18.07.1974
Sameinað þing: 1. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (11)

Kosning forseta

Aldursforseti (Guðlaugur Gíslason):

Þá verður fundi fram haldið í sameinuðu Alþingi. Svofelld dagskrá liggur fyrir fundinum:

1. Kosning forseta.

2. Kosning 1. varaforseta.

3. Kosning 2. varaforseta.

4. Kosning skrifara.

5. Kosning kjörbréfanefndar.

6. Kosning til efri deildar.

Fer þá fram kosning forseta sameinaðs Alþingis, en um kjör forseta segir svo í 3. gr. þingskapa:

„Rétt kjörinn forseti er sá, er hefur meira en helming greiddra atkvæða, þeirra er á fundi eru. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð við fyrstu kosningu,skal kosið af nýju óbundnum kosningum. Fái þá heldur enginn nógu mörg atkvæði, skal kjósa um þá tvo þingmenn, er flest fengu atkvæði við síðari óbundnu kosninguna, en hafi við þá kosningu fleiri fengið jafnmörg atkvæði ræður hlutkesti, um hverja tvo skuli kjósa. Ef þeir fá báðir jafnmörg atkvæði við bundnu kosninguna, ræður hlutkesti, hvor þeirra verði forseti.“

Aldursforseti lét nú fara fram kosningu forseta sameinaðs Alþingis. Kosninguna varð að þrítaka. Við fyrstu atkvgr. hlaut Gunnar Thoroddsen, 2. þm. Reykv. 25 atkv., Gylfi Þ. Gíslason, 9. þm. Reykv., 24 atkv. og Ásgeir Bjarnason, 1. þm. Vesturl., 11 atkv.

Þar sem enginn hafði hlotið meira en helming greiddra atkv., lét aldursforseti endurtaka kosninguna, og féllu atkv. á sömu leið: Gunnar Thoroddsen hlaut 25 atkv., Gylfi Þ. Gíslason 24 atkv. og Ásgeir Bjarnason 11 atkv.

Þar sem enginn hafði enn fengið meira en helming greiddra atkv., lét aldursforseti fara fram bundna kosningu um þá tvo, er flest atkv. höfðu hlotið. Kosningu hlaut Gylfi Þ. Gíslason, 9. þm. Reykv., með 34 atkv. — Gunnar Thoroddsen, 2. þm. Reykv., fékk 25 atkv., en einn seðill var auður.

Hinn nýkjörni forseti gekk nú til forsetastóls og tók við fundarstjórn.