02.09.1974
Efri deild: 11. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í B-deild Alþingistíðinda. (150)
8. mál, söluskattur
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð í sambandi við það frv., sem hér er til umr. Ég vildi mega þakka hv. fjh.- og viðskn. fyrir skjóta afgreiðslu á þessu frv.
Hv. 5. þm. Norðurl. v. vildi í sínum síðustu orðum benda á leið til þess að leysa þann efnahags- og fjármálavanda, sem við stöndum frammi fyrir, en hann benti sérstaklega á, að erlendar lántökur mundu að sjálfsögðu geta leyst þetta að verulegu leyti, og taldi sig með þeim tölum, sem hann gat um, sýna fram á, hvernig breyting hefði orðið til hins betra í tíð fyrrv. ríkisstj. varðandi erlendar lántökur. Í skýrslu þeirri, sem fylgdi efnahagsfrv. fyrrv. ríkisstj. og hans flokksmenn stóðu að, er skýrt tekið fram, með hvaða hætti erlendar lántökur þá hefðu átt sér stað, og vildi ég — með leyfi hæstv. forseta — lesa hér upp aðeins 2–3 línur til þess að sýna fram á, hvernig þeirra mat er á stöðunni. En þar segir:
„Er hér um mjög varhugaverða þróun að ræða, sérstaklega þegar litið er til vaxandi óvissu um þróun útflutningstekna og versnandi ástands á fjármagnsmörkuðum erlendis. Er hætt við því, að áframhaldandi skuldasöfnun erlendis í svo ríkum mæli“ — þá var gert ráð fyrir því, að skuldaaukningin á þessu ári væri 6 milljarðar og 500 millj. kr. — „samfara versnandi greiðslustöðu út á við veiki lánstraust Íslands erlendis og gæti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir hagvöxt í framtíðinni.“ Ég held, að einmitt í þessum linum sé að finna þá skýringu, sem á því er, að þann vanda, sem við er að glíma í dag, er ekki hægt að leysa með erlendum lántökum.
Það var enn fremur á það bent af honum, að í ræðum okkar sjálfstæðismanna á síðasta þingi og þar áður hefði komið fram gagnrýni á útþenslustefnu og við talið eðlilegt og rétt að draga seglin saman. Þessi skoðun okkar er óbreytt, og ég vil benda bæði þessum hv. þm. svo og hv. 1. landsk. þm. á það, að enda þótt hluti vandans verði leystur með þeirri tekjuöflun, sem hér er gert ráð fyrir, þá er mikill vandi óleystur enn þá hjá ríkissjóði, hjá hinu opinbera, og þar kemur að sjálfsögðu til lausn, sem við höfum áður bent á, að þar verði frestun á framkvæmdum, dregið úr framkvæmdum, enda þótt mjög erfitt sé, eins og hv. síðasti ræðumaður benti á, að koma slíku við, þegar svo langt er liðið á árið.
Sá vandi, sem við er að glíma hjá ríkissjóði og hjá ríkisfyrirtækjum, er upp á tæpa þrjá milljarða til áramóta, þannig að það, sem hér er lagt til að leysa með hækkun söluskatts, er ekki nema brot af þeim mikla vanda. Ég held, að það sé öllum ljóst, að samfara hækkun söluskatts verði að koma til að verulegu leyti frestun á framkvæmdum, ef ekki á illa að fara, og verður að sjálfsögðu reynt að standa þannig að.
Hv. þm. vildi halda því fram, að ekki hefðu fengist nægilegar upplýsingar, nægileg grg. með frv., það flausturslega unnið, og hann sagði, að ill væri fyrsta ganga hins nýja fjmrh. Það er alveg rétt, ég hefði gjarnan viljað vera laus við að þurfa að leggja til söluskattshækkun til þess að leysa þau vandamál, sem hann og hans flokksbræður skildu eftir sig, þegar þeir fóru úr ríkisstjórn. Þess vegna er ill þessi fyrsta ganga, og ég hefði svo sannarlega viljað vera laus við hana. En það verður að sjálfsögðu að grípa á vandamálunum eins og þau eru, hverjir sem hafa staðið að þeim, hverjar svo sem orsakirnar eru, og enda þótt við í okkar gagnrýni höfum bent á, að hér þyrfti að spyrna við og setja þak á fjárl. þannig að ekki verði endalaust hægt að þenja út ríkisbáknið, þá held ég, að varla verði til þess ætlast af neinum, að við í dag, eftir aðeins 3–4 daga setu í ríkisstj., séum komnir með þá stefnumótun, sem við að sjálfsögðu munum beita okkur fyrir.
Hv. 1. landsk. þm. líkir mér í nál. sínu við fiðlarann á þakinu. Ég vonast til þess, að ég megi í mínu starfi vera jafnvínsæll og fiðlarinn á þakinu og mér takist að afla ríkissjóði jafnmikilla tekna og fiðlarinn á þakinu hefur gert við jafnmiklar vinsældir.