05.12.1973
Efri deild: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1084 í B-deild Alþingistíðinda. (958)
107. mál, lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar 1973
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég hef ekki ástæðu til þess að vera að taka upp deilur við hæstv. fjmrh., og það var ekki heldur ætlun mín með þeim orðum, sem ég sagði hér áðan, heldur að benda á staðreyndir, sem ég reikna með, að hann efnislega sé mér sammála um, að séu æskileg markmið, miðað við það ástand, sem er í þjóðfélaginu nú og hefur verið síðustu þenslu ár. Vissulega er það rétt hjá honum, að það hafa áður verið þensluár og erfiðlega gengið að fást við þennan vanda, en þetta taldi ég rétt, að kæmi fram, þannig að menn þyrftu að íhuga, að ef á að vera auðið að halda í hemilinn á verðbólgunni, þá eru ríkisfjármálin einn veigamikill þáttur í því. Það erum við báðir sammála um, við hæstv. ráðh. Þess vegna ber auðvitað brýna nauðsyn til þess, eins og ég var að reyna að lýsa í ræðu minni áðan, að gætt sé hófs í framkvæmdum ríkisins, gætt sé hófs varðandi heildarútgjöld og reynt að safna í sjóð á slíkum þensluárum, sem getur orðið nauðsynlegt að gripu til, ef koma þrengingarár, eins og t. d. urðu 1966 og 1967 og reyndar 1968, eða við skulum segja aðallega 1967 og 1968, á svipaðan hátt og komið var upp Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins til að taka af slíkar sveiflur. Þessar sveiflur geta komið í þjóðarbúskapnum og lent harkalega á ríkissjóði, því að þá þarf hann einmitt að vera þess umkominn að geta dælt fé út í atvinnulífið til þess að halda uppi fullri atvinnu, sem að sjálfsögðu er höfuðmarkmiðið.
Því miður hefur hvorki tekist að safna fé né heldur að nota fjármagnið til þess að leysa úr vanda fjárfestingarsjóða og annarra aðila á innlendum vettvangi, sem hefði þó raunar átt að vera hægt að gera, án þess að það þyrfti að lenda í karpi við Alþ. um það.
Ég er hæstv. ráðh. algerlega sammála um, að það er erfitt að afgreiða fjárlög með kannske einn milljarð í tekjuafgang. Það a. m. k. þyrfti mikinn kraft og hörku til þess að geta staðið af sér þá ásókn, sem hefði orðið hér á hinu háa Alþ. í því efni. Og ég held, að eina ráðið í því efni væri að grípa til ráðstöfunar eins ágæts fyrrv. fjmrh., sem áætlaði alltaf tekjurnar vísvitandi skakkt. Ég segi honum það ekki til lasts, heldur gerði hann það til þess að mæta þeim vanda, að ef þær væru áætlaðar rétt, þá væri ómögulegt að halda í og það yrði öllu ausið út. Við þekkjum báðir þennan ágæta ráðh., og ég er ekki að lasta hann, en ég veit, að hæstv. fjmrh. er vel kunnugt um, að þau vinnubrögð voru þá höfð.
Nú er hins vegar fyrir núv. fjmrh. sá hængur á að fást við þetta, að það eru óháðar rannsóknastofnanir, sem reikna þetta út, þannig að það er ekki hægt að fela nokkurn eyri. Það eina, sem gefur kannske hjálpað í því, er, að verðbólgan haldi áfram nógu hratt, svo að þar áskotnist ríkissjóði fé, vegna þess að sannleikurinn er sá, að fyrir ríkissjóðinn er verðbólgan harla hagleg geit, eins og þar segir, þangað til svo langt er komið, að þarf að fara að styrkja atvinnuvegina. Meðan svo hefur farið sem hefur verið að undanförnu, að fjmrh. hefur getað sparað sér þann stuðning, þá hefur auðvitað mokast inn fé, þannig að það er með fádæmum, vegna þess, hversu verðbólgan hefur vaxið, og það er náttúrlega verðbólgunni að þakka eða kenna að slíkur fjármokstur hefur orðið inn í ríkissjóðinn, ekki síst söluskattur, tollar og reyndar öll opinber gjöld.
En hvað sem því líður, þá er þetta viðfangsefni, sem er alveg brýn nauðsyn að taka föstum tökum. Ég segi það ekki í neinu ádeiluskyni, þetta er bara efnisleg staðreynd, sem ég vona, að við hæstv. ráðh. getum verið sammála um. Það er ekki hægt að láta þetta þenjast út með þessum hætti, og það er óverjandi með öllu, að fjárlög á mestu þenslutímum séu afgreidd annaðhvort slétt í þessu tilfelli eða þá með greiðsluhalla. Hvað í ósköpunum gerist þá, þegar þrengist? Það er efnislega einnig rétt hjá hæstv. ráðh., að þrátt fyrir greiðsluhalla undanfarandi ára við útlönd, sem hefur verið geigvænlegur, þá hefur gjaldeyrissjóðurinn vaxið, og það er vissulega að nokkru leyti vegna erlendra lántaka, svo að ég skal játa, að þarna er til staðar nokkur sjóður á móti. En hve fljótt hann rennur út, skal ég ekkert um segja. Það fer eftir því, hvernig ástatt verður um þjóðarbúskapinn á næstunni. Þetta er öryggisventill, sem þarna er til staðar, að hafa þennan sjóð, og einn þátturinn í að viðhalda honum er auðvitað að reyna að viðhalda jafnvægi í þjóðarbúskapnum, annars rennur hann út. Og þó að hann sé um 7 milljarðar, að ég hygg, sá sjóður, þá getur hann runnið út á skömmum tíma, ef þrengir að varðandi tekjuöflun landsmanna.
En það er aðeins eitt atriði að lokum, sem ég vil gera aths. við hjá hæstv. ráðh. Vissulega eru í þessum tölum einnig lán vegna skipa og flugvéla. En þegar það mál er skoðað í heild og flugvélarnar teknar með, þá er ljóst, að þær lántökur eru minnkandi. Þær hafa verið hærri á undanförnum árum, bæði 1971 mun bærri og 1972, heldur en gert er ráð fyrir 1973. Fiskiskipalánin á þessum 4 árum hafa verið með tiltölulega mjög svipuðum hætti. Þau voru 716 millj. kr. 1970, en eru áætluð í ár 955 millj. til fiskiskipakaupa. Önnur skipalán voru 1970 536 millj., en eru áætluð núna 880 millj. Það eru því ekki skipalánin, sem hafa nein áhrif á lántökuaukningu erlendis að þessu leyti.
Ég sé ekki, herra forseti, neina ástæðu til, enda var það ekki ætlun mín að fara að hefja neinar kappræður, heldur komu þessar hugleiðingar upp í huga minn, þegar ég var að athuga frv., sem hér liggur fyrir. Þarna er aðeins drepið á nokkur stefnumarkandi atriði, sem hafa þýðingu, þegar við er að fást þann geigvænlega verðbólguvanda, sem við stöndum nú andspænis og aldrei hefur verið meiri á Íslandi en einmitt nú.