03.09.1974
Neðri deild: 12. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í B-deild Alþingistíðinda. (173)

8. mál, söluskattur

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Fyrst í tilefni af því, sem hæstv. fjmrh. sagði og vildi ráðleggja mér vinnubrögð, þá er ég vissulega þakklátur fyrir það. En heldur hefði ég kosið, að þessi ráðlegging hefði komið fram fyrr í dag, þannig að ég hefði getað nýtt þann tíma, sem farið hefur í það hjá stjórnarliðinu að semja um það, sem hér á að fara fram í dag eða á morgun, hátt í 2 klukkutíma í dag, og þá hefði ég vissulega þegið þá ábendingu að kynna mér frekar, hvað hv. þm. Sjálfstfl. hefðu sagt um ýmis mál hér á undanförnum vikum eða mánuðum.

Ég heyrði það ekki í ræðu hæstv. fjmrh., þegar hann talaði hér á eftir már, að hann viki einu orði að því að rengja þær upplýsingar, sem ég var hér með um stöðu ríkissjóðs og eru skjalfestar á blaði frá hans fyrirrennara, hæstv. núv. samgrh. Ég heyrði ekki, að hann ýjaði að því einu orði, að þær væru rangar, og ég vil eindregið krefjast þess, að það verði hér af hálfu ríkisstj. og þá hæstv. fjmrh. sagt til um það, hvort þessar upplýsingar fyrrv. hæstv. fjmrh. séu rangar eða ekki, því að það er vissulega alvarlegt mál, ef eftirmaður hans í ráðherrastól getur sagt á Alþ., að hér hafi verið gefnar rangar upplýsingar um svo mikilvægt mál sem stöðu ríkissjóðs. Ég vil því eindregið mælast til þess af hæstv. fjmrh., að hann gefi til kynna, hvort hann vilji láta í það skina, að hans fyrirrennari hafi farið með rangt mál í þessum efnum. Ef hann gerir það ekki, þá lít ég svo á, að hér séu réttar upplýsinga.r á ferðinni og þetta frv. sé því óþarft, eins og hv. þm. Frsmsfl. úr Reykjaneskjördæmi gaf mönnum til kynna að álykta í því, sem hann sagði hér áðan. Og ég er viss um, að það verða fleiri hv. stjórnarliðar, sem láta þetta sjónarmið ráða, ef á að halda áfram á þeirri braut, sem núv. hæstv. ríkisstj. virðist hafa markað sér í skattlagningu.

En ég endurtek það, að ég vil eindregið mælast til þess af hæstv. fjmrh., að hann geri grein fyrir því, hvort hann telur, að hér hafi verið um villandi upplýsingar að ræða af hálfu fyrrv. hæstv. fjmrh. um stöðu ríkissjóðs á þessum tiltekna tíma.