi við þetta mál af hálfu rn. með þeim bætti, að það gat naumast hvatt til þess, að um það gæti orðið samstaða.
Hæstv. ráðh. sagði, að frv., sem upphaflega var fram lagt og var staðfesting á brbl. um lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar 1973, hefði verið nauðsynlegt vegna þess, að enda þótt allar þessar heimildir hefðu verið í l., þá hefði verið vegna lántökuaðila erlendis, þar sem lánið hefði verið tekið á einum stað, nauðsynlegt að hafa þessar heimildir allar í einum lögum. Ég þekki það mætavel, að þessi skoðun hæstv. ráðh. er rétt, þannig að við því er út af fyrir sig ekkert að segja. En það er hins vegar af sömu rökum mikil ástæða til þess að telja það vægast sagt hæpna ráðstöfun hjá hæstv. ráðh. að fura að blanda lántökuheimild vegna Vestmannaeyja, — það á víst að heita vegna Vestmannaeyja eða er til komið af þeirri ástæðu, þ. e. a. s. lántökuheimild hjá Alþjóðabankanum vegna hafnarframkvæmda á Suðurlandi, — inn í þessi lög, því að það brýtur auðvitað algerlega í bága við grundvallarrök þau, sem ráðh. réttilega tilgreindi fyrir brbl., að lántökuaðili væri einn. Ég veit, að þegar það þarf að þýða þessi lög og þessar heimildir, þá væri æskilegt að hafa heimildina á einum stað. Með nákvæmlega sömu rökum hefði að sjálfsögðu átt að leggja fram sérstakt frv. Og vegna þess að ég veit, að hæstv. ráðh. er því sammála, að það er ekki þénugt að fara að senda Alþjóðabankanum þýðingar á frv., — þeir óska eftir að fá það, þykist ég vita, eins og áður hefur verið, — þar sem um er að ræða, að heimildin til lántöku hjá bankanum er aðeins ein gr. í frv., sem felur í sér aðrar lántökuheimildir. Hvað sem vinnubrögðum að öðru leyti líður, sem ég skal láta liggja á milli hluta, úr því sem komið er, eru þetta nánast, a. m. k. frá mínum bæjardyrum séð, ákaflega kyndug vinnubrögð og brjóta mjög í bága við þau rök, sem eru fyrir því að sameina hinar lántökuheimildirnar. Þetta hefði því átt að vera í sérstöku frv., sem ég hygg, að hefði ósköp auðveldlega mátt gera, enda var þessi lántaka ákveðin með það löngum fyrirvara, að það var mjög auðvelt að koma því við að hafa þetta í einu frv.
Það má segja og hæstv. ráðh. getur kannske sagt, að ég sé hér að deila um formsatriði. En þetta er þó formsatriði, sem er það mikils virði, að sams konar formsatriði var forsenda þess, að það þótti bera brýna nauðsyn til að setja brbl. með heimild stjórnarskrár milli þinga til að sameina hinar lántökuheimildirnar, svo að þær væru í einum lögum. Þess vegna held ég, að þetta hafi ekki verið hugsað niður í kjölinn, þegar þessi ráðstöfun var gerð. En nóg um það. Ég býst ekki við því, að þessi hv. d. fari að setja fótinn fyrir frv. af þessari formsástæðu. Þetta er ábending til hæstv. ráðh., sem ég er dálítið forviða á, að hann skuli ekki hafa haft í huga, með hliðsjón af hinu fyrra frv.
Varðandi þessa lántöku hjá Alþjóðabankanum, þá er það komið sem komið er. Þetta var hugsað sem aðstoð við Vestmanneyinga, og Alþjóðabankinn nánast, eins og hæstv. ráðh. upplýsti, hafði frumkvæði um, að þetta yrði veitt sem aðstoð til þess að skapa Vestmannaeyjabátum viðleguaðstöðu og upplagningaraðstöðu á afla sínum í þeim höfnum, sem næst lægju heimabyggðinni í Vestmannaeyjum. Síðan þetta gerðist hefur þessu máli verið á allt annan veg háttað og öðruvísi farið, vegna þess að Vestmannaeyjar njóta þess náttúrulega að sáralitlu leyti. Við skulum vona, að a. m. k. meginhluti Vestmannaeyjabáta geti verið heima á vertíð í vetur. En það er komið sem komið er, og skilyrði bankans voru þau að þessar hafnir fengju umrædd lán, og því skal ég ekki fara að ræða um það, sem liðið er í því efni, og ráðh. er á engan hátt um að saka, nema síður sé, og auðvitað sjálfsagt að þiggja þetta boð bankans, því að það kemur vitanlega að gagni fyrir þessar hafnir.
En það eru tvö atriði, sem ég vildi skjóta hér fram í sambandi við — ekki Vestmannaeyjamálið, það er alveg sérstaks eðlis, heldur við hið upphaflega frv. og þær lántökur, sem þar er um að ræða. Það er sú stefna, sem virðist raunverulega í enn ríkara mæli vera ráðandi heldur en var þó í tíð fyrrv. ríkisstj., að taka erlend lán, og var þó talið, að sú ríkisstj. hefði gengið nokkuð langt í því efni, og getur svo vel verið. Ég man, að hæstv. núv. fjmrh. og fleiri hans flokksbræður átöldu það mjög, hvað tekið hefði verið af erlendum lánum í þann tíma. Með hliðsjón af þeirri gagnrýni hlýtur manni að koma til hugar, hvernig á því geti staðið, að jafnmikið sé tekið af erlendum lánum og raun hefur borið vitni í tíð núv. hæstv. ríkisstj., ekki síst vegna þess, að í hennar tíð hefur tekjuöflun ríkisins farið fram úr öllu því, sem áður hefur þekkst.
Ég ætla þér ekki að fara að ræða fjárlög, en kemst þó ekki hjá að benda á, að fjáröflun ríkissjóðs hefur verið með þeim eindæmum mikil og fer sívaxandi, að við þekkjum þess engin dæmi áður, að slík stökk hafi verið tekin, þannig að til ráðstöfunar hafa verið fyrir hæstv. fjmrh. svo geysilegar fjárhæðir, að því þarf ekki að lýsa hér fyrir hv. þd. Þess vegna hefði mátt ætla, ekki síst vegna þess, að þessari þróun hefur fylgt óskapleg þensla í þjóðfélaginu, sem allir horfa með kvíða á í dag, hversu ofboðsleg er, og fjmrh. sagði að vísu í sjónvarpi fyrir nokkrum dögum, að ríkisstj. væri alltaf að basla við þennan vanda, en einn þáttur í því basli hlýtur að vera sá að halda þenslunni niðri með öllum tiltækum ráðum. Einn þáttur í því er auðvitað sá að reyna að halda innan hæfilegra marka bæði ríkisframkvæmdum, sem er mál út af fyrir sig, og einnig þá um leið að reyna að lifa sem mest á þeim tekjum, sem ríkissjóði berast upp í hendur, en afla ekki einnig í stórum stíl erlends lánsfjár til framkvæmda. En því miður hefur svo farið, að tekist hefur að koma í lóg öllu þessu fé. Mikið hefur verið talað um það, sem ekki er að undra, að nauðsynlegt væri að sporna gegn hinni geysilegu verðbólgu, sem blasir við allra augum og kannske enginn hefur lýst betur en einn af stuðningsflokkum ríkisstj., Frjálslyndi flokkurinn, hér á þingi og í blaði sínu, en vissulega allir aðrir taka undir. Þá hefði það auðvitað verið einn þátturinn í þeirri viðleitni að sporna gegn þeirri geigvænlegu þróun, sem hver einasti þjóðfélagsborgari horfir á með ugg og kvíða og sannast sagna forundrun, að draga úr þenslu í ríkisbúskapnum. Sú þensla hefur, eins og ég áðan sagði, verið ofboðslegri en nokkru sinni áður, þannig að ríkissjóður var 1971 rekinn með nokkrum halla og 1972 rétt aðeins sléttur eða um 120 millj. kr. afgangur af 22 eða 23 milljörðum, sem hæstv. fjmrh. þá áskotnaðist eða ríkissjóði. A. m. k. blæs ekki byrlega með það, hvernig verði fyrir árið 1974, 1973 vitum við ekki enn um. Það getur verið, að vegna þeirrar geysilegu tekjuöflunar, sem ríkissjóður nú nýtur, raunar langt umfram það, sem gert var ráð fyrir, að fjárl. eða ríkisreikningurinn verði núna hallalaus. Ég veit það ekki. Hagrannsóknadeildin spáði nokkrum halla í skýrslu sinni frá í júlí, en hún er orðin úrelt, tekjuöflunin að sjálfsögðu meiri nú.
Ekki verður hjá því komist, þegar rætt er um lántökur, að benda á það, að öllu þessu fé hefur verið komið í lóg, án þess að hafi verið auðið að fullnægja fjáröflunarþörf hinna opinberu sjóða til nota á innlendum vettvangi, því að hér er um að ræða, að ýmislegt af þessari fjáröflun er bein fjáröflun til Framkvæmdasjóða hér innanlands, sem að öðru jöfnu hefði verið æskilegt, að hefði verið hægt að fjármagna með innlendu fé og þannig bæði draga úr spennu og minnka þörfina á erlendum lántökum á þessum geysilegu þenslutímum.
Þetta, sem sagt, hefur ekki átt sér stað. Það hefur ekkert fé verið til ráðstöfunar til að leggja til hinna opinberu sjóða eða til að leysa þennan fjármálavanda, þannig að lánsfjáröflun til framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar á þessum geysilegu þensluárum hefur verið meiri en var áður fyrr, meðan hagur ríkissjóðs var þó þrengri. Sannast sagna, ef átt hefði verið með æskilegum hætti að vera auðið að halda á fjármálunum, þá hefði ríkissjóður þurft að hafa mikinn afgang á 2–3 síðustu árum. Það var allverulegur greiðsluafgangur hjá ríkissjóði 1970, og hann hefði þurft að halda áfram að vera í vaxandi mæli á síðustu árum, þannig að raunverulega hefði verið hægt að leggja til hliðar, — ég vil segja nokkra milljarða, því að varla getum við búist við, að þessi geysilega þensla haldi endalaust áfram. Þetta hefur ekki verið gert, og því þarf enn að afla þessa fjár, sem hér er um að ræða og farið er fram á, og það enda þótt þenslan hafi orðið svo geysileg, að við stöndum nú andspænis því, sem er met, að vísitala vöru og þjónustu, sem miðað er við oftast nær, þegar talað er um vísitölu, hefur hækkað um 30.2% á árinu, frá 1. nóv. 1972 til 1. nóv. 1973, meðan hækkun vísitölunnar í nálægum löndum hefur verið um það bil þriðjungur af þessari tölu í þeim löndum, sem bæst hafa verið, t. d. innan OECD. Og það eru, að því er mér skilst, aðeins tvö dæmi þess áður, að hækkun vísitölu hafi verið meiri. Það var 1941–1942 og 1949–1950, en það ár var ár mikilla gengisbreytinga, og enn fremur kjötstyrkurinn gamli, sem menn muna eftir vafalaust, þá felldur niður, og það kom fram í hækkaðri vísitölu, þannig að hér má segja, að sé um einstakt fyrirbrigði að ræða í verðlagssögu okkar Íslendinga, árið frá 1. nóv. 1972 til 1. nóv. 1973. Þess vegna hefði verið mikil nauðsyn að gera ráðstafanir í þessu efni.
Nú skal ég fúslega játa það, til þess að rétt sé rétt og það sé viðurkennt, sem eru staðreyndir, að þetta er einu sinni komið á þennan veg og fjmrh. hafði ekki yfir að ráða neinu fé til að mæta þeim vanda, sem þetta frv. fjallar um, vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunarinnar, þar sem fjárlög gerðu ekki ráð fyrir slíku, og ég er þar af leiðandi ekki að deila á hann út af fyrir sig vegna öflunar þessara lána, heldur er ég hér að lýsa því, hversu æskilegt og raunar þjóðarnauðsyn hefði verið, að það hefði verið hægt að fjármagna þessar framkvæmdir með innlendu lánsfé og ríkissjóður hefði haft svigrúm til þess af þessum geysilegu tekjum sínum að leysa þetta fjármögnunarvandamál og raunar einnig hafa nokkurn afgang.
Ég vék áðan að því, varðandi hinar erlendu lántökur, að þær hefðu verið gagnrýndar í sinni tíð, og það kann vel að vera rétt. Auðvitað verður að gæta hófs í þeim. En ég vil rétt aðeins til upplýsingar geta þess, að erlendar lántökur munu hafa hækkað í tíð núv. ríkisstj., eða frá ágústmánuði 1971 og til ársloka 1973, úr 13 milljörðum í 20.5 milljarða, eða um rúma 7.5 milljarða. Erlendar skuldir eru sem sagt orðnar 20.5 milljarðar eða gert ráð fyrir, að þær verði það í lok þessa árs. Það hefur því vissulega ekki verið slegið slöku við hinar erlendu lántökur þrátt fyrir hina geysilegu tekjuöflun innanlands og þá miklu möguleika, sem á öllum sviðum hafa verið til þess að afla hér fjár, en vissulega hefur komið af því, að ekki hefur verið lagt til hliðar, sem ber að harma, heldur hefur öllu verið eytt og ekkert fé er nú til þess að mæta vandamálum, sem fram undan kunna að vera, og til þess að jafna þann halla 2. d., sem virðist ætla að verða á fjárl. hæstv. ríkisstj. fyrir árið 1974, ef allt fer sem horfir, því að þar mun þegar vanta, — það er að vísu ekki komið álit hv. fjvn. enn, en mér þykir ekki ósennilegt, að þegar það kemur til, mun vanta um tvo milljarða til þess að ná saman endum í fjárlagafrv. Þykir mér þó sýnilegt, að þar séu ekki öll kurl til grafar komin og að einhverjar ráðstafanir þurfi að gera með einhverju móti, sem annaðhvort hljóti að leiða af sér minnkandi tekjur fyrir ríkissjóð eða vaxandi fjárþörf til aðstoðar við atvinnuvegina, ekki hvað síst iðnaðinn, sem nú er meira og minna á heljarþröm, a. m. k. útflutningsiðnaðurinn, og ýmis önnur viðfangsefni hljóta að blasa við hæstv. ríkisstj., ef vísitalan heldur áfram að hækka með þeim ofsahraða sem hún hefur hækkað nú á þessu síðasta vísitöluári, ef ég má kalla það svo.
Herra forseti. Ég taldi rétt að láta þessar aths. koma þér fram. Það er ekki til að andmæla því frv., sem hér er til meðferðar, — ég hygg, að hæstv. ráðh. þurfi ekki að óttast það, að d. fari að setja fót fyrir það, að hann geti fengið það afgr. með eðlilegum hraða, — heldur voru þetta annars vegar almennar aths., sem ég vona, að hann út af fyrir sig geti fallist á, varðandi formsatriði frv., hins vegar ábendingar, sem ég hygg einnig, að hann hljóti efnislega að geta tekið undir, hversu ískyggileg þróun það er, að það skuli ekki hafa verið auðið þrátt fyrir meira en tvöföldun fjárl. og reyndar næstum þreföldun sennilega, þegar öll kurl koma til grafar varðandi fjárlög 1974, að ná því marki að fjármagna innlendar framkvæmdir að mestu leyti með innlendu fé og einnig að leggja til hliðar fé til þess að mæta erfiðleikaárum á þessum mestu þenslu- og fjáröflunarárum, sem yfir landið og yfir ríkissjóð hafa gengið, heldur hafi þurft að fara í enn stærri og hraðvirkari lántökur erlendis en áður var, og þótti þó sumum þá nóg um.