18.07.1974
Sameinað þing: 1. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í B-deild Alþingistíðinda. (12)

Kosning forseta

Forseti (Gylfi Þ. Gíslason):

Ég þakka kosninguna. Ég mun leitast við að eiga sem besta samvinnu við þingheim og vona, að samstarfið verði gott. Jafnframt læt ég af heilum hug í ljós þá ósk og von, að Alþingi megi vel farnast við meðferð þeirra mikilvægu verkefna, sem úrlausnar bíða. Samkvæmt sérstakri ósk verður kosningu varaforseta frestað og þessum fundi af þeim sökum frestað um klukkustund.

Fundi var tvívegis frestað um klukkustund, en síðan var honum frestað til þriðjudagsins 23. júlí.

Þriðjudaginn 23. júlí, kl. 2 miðdegis, var fundinum enn fram haldið.