03.09.1974
Neðri deild: 12. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í B-deild Alþingistíðinda. (166)
8. mál, söluskattur
Lúðvík Jósepsson:
Herra forseti. „Leggðu á hærri skatta, Matthías,“ er haft eftir fyrrv. hæstv. fjmrh., að hann hafi sagt, þegar hann afhent núv. hæstv. fjmrh. lyklana að ríkisfjárhirslunum. Þessi eggjun af hálfu Framsfl. vakti mjög athygli manna. Ekki ætti hitt síður að vekja athygli, að bað er greinilegt, að hæstv. fjmrh., Matthías, bregst alldrengilega við. Það er sýnilegt, að hann ætlar sér að hækka skattana allrösklega, ef dæma má út frá því, sem hann sagði í þeim fáu orðum, sem hann lét fylgja sem grg. með því frv., sem hér er nú til umr. Hæstv. fjmrh. sagði, að vandamál ríkissjóðs nú fjárhagslega séð næmu 3 milljörðum kr. Hins vegar sagði hann, að tekjur af þessu frv. mundu ekki verða meira en upp á 300 millj. En hann sagði, að eins og menn mættu sjá, færi það ekki á milli mála, að ríkissjóður þyrfti að fá miklu meiri tekjur. Og það gefur auga leið, ef málið er þannig, að ríkissjóð vantar nú í dag 3 milljarða til þess að ná endum saman.
En ég tók líka eftir því, að hæstv. fjmrh. vitnaði til þess, að þm. hefðu nú í sínum höndum allmiklar upplýsingar um fjárhagslega stöðu ríkissjóðs og því þyrfti hann nú ekki að koma hér með langt skýringarmál í sambandi við þetta frv. Já, þessu er nefnilega svona farið, að við erum með þessar upplýsingar í höndunum, en það virðist eitthvað fara á milli mála, hvernig við lesum margir hverjir úr þessum skýrslum og hvernig hæstv. núv. fjmrh. les úr þeim. Ég veit ekki annað betur en að það liggi alveg ljóst fyrir, að í þeirri skýrslu, sem núv. hæstv. forsrh., Geir Hallgrímsson, beitti sér fyrir að tekin yrði saman og gerð var af sérfræðingum og dagsett þann 12. júlí í sumar, kom skýrt fram, að staða ríkissjóðs væri þannig, að reikna mætti með því, að á þessu ári þá færu tekjur jafnmikið fram úr áætlun fjárlaga og gjöld eða sem næmi í kringum 5 300 millj. kr. Og í þessari skýrslu segir berum orðum í framhaldi af þessu, orðrétt á þessa leið: „Í þessu felst, að búist er við, að jöfnuður verði nokkurn veginn á þessum reikningi. Jöfnuður lánahreyfinga er áætlaður sá sami og á fjárlögum.“
Það er vitanlega allt annað mál að ætla að flækja inn í þetta dæmi til þess að villa um fyrir mönnum, að það vanti fé í Vegasjóð til þess að standa við allar þær framkvæmdir, sem þar höfðu vorið ráðgerðar. Enn hefur engin formleg ákvörðun, svo að okkur sé kunnugt um, verið tekin um, hvað eigi að vinna mikið samkv. þeirri áætlun.
Einnig er það í sambandi við ýmsa aðra sjóði eða önnur fyrirtæki, sem eru tengd ríkinu beint eða óbeint. Hér er auðvitað um það að ræða, hvernig fjárhagur ríkissjóðs er. Enda er hér verið að flytja frv. til fjáröflunar fyrir ríkissjóð. Það hefði vitanlega verið miklu nær, ef menn eru raunverulega að afla fjár til Vegasjóðs, að snúa þessu frv. við og segja, að þessi tekjuöflun skuli renna í Vegasjóð. Það er allt annað. Nei, hér er um það að ræða, að það er verið að auka við tekjustofna ríkissjóðs, þannig að tekjur ríkissjóðs á ársgrundvelli munu hækka miðað við það verðlag, sem verður helst miðað við í dag, um rétt um það bil 2000 millj. kr. á ársgrundvelli. Þetta bætist ofan á það, að búið er að ákveða tiltekna lækkun á gengi íslenskrar krónu eða sem nemur um 17%, og það mun færa ríkissjóði nettótekjuauka einhvers staðar á milli 1500 og 2000 millj. kr. Það er því ekki langt frá því, að hér hafi verið gerðar ráðstafanir með hækkun á söluskatti og með gengislækkun, sem færa munu ríkissjóði árlegar hreinar tekjur, sem nema í kringum 4 milljarða kr.
En þrátt fyrir þetta var helst að skilja á hinum nýja fjmrh., að þetta væri rétt aðeins byrjunin hjá honum, því að hann ætlaði að sigla eftir þessari ábendingu fyrirrennara síns, að hann skyldi leggja á sem mesta skatta. Það er alveg augljóst mál, að það var ekki þörf á því að hækka söluskattinn eins og hér er lagt til vegna stöðu ríkissjóðs nú.
Röksemdir eins og þær, að staða ríkissjóðs hafi síðustu mánuðina versnað á reikningi í Seðlabankanum, slíkt segir vitanlega ekki nokkurn skapaðan hlut. Við verðum að leggja meiri trúnað á hitt, þegar sérfræðingar ríkisins, sem hafa unnið að því árum saman að gera áætlanir um tekjur og gjöld ríkissjóðs, hafa nýlega farið ofan í dæmið og gefið út sitt álit og komist að þessari niðurstöðu, sem ég hef minnst á, þ.e.a.s. að það megi búast við því, að ríkissjóður komi réttur út á þessu ári, En það er rétt, að þessi niðurstaða sérfræðinganna var við það miðuð, að það legðust ekki nýir útgjaldabaggar á ríkissjóð frá 1. sept. á þessu ári að telja umfram það, sem ákveðið hafði verið áður. En það er hugsanlegt, að þeim aukaniðurgreiðslum á búvöruverði, sem ákveðnar voru í vor, verði haldið áfram að meira eða minna leyti og þar verði því um aukaútgjöld hjá ríkinu að ræða. En ef á að afla tekna til þess að standa undir einhverjum tilteknum útgjöldum, á að skýra frá því, að slík ákvörðun hafi verið tekin. Hefur ákvörðun verið tekin um að halda áfram þessum bráðabirgðaniðurgreiðslum út árið? Sé svo, þá er þarna um aukaútgjöld að ræða hjá ríkissjóði, sem mun nema á milli 700 og 800 millj. kr. samkvæmt þeim upplýsingum, sem fyrir liggja. Ég veit ekki annað betur en það sé verið að ræða um að fella þessar aukaniðurgreiðslur niður að meira eða minna leyti. En upplýsingar hafa sem sagt engar komið fram hér á hv. Alþingi um það, hvernig með þessi mál verði farið.
Ég álít, að það sé mjög óhyggilegt að fara í þessa hækkun á söluskatti, eins og nú standa sakir. Það er enginn vafi á því, að það eru fjárhagslegar aðgerðir, sem nú eiga sér stað í sambandi við gengislækkun og einnig á öðrum sviðum. Hér er rætt um mjög verulega hækkun á bensínskatti og um allverulega hækkun á rafmagnsverði til þess að bæta afkomu ríkisrafveitnanna. Ég álít, að það sé vægast sagt ógætilegt að ætla að bæta við þetta hækkun á söluskattinum og koma honum þannig upp í 19%. Auðvitað vitum við, að þessi hækkun á söluskattinum er hugsuð þannig, að afleiðingarnar af hækkuninni, þ.e.a.s. hækkað vöruverð, eigi ekki að mælast út í kaupgjaldið, menn eigi að bera þetta bótalaust, því að það er enginn vafi á því, að það hefði ekki verið gerð hér till. um að hækka söluskattinn, ef afleiðingarnar af hækkuninni hefðu átt að koma út í verðlagið og mælast inn í kaupgjaldið. Hér er því verið að bæta einum liðnum við í þessum efnum enn, sem gæti kannske orðið nægilegur til þess að hleypa hér öllu af stað og koma upp ófriði hér á vinnumarkaði.
Hér hafa ekki komið fram neinar upplýsingar um það, hvaða aðrar greiðslur geta komið til greina að eigi að bætast á ríkissjóð á seinni hluta ársins. Það hefur nokkuð verið rætt um bætur til láglaunafólks, og þær gætu auðvitað haft einhver aukin útgjöld fyrir ríkissjóð, þó að það muni ekki vera mikið, og í framhaldi af því yrði sennilega um að ræða hækkun á bótum almannatrygginga og þar yrði um aukin útgjöld að ræða. En hér hafa ekki verið gefnar neinar upplýsingar um, hvað eigi að gera í þessum efnum, hvaða útgjöld hér komi til greina. Verður vitanlega að fordæma slík vinnubrögð, að koma með skattlagningu, fjáröflun til einhverra alveg óþekkjanlegra hluta, til einhvers þess, sem við vitum ekki hvað er.
Ég vil í þessu sambandi geta þess, að þegar við Alþb. menn tókum þátt í viðræðum um myndun vinstri stjórnar, bar þetta mál á góma. Fyrrv. fjmrh. lagði á það áherslu, að söluskatturinn yrði hækkaður. En afstaða okkar var sú, að við töldum, að það ætti ekki að hækka söluskattinn, og við bentum á, að það væri engin sjáanleg þörf á því miðað við stöðu ríkissjóðs. Það var alveg augljóst, að ríkissjóður mundi hagnast drjúgan vegna gengislækkunar, og þegar gengislækkunin er gerð á þeim grundvelli, að hún eigi ekki að hafa áhrif á hið almenna kaupgjald, þá er augljóst mál, að hagur ríkissjóðs af slíkri gengislækkun er mjög mikill.
Það er því afstaða okkar Alþb: manna til þessa frv., að við erum því andvígir. Við teljum, að það sé ekki þörf á þessari tekjuöflun. Það hafa ekki verið færð hér fram nein rök fyrir því, að það sé réttmætt að fara í þessa viðbótartekjuöflun. Hún er nánast hlægileg að mínum dómi, þegar hún er rökstudd með því, að hún eigi að færa ríkissjóði á þessu ári 300 millj. kr., en hins vegar sé fjárhagsvandamál ríkissjóðs upp á 3 milljarða.
Þegar hér er nú um það að tefla, að útvega ríkissjóði tekjur á þessu ári upp á 300 millj. kr., gat þá t.d. Sjálfstfl. ekki komið til hugar, að það væri hægt að spara á útgjöldum ríkissjóðs á þessu ári sem næmi 300 millj. kr. Hvar eru till. þeirra frá því í vetur, þegar þeir töluðu um, að það mætti færa niður ríkisútgjöldin um 3 milljarða? Treysta þeir sér ekki nú til þess að færa útgjöld ríkissjóðs niður um 300 millj. kr., það sem eftir er af þessu ári? Ég er ekki í neinum vafa um, að það er tiltölulega létt verk að gera það, án þess að það saki mjög mikið, því að það yrði aðallega um það að ræða að draga úr hraða nokkurra framkvæmda á vegum ríkissjóðs, þar sem þegar hefur verið unnið allmikið eða þar sem svo stendur á, að undirbúningur er ekki nægilegur til þess að ráðast í þær framkvæmdir, sem ráð hafði verið gert fyrir að vinna. Það er enginn vafi á því, að það væri hægt að spara á þessu tímabili sem næmi 300 millj. kr., ef vilji væri fyrir hendi. En þeim, sem sigla eftir þessum áttavita: Leggðu á sem mesta skatta, dettur auðvitað ekki í hug að líta eftir slíkum möguleikum.
Það er býsna fróðlegt að sjá, að Sjálfstfl. er kominn inn á þessa línu, að leggja á sem mesta skatta, þrátt fyrir allt það, sem hann hafði sagt um þessi mál áður. Það verður fróðlegt að sjá, hvernig Sjálfstfl. stendur að því, þegar kemur að því að hækka eitthvað skattana á ýmsum atvinnurekstri í landinu, á ýmsum þeim, sem græða sannarlega í landinu, þá verður gaman að sjá till. Það liggur fyrir, að mikill hluti af okkar atvinnurekstri sé gjörsamlega skattfrjáls varðandi tekjuskatt, vegna þess að hann hefur svo rúmar afskriftarreglur. Hann hefur leyfi til þess að draga það mikið frá sínum framtöldu tekjum í afskriftir, að hann borgar yfirleitt sáralítinn tekjuskatt. En það verður fróðlegt að sjá till. Sjálfstfl. í þessum efnum í auknu sköttunum, þegar kemur að þessum þætti málanna.
Kannski verður líka fróðlegt að sjá, hver verður afstaða Framsfl., hvort hann styður þessa reglu í gegnum þykkt og þunnt, meiri skatta, meiri skatta.
Ég verð að segja það, að ég lýsi undrun minni yfir þeirri stefnu, sem Framsfl. virðist hafa tekið upp varðandi þessi mál öll, því að það fer vitanlega ekki fram hjá þeim framsóknarmönnum, að ráðstafanir til sífelldra verðlagshækkana, sem ekki eiga að reiknast inn í kaupgjald, eru ekki síður árásir á bændur landsins en á verkamenn. Það er verið að rýra kjör bænda ekki síður en hinna. Og maður á erfitt með að trúa því, að þeir, sem kalla sig fulltrúa bændastéttarinnar, geti verið ánægðir með kauplækkun hjá bændum, ef hún verði líka hjá öðrum. Auðvitað miða ráðstafanir af þessu tagi, sem miða að því að skerða hin almennu launakjör, líka að því að skerða launakjör bændanna í landinu. Það er enginn vafi á því, að Framsfl. verður að svara fyrir það á sínum stað og sínum tíma, ef það er orðin pólitík hans í þessum efnum, að það beri að lækka þessi launakjör með því að hækka í sífellu skatta og álögur, án þess að afleiðingarnar af slíku komi út í verðlagið eða út í kaupgjaldið.
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. verulega að þessu sinni. Ég vil aðeins benda á, að það hafa ekki komið fram nein fullnægjandi rök fyrir því að fara í þessa viðbótartekjuöflun fyrir ríkissjóð, því að það verður auðvitað að líta á þetta sem tekjuöflun til frambúðar. Það fer enginn í það að hækka söluskatt aðeins fyrir örfáa mánuði. Það hafa ekki verið færð hér fram nein fullnægjandi rök fyrir því að bæta þessu við aðrar verðlagshækkanir, sem hér eiga yfir að ganga, og því ber vitanlega að fella þetta frv. En þetta frv. fer nú til n. og verður athugað þar, og þá gefst auðvitað hér aðstaða til þess að ræða málið frekar, þegar það kemur aftur úr nefnd.