30.08.1974
Efri deild: 7. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í B-deild Alþingistíðinda. (105)

8. mál, söluskattur

Axel Jónsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins við þessa 1. umr. láta það koma fram, að ég vil mótmæla þeim aðdróttunum og ádeilum, sem fram komu hjá hv. 11. landsk. þm. í garð fjmrh. og ríkisstj. varðandi þetta mál. Það vita allir, að hv. 11. landsk. og Alþb. í heild var reiðubúið til þess, þegar það hafði möguleika á því að komast inn í ríkisstj., að reyna að greiða úr vanda ríkissjóðs m.a. með samþykkt um 2% hækkun söluskatts. Þess vegna vil ég strax vísa þessari ádeilu heim. Ég minni raunar á, að í Þjóðviljanum 19. júní s.l. sagði þáv. ráðh. Magnús Kjartansson, að fjárhagsvandkvæði ríkissjóðs væru aðeins bókhaldsvandamál. Má vera, að einhver hluti Alþb. hafi þá skoðun á fjárhagsvandræðunum. En þau verða hins vegar aldrei leyst með neinum bókhaldskúnstum. Það verður að horfast í augu við staðreyndir.

Það, sem ég vil sérstaklega vekja athygli á og er nýbreytni í sambandi við það frv., sem hér liggur fyrir, er, að hlutur sveitarfélaganna er nú áætlaður hinn sami og áður var í þeirri söluskattshækkun, sem hér er lögð til, miðað við það, sem á undan var gengið, þá var þeirra hlutur dreginn til baka, þau svikin um réttmætan hlut í söluskattshækkun. Öll sveitarfélög landsins standa nú andspænis gífurlegum fjárhagsvanda, og í tíð fyrrv. ríkisstj., sem hv. 11. landsk. þm. var áhrifamaður í, virtist ekki vera nokkur skilningur eða vilji fyrir því að sjá farborða fjárhag sveitarfélaga. Í verðbólguþjóðfélagi eins og hefur ríkt hjá okkur nú á þessu ári, sem mun vist vera algert met, geta menn rétt gert sér grein fyrir því, að sveitarfélögin hafa þurft að byggja í fyrsta lagi allar sínar tekjur fyrri hluta árs, 7 fyrstu mánuði ársins 1974 hafa þau þurft að byggja allar sínar tekjur svo gott sem á verðlagi 1972. Fimm síðustu mánuðina eiga þau að byggja tekjur sínar á verðlagi 1973. Allur tilkostnaður sveitarfélaganna verður hins vegar að greiðast eins og eðlilegt er, á verðlagi 1974, svo að það er eðlilegt, að þarna sé þröngt fyrir dyrum. Við sveitarstjórnarmenn höfum átt að mæta því, að ríkissjóður hefur fyrst og fremst hugsað um sig og þar er miklu þægilegri aðstaða, ríkissjóður. fær meginhluta af sínum tekjum í söluskatti og tollvörutekjum, sem eru nokkuð í takt við verðbólguna. Þetta er öndvert við það, sem sveitarfélögin eiga við að búa. Þess vegna fagna ég því, að nú er aftur tekin upp sú stefna, að sveitarfélögum skuli vera gefin hin eðlilega hlutdeild í auknum söluskattstekjum ríkissjóðs. — Þetta vildi ég, herra forseti, láta koma fram strax við 1. umr. málsins.