05.09.1974
Efri deild: 20. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í B-deild Alþingistíðinda. (256)
5. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Frsm. minni hl. (Stefán Jónsson):
Herra forseti. Nál. minni hl., okkar Eggerts G. Þorsteinssonar, er ekki komið úr vélritun, og ég tók ekki afrit af uppkasti. sem við skiluðum til vélritunar, þannig, að ég verð að láta við það sitja að gera grein fyrir frv. efnislega.
Frv. það, sem hér er til umr., var samið í tíð fyrrv. ríkisstj. upprunalega. Síðan hafa þau tíðindi gerst, að skattheimta er hafin af nokkru handahófi til þess að standa straum af ýmsum óskilgreindum útgjöldum vegna fastákveðinna, en þeim mun óljósari efnahagsráðstafana. Okkur í minni hl. iðnn. er ljóst, að Rafmagnsveitum ríkisins er full þörf á tekjuauka. En þar sem nú hefur verið ákveðið að leggja stórfellda skatta á almenning, sem ekki er ljóst enn, með hvaða hætti hann fær undir risið, og enn fremur þar sem 2 stiga hækkun á söluskatti er m.a. réttlætt með því, hversu válega horfi um fjárhag Rafmagnsveitna ríkisins, þá virðist okkur, að hér kunni að vera um tvísköttun að ræða til þess að mæta sömu útgjöldum. Við leggjum til í nál. okkar, að frv. verði vísað til ríkisstj. eða fellt að öðrum kosti.