30.08.1974
Efri deild: 7. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í B-deild Alþingistíðinda. (109)

8. mál, söluskattur

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég skal nú ekki eyða löngum tíma í umr. um fjárlög eða tekjuinnheimtu ríkissjóðs, en hitt er mér fjarri skapi að fara að biðjast undan því, sem ég hef áður haldið fram. Ég lagði fram í umr. með Alþfl., Alþb. og SF tekjuáætlun um það, sem ég gat um hér áðan, og sat sérstakan fund með formanni Alþfl., þáv. sjútvrh. og fyrrv. fjvn.- manni SF, þar sem ég gerði grein fyrri þessum málum og lagði fram fullkomna grg. um það, hvað væri áætlað, að yrði tekjuauki ríkissjóðs vegna gengisbreytingar, sem þá var um rætt, einnig vegna áframhaldandi hluta af niðurgreiðslum, sem upp voru teknar í sumar, og sérstakra útgjalda vegna gengislækkunarinnar. Allt þetta hafa þeir í sínum fórum og þarf ekki nema til þeirra að fara til að gera sér grein fyrir því.

Ég hygg, að það muni hvorki af hv. 1. landsk. né öðrum vera talin nein óreiða, þó að elli- og örorkulífeyrisþegar yrðu látnir njóta sömu kjarabóta og aðrir landsmenn nutu á s.l. vetri, eftir að kjarasamningarnir voru gerðir, en það hækkaði útgjöld ríkissjóðs um tæpan milljarð á einum degi, þegar það kom til framkvæmda. Og þó að tekjur hafi reynst meiri en gert var ráð fyrir, hafa líka útgjöldin reynst það, m.a. vegna þessara kjarasamninga og kjarasamninga við ríkisstarfsmenn og beins rekstrarkostnaðar. (JÁH: Mætti ekki greina frá því í aths. við frv.) Frv. er ekki samið þannig, enda hafa þessir flokkar yfirleitt yfirlit um þetta, því að þeir hafa m.a. fengið skýrslu þá, sem gerð var af hagrannsóknastjóra og Seðlabankastjóra, þar sem þessi mál voru tekin til meðferðar, svo að grg. skortir ekki um þetta. Það er aldrei neinum í hag, að ríkissjóður hafi ekki eðlilegar tekjur, hvorki nú né áður.