03.09.1974
Sameinað þing: 6. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í B-deild Alþingistíðinda. (159)
Rannsókn kjörbréfs
Frsm. (Matthías Á. Mathiesen, fjmrh.):
Herra forseti. Kjörbréfan. hefur haft til meðferðar kjörbréf Eyjólfs Sigurðssonar, 2. varaþm. Alþfl. í Reykjavíkurkjördæmi, en eins og fram kom, hefur hv. 9. þm. Reykv., Gylfi Þ. Gíslason, óskað fjarvistar vegna dvalar sinnar erlendis.
Kjörbréfanefnd staðreyndi, að 1. varaþm. Alþfl. í Reykjavík er ekki á landinu, og mælir nefndin með því, að kosning Eyjólfs Sigurðssonar, Leirubakka 8, Reykjavík, verði tekin gild og kjörbréf hans samþykkt.