05.12.1973
Efri deild: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1088 í B-deild Alþingistíðinda. (967)

137. mál, námslán og námsstyrkir

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson) :

Herra forseti. Ekki er nema eðlilegt, að á góma beri, þegar fram kemur frv. um breyt. á l. um námslán og námsstyrki, hvað líði þeim undirbúningi, sem opinberlega hefur verið skýrt frá, að gagngerðri endurskoðun þessa lagabálks. Ég get svarað því til við fsp. hv. þm. Auðar Auðuns, að þetta endurskoðunarstarf var unnið s. l. sumar af n., sem skipuð var af mér, og sú n. hafði í starfi sínu samráð við fulltrúa, sem tilnefndir voru af samtökum námsmannahópanna, sem notið hafa námslána og námsstyrkja eftir þessum lögum. Síðan n. skilaði uppkasti sínu að frv., hefur það verið til frekari athugunar, og m. a. var því dreift til námsmannasamtaka. Hafa borist aths. frá þeim við einstaka þætti. En ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að fulltrúar stærstu námsmannahópanna séu jákvæðir gagnvart þeim meginbreytingum, sem felast í því frv., sem n. samdi. Nú er þessu starfi þannig á veg komið, að ég hef ákveðið, að frv. verði lagt fyrir Alþ., og það mun koma fram einhvern næstu daga.