04.09.1974
Neðri deild: 14. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í B-deild Alþingistíðinda. (199)
6. mál, fjáröflun til vegagerðar
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður, hv. 5. þm. Vestf., gaf mér tilefni til þess að segja örfá orð.
Hv. þm. talaði um, að sér væri mjög hlýtt til margra framsóknarmanna. Ég hafði nú vænst þess, að þessum hv. þm. væri einnig hlýtt til mín og margra sjálfstæðismanna. (Gripið fram í.) Ég veit það. Þess vegna taldi ég ástæðu til þess að vekja athygli á því, að hv. þm. hefði átt að orða þetta öðruvísi en það kom fram. Það fer vel á því, að hv. 5. þm. Vestf. hefur góðar taugar í garð margra sjálfstæðismanna eins og annarra þm., líkt og ég finn, að það er hlý taug frá mér til þessa hv. þm.
Ég gladdist líka yfir því að vita, að þessi hv. þm. hefur lesið talsvert af þingræðum eftir mig, las hérna upp í gær. En ég verð að vekja athygli á því, að þessi hv. þm. hefði komist hjá að tala eins og hann áðan gerði, ef hann hefði lesið ræður mínar um frv. til l. um fjáröflun til vegagerðar, sem flutt var á s.l. vori, í aprílmánuði. Þá hefði þessi hv. þm. ekki sagt, að Vegasjóði hefði verið bjargað, ef það frv. hefði verið samþ., vegna þess að það var ekki gert ráð fyrir, að það gæfi Vegasjóði í tekjur á þessu ári, þótt það hefði verið samþ. strax, meira en 330 millj. kr. En hvað vantaði Vegasjóð samkv. till. til vegáætlunar, sem lögð var fram á s.l. vori? Það voru 1900 millj. kr.
Hv. 5. þm. Vestf. sagði, að ég og fleiri sjálfstæðisþm. bærum ábyrgð á því, að nú vantaði fé í Vegasjóð, vegna þess að við hefðum hindrað, að umrætt frv. yrði samþ. Hv. þm. hefur ekki leyfi til að tala svona. Í fyrsta lagi, þótt þetta frv. hefði verið samþ., gaf það ekki í tekjur nema lítið brot af því, sem Vegasjóð vantaði. Í öðru lagi reyndi aldrei á það, hvort meirihlutafylgi væri fyrir þessu frv. á hv. Alþ. á s.l. vori. Þessu frv. var vísað til hv. fjh.- og viðskn., og það kom aldrei þaðan, og ég held að ég megi fullyrða, að það hafi ekki reynt á það í hv. n., hvort fylgi væri fyrir málinu þar eða ekki. Það er gott fyrir hv. þm. að víta af þessu. Ég vil láta hv. þm. vita, að ég fyrirgef honum þessi mismæli, vegna þess að það er sagt að misskilningi og vegna þess að hann hefur ekki kynnt sér málið. Gott væri fyrir hv. þm., áður en hann kemur með fullyrðingar næst, að búa sig betur undir málefnið og fullyrða ekki annað en það, sem hann veit.
Hv. þm. sagði, að Sjálfstfl. væri forustuflokkurinn í ríkisstj., og það vona ég, að hann verði áfram. En það er hreinn misskilningur að halda því fram, að þm. Sjálfstfl. hafi haft forustu um að hækka bensínið. Ég man, að ég sagði við Halldór E. Sigurðsson fyrrv. fjmrh.: Bensínverðið verður alltaf álitamál, hvað réttmætt væri að hækka það mikið. Það verður líka alltaf álitamál, hvenær bensínverðið væri komið í hámark, þannig að það hætti að seljast eins mikið og það gerir, ef verðið er lægra. — En ég sagði honum einnig, að þm., sem að hækkuninni stæðu, yrðu skammaðir alveg jafnt hvort sem hækkunin væri 5 kr., 6 kr. eða 7 kr. Og það er ekki það, sem á að ráða, hvort menn fá meiri eða minni skammir í þessu efni, heldur það, hvað er skynsamlegast. Menn eru oft skammaðir fyrir að gera það, sem er skynsamlegast að framkvæma. En hæstv. fyrrv. fjmrh. flutti þetta frv., sem um er að ræða, og því var útbýtt hér í hv. Alþ. án hans vitundar. Ég varaði hann við að flytja frv., áður en búið væri að fjalla um það í þingflokki sjálfstæðismanna. En af einhverjum misgripum var frv. flutt. Ég tel alveg rétt, að þetta komi fram. Það er þess vegna, sem þingflokkur sjálfstæðismanna hefur verið að ræða um þetta mál, að það var ekkert samkomulag um þetta frv. (MK: Ekki við hv. þm. heldur?) Að því tilskildu, að flokkurinn væri því samþykkur. Ég hef aldrei hugsað mér að taka einræðisvald í Sjálfstfl. Ég hef aldrei hugsað, að ég gæti bundið Sjálfstfl. í einu eða öðru máli. Ég hef alltaf viljað hafa leikreglurnar lýðræðislegar, og það var þess vegna, sem ég áminnti flm. um að bíða með flutning málsins, þangað til séð væri, hvaða undirtektir það fengi í þingflokknum. Og ég get endurtekið: Það var ekki með vitund flm., að frv. var flutt þann dag, sem það var flutt. Þess vegna er ekki réttmætt að ásaka hann, þótt það hafi farið þannig fram. En þingflokkur sjálfstæðismanna hefur ekki getað fallist á 7 kr. hækkun á bensíninu. Þess vegna er flutt brtt. um, að hækkunin skuli vera 6 kr., en ekki 7 kr., og þess vegna er óréttmætt að segja, að það sé þingflokkur sjálfstæðismanna, sem hafi forustu um hækkun í þessu efni.
Hv. 5. þm. Vestf. vill segja, að við sjálfstæðismenn berum ábyrgð á fjárvöntun Vegasjóðs. Ég veit, að hv. þm. er sem betur fer líkamlega hraustur. En eitthvað vantar á rökrétta hugsun, þegar fullyrðing sem þessi er fram sett. Hv. þm. veit, að Vegasjóður er í rauninni gjaldþrota. Hann vantaði 1900 millj. kr. á s.l. vori, til þess að hægt væri að standa við vegáætlun, sem gerð var 1972. Þótt þetta frv., sem flutt var til fjáröflunar, hefði verið samþ., vantaði samt nærri 1600 millj. kr. Á þessu ári hefur verið frestað framkvæmdum hjá Vegagerðinni, sem nemur 1100 millj. kr., og er enn eftir að útvega fé til þess, að frestunin þurfi ekki að verða meiri. Á næsta ári er gert ráð fyrir, að frestað verði framkvæmdum, sem nema 1360 millj. kr., miðað við þá áætlun, sem gerð var 1972.
Það er gert ráð fyrir því í vegal., að vegáætlun skuli endurskoða annaðhvort ár, á tveggja ára fresti, og endurskoðun vegáætlunar hefur alltaf verið gerð með það fyrir augum að bæta við fyrri áætlunina, auka framkvæmdir. Á þessu ári verður að gera allt annað. Það verður að gera ráðstafanir til þess að afla fjár og leggja á aukin útgjöld, en eigi að síður að draga úr framkvæmdum frá fyrri áætlun. Hvers vegna er þetta? Það eru afleiðingar vinstri stjórnarinnar, stjórnleysis hennar. Vegagerðarvísitalan hefur hækkað frá apríl 1972, þegar vegáætlun var gerð, til aprílmánaðar 1974 um nærri 100%, og það er þessi mikla hækkun á vegagerðarkostnaði, sem hefur sett allt úr skorðum. Það er hreysti að segja svo, að þeir, sem voru í stjórnarandstöðu, beri ábyrgð á þessu. Ég held, ef hv. þm. tekur aftur til máls og fer að ræða þetta, að hann yrði meiri maður af, ef hann viðurkenndi það í næstu ræðu að hafa talað áður en hann hugsaði, að hann hafi gleymt að nota rök fyrir sínu máli, heldur látið sér nægja rökleysur. Ef hv. þm. gerði þetta, væri sýnilega hægt að kenna honum nokkuð í heilbrigðum rökræðum.
Ég ætla ekki að ræða þetta frv. neitt sérstaklega og ég sé ekki ástæðu til þess að rifja upp margt, sem sagt var á s.l. vori um vegamálin, bæði um frv. til l. um fjáröflun til vegagerðar og um till. til vegáætlunarinnar. Ég tel ekki ástæðu til að fara að flytja ræðu hér yfir hæstv. fyrrv. samgrh. og segja eitthvað í þá átt, að hann hefði átt að beita sér fyrir því að láta endurskoðun vegáætlunar fara fram. Þetta er liðin tíð, og staða Vegasjóðs batnar ekkert, þótt orðræður verði lengdar um þetta efni. En ég er sannfærður um, að við öll, sem nú sitjum á þingbekk, getum gert okkur rétta grein fyrir því, hver ástæðan er fyrir því, að svo illa er komið hjá Vegasjóði og hjá fleiri opinberum sjóðum, fjárfestingasjóðum og stofnunum. Ég held, að það þurfi ekki langar rökræður hér á Alþ. til þess, að við öll innst inni vitum ástæðuna fyrir þessu, enda þótt ýmsir hv. þm. reyni að klóra í bakkann og streitast við að standa gegn því, sem er sannleikur.