30.08.1974
Efri deild: 8. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í B-deild Alþingistíðinda. (138)

9. mál, ráðstafanir vegna gengis íslenskrar krónu

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. mikið, en ég vil þó nota þetta tækifæri til þess að segja hér nokkur orð.

Hv. 7. landsk., Helgi Seljan, sagði réttilega, að gengislækkun yrði ekki lausn til frambúðar, og ég tek undir það, hún bæði leysir vanda og hún getur líka skapað vanda. En ég vil mótmæla því og þeirri skoðun, sem virðist vera ríkjandi hjá honum og hans félögum, pólitísku skoðanabræðrum, að hagsmunir fólksins og atvinnurekenda fari ekki saman. Ég held, að þarna sé mikið skilningsleysi, og að peningaflutningur sé frá fólkinu til atvinnurekenda við þær efnahagsráðstafanir, sem nú á að gera, ég held, að það sé alrangt. Það er flutningur frá fólkinu, frá atvinnurekendum, og á ég þá við hinn frjálsa atvinnurekenda, og þá frekar til ríkisbáknsins.

Ég vil alls ekki taka undir það, sem hv. 1. landsk., Jón Árm. Héðinsson, sagði, að þessi gengisfelling spái falli ríkisstj. Ég held, að það sé óskhyggja fremur en staðreynd.

Ég get tekið undir hans orð, að bankavaldið er orðið sterkt, kannske of sterkt, og þarf endurskoðunar á því, hvort ekki þarf þar að breyta einhverju. Ég held, að það sé vafasamt, hvort Seðlabankinn geti lokað dyrum sínum fyrir almennum viðskiptum án heimildar frá æðri stjórnarvöldum, hvort heldur er Alþingi Íslendinga eða ríkisstj. Ég vil líka mótmæla þeim hugsunarhætti, sem oftast hefur verið ríkjandi, þegar einstaklingar gera sínar ráðstafanir til þess að bjarga, varðveita þau verðmæti, sem þeir eiga, peninga eða annað, þegar ríkisráðstafanir eða bankaráðstafanir og við skulum segja seðlabankaráðstafanir fara af stað. Ríkið og bankarnir gera sínar ráðstafanir, og þá er það kallað efnahagsráðstafanir, en þegar einstaklingur reynir að varðveita sín verðmæti, þá er það talin spákaupmennska og sagt í niðrandi tón.

Seðlabanki Íslands hefur nú lagt til, að gengið verði lækkað um 17% og að bankarnir opni aftur á mánudaginn. Ég tel nauðsyn þessa fyrir ríkisstj. og fyrir þjóðina í heild. Það er dýr hver dagur, sem bankarnir eru lokaðir. Og þó að ég vilji strax í upphafi máls míns lýsa því yfir, að ég mun styðja þessa till., sem hér hefur verið lögð fram, þá hef ég viljað láta þeim stuðningi fylgja nokkur orð, þar sem hliðarráðstafanir eru ekki kunnar að öllu leyti, og á ég þar við þær ráðstafanir, sem kunna að verða gerðar og snúa að verslun og hinum frjálsa atvinnurekstri í landinu. Það voru settar á innborgunarskyldur nýlega, sem nema 25% gjaldi af keyptum gjaldeyri, og var það gert til þess að draga úr kaupum á gjaldeyri frá hinum einstöku innflytjendum. Nú, þegar gengið verður lækkað, þyngjast byrðar þeirra aðila, sem gjaldeyri þurfa að kaupa til þess að halda eðlilegum birgðum af vörum í landinu. Ég vona, að ríkisstj. sjái sér fært að létta þessu gjaldi nú þegar af innflytjendum og láta gengislækkunina vera nógar byrðar.

Þá vil ég enn fremur lýsa ótta mínum við það, að gengislækkun sú, sem nú er væntanleg, hafi þau sömu neikvæðu áhrif á hið frjálsa framtak í landinu sem hingað til, en þar hafa birgðir í fyrirtækjunum ekki verið endurmetnar, þannig að í mörgum tilfellum, eins og í mínu eigin tilfelli, þegar ég rak hér varahlutaverslun og bílaþjónustu, þurfti að selja 21/2–3 stykki úr hillu til þess að geta keypt eitt til baka, og það kalla ég eignaupptöku á vörubirgðum og ber að varast slíkt.

Þá vil ég benda ríkisstj. á þá óánægju, sem er hjá frjálsum innflytjendum vegna þeirrar staðreyndar, að þrátt fyrir það, að krónutöluálagning hefur verið látin halda sér við hverja gengislækkun í staðinn fyrir prósentu, þá hafa ríkisfyrirtæki haldið sinni prósentuálagningu, og sé ég enga ástæðu til þess, að eitt gangi yfir ríkisfyrirtæki og annað yfir hina frjálsu verslun eða frjálsu atvinnurekendur.

Ég skil þörf þess, að ríkisstj. geri sem allra fyrst allar þær ráðstafanir, sem geta orðið sjávarútvegi okkar til framdráttar og rétt hann við úr þeim vandræðum, sem hann er þegar kominn í. En ég vil beina því til ríkisstj., að stuðningur minn við þessa till. er bundinn þeirri von, að ríkisstj. geri sér ljósa grein fyrir því, að það eru aðrar atvinnugreinar í landinu, sem eru háðar sveiflum í gjaldeyrismálum, og ég vona, að ríkisstj. beri gæfu til að hugsa til atvinnuveganna almennt.

Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri að sinni, en lýsi stuðningi mínum við þetta frv.