05.09.1974
Efri deild: 17. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í B-deild Alþingistíðinda. (240)
6. mál, fjáröflun til vegagerðar
Axel Jónsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð og sérstaklega í sambandi við þá till., sem hér liggur fyrir á þskj. 43 frá hv. 5. þm. Norðurl. v.
Hv. 5. þm. Norðurl. v., Ragnar Arnalds, talaði um nauðsyn þess að efla og auka gatnagerð í þéttbýli. Sama gerði og hv. síðasti ræðumaður, hv. 4. landsk. þm., Helgi Seljan. Undir þetta skal ég mjög eindregið taka og er mjög ánægður yfir því, að þeir Alþb.- menn skuli vera komnir á þessa skoðun, að það sé nauðsyn að efla stöðu sveitarfélaganna. Ég sem sveitarstjórnarmaður hef aðra reynslu af viðskiptum við þá ríkisstj., sem þeir voru ráðamiklir í, hv. Alþb.- menn. Á undangengnum árum var það ekki í fyrirrúmi að auka möguleika og framkvæmdir sveitarfélaganna. Ég minni á, að það er fyrst með vegal. 1963 í tíð viðreisnarstjórnarinnar, sem það ákvæði kemur inn, að hluti af tekjum Vegasjóðs skuli renna til gatnagerðar í þéttbýli. Ég viðurkenni fyllilega, að það væri nauðsyn á því, að þetta mætti vera hærra í dag. Ég tel þó, að vandi í vegamálum sé stærstur í dreifbýlinu og að okkur, sem í þéttbýli búum, beri að standa að því að bæta þar úr, eftir því sem hægt er. Og ég tek alls ekki undir það, sem hv. 5. þm. Norðurl. v. sagði, að það væri gengið of langt í skattheimtu umfram nauðsyn. Nauðsynin er miklu meiri. Þessi skattheimta takmarkast ekki af því, að nauðsynin sé ekki miklu, miklu meiri í sambandi við okkar vegakerfi heldur en þetta.
Ég skal hvenær sem er styðja eðlilegar og sjálfsagðar brtt. um það, að þéttbýlissveitarfélögum verði gert betur kleift að leggja varanlegt slitlag á götur. En ég vil ekki gera það með því að klípa af því fjármagni, sem hér er verið að leggja til að verja fyrst og fremst til veganna í dreifbýlinu. En ég skal hvenær sem er ganga til samvinnu við þá Alþb.-menn um, að við tökum upp aðra stefnu eða aukum við þá, sem ákveðin var 1963, að hlutur þéttbýlisins verði meiri úr Vegasjóði, en það þýðir auðvitað hærri skattlagningu á umferðina.
Ég get ekki látið hjá líða að minnast á það, að ég er ákaflega andsnúinn 12. gr. frv., þ.e.a.s. þeirri heimild, sem þar er um að leggja sérstakt veggjald á tiltekna vegi eða brýr o.s.frv. Þetta hefur verið reynt. Það var horfið frá því. Ég held, að reynslan hafi þegar sannað, að þetta hentar ekki við íslenskar aðstæður. Ég geri ekki till. um þetta nú, en ég vænti þess, að hv. þm. láti sér þá reynslu, sem af þessu er fengin, verða sér til kenningar um það síðar meir, að þetta er ástæðulaust ákvæði í okkar lögum. Ég er hins vegar sannfærður um, að núv. ráðh. beita því ekki, en ég tel, að þetta ætti að hverfa út.
Þetta var, herra forseti, það, sem ég vildi fyrst og fremst vekja athygli á. Ég fagna því, ef þeir hv. Alþb.- menn eru raunverulega búnir að skipta um skoðun, að styðja þurfi betur við þéttbýlissveitarfélögin heldur en er. Það mun verða gerð veruleg tilraun til þess af hálfu núv. ríkisstj., og þá reynir á þeirra stuðning.