04.09.1974
Efri deild: 16. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í B-deild Alþingistíðinda. (221)
6. mál, fjáröflun til vegagerðar
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 9 er frv. til l. um fjáröflun fyrir Vegagerð ríkisins. Frv. þetta flutti ég, áður en núv. stjórnarskipti urðu, og það var ekki flutt sem stjfrv., heldur flutti ég það sem fjmrh. sérstaklega, en hafði áður flutt frv. sem stjfrv. á síðasta Alþ. En nokkur breyting hafði verið gerð á frv. á milli þinga eða frá því að það var upphaflega flutt, og til þess, er það er flutt nú. M.a. var sú breyting fólgin í því, að frv. það, sem flutt var í vetur, var miklu meira að gerð og meiri heildarlagabálkur en þetta frv. er. Hér er fyrst og fremst um að ræða að afla Vegasjóði aukinna tekna til þeirra verkefna, sem hann þarf við að fást.
Ég vil taka fram þegar í upphafi máls míns, að það er byggt á misskilningi hjá þeim, sem það halda, að með þessu frv. sé fullnægt fjárþörf Vegasjóðs, jafnvel þó að frv. hefði orðið samþ. á s.l. vetri, miðað við þá vegáætlun og þá verðhækkun á vegagerðarframkvæmdum, sem hefur orðið síðan sú vegáætlun var samþykkt. Á það skortir nokkuð, að svo sé, að framkvæmd þeirrar vegáætlunar sé haldið, þó að þessi samþykkt sé gerð. Hins vegar var gert ráð fyrir því, að afla yrði aukins lánsfjár til vegagerðar á þessu ári til þess að draga ekki meira en brýnustu nauðsyn bar til úr þeim vegaframkvæmdum, sem gera þurfti. Auk þess varð á yfirstandandi ári að taka inn framkvæmdir, sem ekki var gert ráð fyrir á vegáætlun síðast, í sambandi við Þingvallaveginn á milli Reykjavíkur og Þingvalla vegna þjóðhátíðarinnar í sumar.
Efni þessa frv., eins og það er orðið nú eftir þær breytingar, sem gerðar hafa verið á hv. Nd., er að hækka bensínskattinn um 6 kr., eða í 16 kr., en frv. gerði upphaflega ráð fyrir, að það yrðu 17 kr., sem farið yrði í. Við þá framsögu, sem ég flutti fyrir þessu máli í hv. Nd., gat ég þess m.a. , að ein króna þessa skatts væri miðuð við það, að niður féllu þau ýmsu gjöld í sambandi við bifreiðar, sem talin eru upp í fskj. með frv. eða grg. þess. Hins vegar var ekki lagt til að fella önnur gjöld niður með þessu frv. en það, sem varðaði þungaskatt af bensínbifreiðum. Nú hefur orðið að ráði, að taka skuli til frekari athugunar þau gjöld, sem greint er frá í fskj. með frv., 38 talsins, og mun verða tekið til meðferðar síðar, hvort það verður gert eða eigi. En af þeim ástæðum þótti rétt að lækka skattinn um eina kr., og var það gert í hv. Nd. Sömuleiðis var þungaskatturinn lækkaður í samræmi við þetta. Bíður það síðari tíma, hvaða ákvörðun verður um það tekin.
Þá voru og í hv. Nd. gerðar breytingar, sem þurfti að gera vegna samræmingar við eldri lög. Var það lagt fram í frumvarpsformi, þegar frv. kom fyrst fram á s.l. vori, en ekki þótti ástæða til að taka það upp á þessu sumarþingi, en það mun hins vegar verða gert á þinginu í vetur. Þá var og gildistaka laganna ákveðin 9. sept. í staðinn fyrir það, að upphaflega var gert ráð fyrir, að frv. tæki gildi, þegar það hefði öðlast samþykki og staðfestingu, en ekki miðað við ákveðinn dag, svo sem gert er nú, af því að eðlilegt þykir af framkvæmdarástæðum.
Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja um þetta frv., því að þeir skattar, sem hér er verið að fjalla um, eru gamalkunnir hér á hv. Alþ. Það eru þeir tekjustofnar, sem Vegasjóður hefur haft, bensínskatturinn og þungaskattur af bifreiðum. Hins vegar var ekki talin ástæða til og fjarri því að fara að hækka gúmmígjaldið, því að í raun og veru er talið nauðsynlegt að lækka heldur þann skatt en hækka síðar meir, þar sem gúmmí er meðal öryggistækja bifreiða, og ber því brýna nauðsyn til, að þau séu í hinu fyllsta lagi.
Það þarf ekki heldur að eyða orðum að því, hve mikil nauðsyn er að fá svigrúm til aukinna tekna vegna vegagerðar í landinu, því að vegagerðin er eitt af þeim stærstu málum til framfara fyrir landsbyggðina alla. Er sama, hvort lítið er til höfuðstaðar eða annarra landshluta. Allir landsmenn vilja land sítt sjá, og eitt af höfuðskáldum okkar taldi brýna nauðsyn, að þeir gætu skoðað landið út um bílrúðurnar, enda væri nú minna ort af ættjarðarljóðum og þess vegna kynntust þeir landinu nú í raunveruleikanum, en ekki í ljóðum, eins og áður var. Hvort tveggja er auðvitað nauðsynlegt. En nútímakynslóðin vill sjá hlutina, og hún er kannske að því leyti raunsærri en kynslóðir fyrri tíma, sem ekki höfðu möguleika til að kynna sér landið nema í ljóðum.
Ég sé ekki ástæðu til að vekja athygli á fleiru í frv. nema þó einu atriði, sem er nýmæli, því að það er nýmæli í frv., að taka megi upp sölu á happdrættisbréfum vegna vegagerðar og ákveða við afgreiðslu fjárlaga, hve mikið skuli selt af þeim á ári hverju. Þá mundi það jafnhliða verða tengt þeim vegum, sem um væri fjallað. Er hér framhald á þeirri braut, sem ákveðin var með því að selja bréf slík sem þessi, þegar vegurinn yfir Skeiðarársand var lagður, og er hér um að ræða að endurbyggja þjóðveginn umhverfis landið, svo sem brýna nauðsyn ber til. Ég hef áður greint frá því, að ég tel nauðsyn bera til þess, að það sé gert, hvort sem litið er til Vesturlandsvegar, Norðurlandsvegar eða áframhalds á Suðurlandsvegi þeim, sem nú hefur verið lagður. Nú rétt áðan var verið að afgreiða happdrættisskuldabréfasölu vegna hringvegar um Djúpið. Öll þessi mál eru hin ágætustu og þm. jafnan reiðubúnir til þess að leggja þeim lið.
Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að orðlengja þetta, en legg til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.