30.08.1974
Efri deild: 9. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (141)

9. mál, ráðstafanir vegna gengis íslenskrar krónu

(Jón G. Sólnes):

Herra forseti. Þetta mál hefur verið tekið fyrir í fjh.- og viðskn. d., og meiri hl. n. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt. Minni hl. n., Jón Árm. Héðinsson, er andvígur frv. og leggur til, að það verði fellt. Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru þeir Jón Helgason og Ragnar Arnalds.