04.09.1974
Neðri deild: 14. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í B-deild Alþingistíðinda. (211)

5. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Frsm. meiri hl. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, var flutt af hæstv. fyrrv. iðnrh., og hefur það verið í iðnn. nú um nokkurra vikna skeið til athugunar. Með frv. er lagt til, að verðjöfnunargjald verði lögfest 13% af seldri raforku í smásölu og renni það í Orkusjóð. Gjald þetta á að lögfesta til þess að bæta fjárhag Rafmagnsveitna ríkisins, sem er mjög slæmur.

Með frv. fylgir tafla, þar sem áætlun er gerð um tekjur og gjöld rafmagnsveitnanna næstu ár, árin 1974–1980. Í þessari töflu er gert ráð fyrir, að hallinn hjá rafmagnsveitunum verði á þessu ári 272 millj., en nýjustu athuganir sýna, að hallinn verður allmiklu meiri, sennilega hátt á fjórða hundrað millj. Í töflunni er sýnt, að fjárhagur rafmagnsveitnanna á að batna, þegar árið 1975 er liðið, og munar allmiklu á áætluðum halla 1976 og tveimur árunum á undan.

Standa vonir til, að rekstrargrundvöllur Rafmagnsveitna ríkisins geti batnað, og verður gengið í að athuga möguleika á aukinni hagkvæmni þar og minnkandi rekstrarhalla. Þess vegna er gert ráð fyrir, að þetta gjald verði lögfest aðeins til ársloka 1975. Á næstu mánuðum þessa árs og næsta ári gefst þá tími til að athuga nánar, hvað gera skal, hvort framlengja þarf gjaldið í þessu formi eða öðru.

Ég hefði talið, að það væri miklu heppilegra að hafa þetta fast gjald, annaðhvort eins og það var lögfest fyrst, 1965, og aftur 1970 eða þá fast gjald, sem miðast við selda kwst. Á síðasta stigi. Menn urðu ekki sammála um þetta, og þar sem ekki er gert ráð fyrir að þessi lög, ef frv. verður samþykkt., gildi nema til ársloka 1976, taldi ég ekki ástæðu til að snúast gegn tekjuöflun í þessu formi, sem fyrrv. hæstv. iðnrh. lagði til og núv. hæstv. iðnrh. einnig er samþykkur.

Meiri hl. þeirra, sem mættu á fundi iðnn. í morgun, mælir með því, að frv. verði samþ. með nokkrum breytingum, sem fluttar ern á þskj. 33.

Þar er gert ráð fyrir að umorða 1. gr. lítið eitt. Það er aðeins orðabreyting, en þó nokkur meiningarmunur, þannig að eins og gr. er orðuð í frv., mætti skilja það svo, að ráð Orkustofnunar væru meiri en ráð ráðh. En auðvitað er það svo, að ráðh. sendir málin til umsagnar í þær stofnanir, sem undir hann heyra, og hann hefur svo síðast úrslitavald. Gr. er breytt í það form.

Þá er gert ráð fyrir, að 2. mgr. 2. gr. falli niður, en sú mgr. er um raforku til húshitunar. Ef sú gr. væri látin vera óbreytt, yrði raforka til húshitunar einnig skattlögð. En það sýnist vera mjög ósanngjarnt og óeðlilegt, og eins og nú er komið málum, er dýrara að hita upp með raforku en olíu, því að rafmagn til húshitunar hefur hækkað á stuttum tíma um allt að 100%. Hefur verið sagt, að nauðsynlegt væri að hvetja menn til þess að nota innlendan orkugjafa, og mörg íbúðarhús hafa á undanförnum árum verið byggð þannig, að þau yrðu hituð upp með raforku. Nú vakna þeir, sem nota raforku til húshitunar, upp við það, að rafmagnshitunin er allt í einu orðin dýrari en olíuhitun, eftir að olían var greidd niður. Ég minntist á þetta við 1. umr. um þetta mál, og þá eftir umr. vék þáv. hæstv. viðskrh. sér að mér og sagði, að það væri meiningin að greiða rafmagnshitunina einnig niður, þannig að hún yrði a.m.k. ekki dýrari en olíukyndingin. Ég hef spurst fyrir um þetta síðan, og hefur enn ekki neitt verið gert í þessu máli. Í gær talaði ég við fyrrv. viðskrh. og gat þess, að ég mundi minnast á þetta einnig nú, og óskaði eftir, að hann gæfi yfirlýsingu í þessu máli, á hvaða stigi þessi afgreiðsla er, hvort hann hafi, áður en hann fór úr viðskrn., gert ráðstafanir til, að rafmagn til húshitunar yrði greitt niður, þannig, að það yrði a.m.k. ekki dýrara en olíukyndingin. Nú sé ég, að hv. þm. er ekki hér í salnum, og væri mér kært, ef hæstv. forseti vildi gera ráðstafanir til að ná til hans, til þess að hann fái þetta tækifæri, sem ég bauð honum í gær. Ég tók það svo í gær, að hann teldi, að að það væri gott að fá þetta tækifæri, og hafi þetta mál verið undirbúið í viðskrn., er gott, að það komi fram. Ég veit, að það var ekki stefna hæstv. fyrrv. iðnrh. að gera rafmagnshitun til húshitunar það dýra, að hún yrði ekki eftirsóknarverð og ekki samkeppnisfær. Það hefur verið stefna okkar allra að nota innlenda orkugjafa frekar heldur en innflutta olíu, og það verður að vera hvatning hjá mönnum að nota rafmagnið, þegar það er fáanlegt frá þeim virkjunum, sem verið er að gera, frekar en það, að menn hverfi aftur frá þessari stefnu. Ég vona, að það sé rétt, sem fyrrv. viðskrh. sagði, að þetta mál hafi verið undirbúið í viðskrn. og það verði framhald á því, þannig að rafmagn til húshitunar verði a.m.k. samkeppnisfært við olíuna.

Þá er hér brtt. við 3. gr. frv., sem skýrir framkvæmdina betur en gr. eins og hún er orðuð. Í frv. er talað um, að það eigi að standa skil á gjaldinu mánaðarlega. Það liggur í augum uppi, að yfirleitt er ekki hægt að gera þetta mánaðarlega, bar sem ekki er lesið á gjaldmæla nema ársfjórðungslega. Þess vegna er tekið fram í þessum brtt., að það verði gefinn frestur til þess að skila gjaldinu, þangað til reikningur hefur verið gerður yfir þá upphæð, sem greiða á. Þegar lesið er á aðeins á þriggja mánaða fresti, tekur það vitanlega nokkra daga að ganga frá reikningum og koma rukkuninni af stað. Með þeirri skilgreiningu, sem er komin inn í þessa brtt., ætti að vera skiljanlegt, hvernig þetta á að framkvæma. Auk þess er gert ráð fyrir því í frv., að reglugerð verði samin samkv. 9. gr. um framkvæmd 1., og má taka nánar fram þar, hvernig framkvæmd skuli hagað.

Þá er það 7. gr. Þar er einnig tekið fram, að undanþegin þessu gjaldi skuli vera Áburðarverksmiðjan, Íslenska álfélagið og rafmagn til húshitunar.

Þá er dálítil breyting við 12. gr. Það er um eftirgjöf af lánum, sem gert var ráð fyrir í frv. Upphæðin breytist úr 147 millj. kr. í 148.3 millj. nákvæmlega.

Þá er 16. gr. Það er breyting við hana um, að lög þessi öðlist gildi 1. okt., en ekki strax eftir að frv. hefur verið samþ., og að l. falli úr gildi í árslok 1975. Það gefur tilefni til þess, að rekstur rafmagnsveitnanna verði endurskoðaður og verði athugað nánar, ef verðjöfnunargjald þarf að innheimta áfram, hvort ekki er tækifæri til að hafa það í öðru og einfaldara formi.

Þá er hér einnig till. okkar þremenninganna um 16. gr., að umboð núv. stjórnar Rafmagnsveitna ríkisins falli niður við gildistöku l., en við þessa brtt. er komin önnur brtt., þ.e. að síðasti málsl. þessarar gr. falli niður og í stað þess, að umboð stjórnarinnar falli niður, verði bætt tveimur mönnum í stjórnina. Út af fyrir sig getum við, sem skrifað höfum undir meðmæli með því, að frv. verði samþ. með þessum breytingum. fallist á þá brtt.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta frv., en ég sé, að hv. þm. Lúðvík Jósepsson er ekki hér. (Forseti: Mér er tjáð, að hann sé ekki í húsinu.) Hann er farinn úr húsinu, og þá gefst ekki tækifæri til þess að svo stöddu að fá yfirlýsingu hans um þetta, sem ég áðan ræddi um. Það má vitanlega gera í öðru formi þá og við annað tækifæri, ef ástæða þykir til.