05.09.1974
Efri deild: 21. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í B-deild Alþingistíðinda. (262)
Starfslok efri deildar
Forseti (Ásgeir Bjarnason):
Þetta mun vera síðasti fundur, sem verður haldinn í Ed. á þessu sumarþingi. Þess vegna vil ég nota tækifærið og þakka öllum hv. þdm. fyrir góða samvinnu og umburðarlyndi í minn garð sem forseta. Ég þakka varaforsetum d. og skrifurum ágæta aðstoð. Skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsliði þingsins þakka ég einnig samvinnu og ágæt störf. Ég óska hv. þdm. og fjölskyldum þeirra heilla og hamingju, og það er ósk mín og von, að við megum heilir hittast, þegar næsta þing hefst í haust.