05.09.1974
Neðri deild: 18. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í B-deild Alþingistíðinda. (270)

8. mál, söluskattur

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég skal ekki vera langorður í sambandi við það frv., sem hér liggur fyrir.

Hv. 3. þm. Reykn., sem hefur nýlokið máli sínu, ræddi mikið um þá þoku, sem hann sá á fjhn.-fundinum, sem við sátum síðasta fjhn.- fundi sennilega á þessu þingi. Ég get mjög vel skilið, að hann hafi séð mikla þoku. Hann er nýkominn heim af ráðstefnu og hefur haft fregnir af atburðum héðan, og þegar hann svo kemur til starfa, þá virðist honum þetta vera þokukennt og hann ratar ekki á rétta leið í þokunni, eftir því sem mér virtist áðan. En við skulum vonast til þess, að það birti til hjá hv. þm. og hann þurfi ekki að fara villur vegar í málum, þannig að það verði ekki þokan, sem villi um fyrir honum.

Hann gat þess, að hann hefði ekki fengið upplýsingar um, hvernig afkoma ríkissjóðs mundi verða um næstu áramót. Þeir, sem hafa verið hér og setið á þingi undanfarnar vikur, þm. úr öllum flokkum, hafa fengið skýrslur varðandi afkomu ríkissjóðs vegna þeirra stjórnarmyndunarviðræðna, sem átt hafa sér stað, og mér hefur virst miklu fremur, að menn væru farnir að ruglast í þessum skýrslum, ruglast í þeim tölum, sem búið væri að gefa í sambandi við afkomu ríkissjóðs um næstu áramót, þannig að ef hv. þm. hefði aflað sér þeirra gagna, sem fyrir liggja hjá þm. í þessu máli og hlýtt á þær umr., sem fram fóru við 1. umr. þessa máls, þá held ég, að það hefði ekki farið fram hjá neinum, að afkoma ríkissjóðs, miðað við óbreyttar ákvarðanir um næstu áramót verður sú, að halli ríkissjóðs verður upp á 930 millj. kr., ákaflega einfalt dæmi: 800 millj. vegna niðurgreiðslna, sem fyrrv. ríkisstj. tók ákvörðun um, en aflaði ríkissjóði ekki tekna á móti, 130 millj. vegna sjúkratrygginga eða halla á ríkisspítölunum, sem ríkissjóður hefur tekið á sig, eftir að síðasta skýrsla, sem hér hefur verið mikið til umr. og ég mun víkja að síðar, var gerð, þannig að halli ríkissjóðs verður að óbreyttum ákvörðunum 930 millj. kr. um næstu áramót, og af því eru 800 millj. vegna ákvörðunar fyrrv. ríkisstj. í sambandi við niðurgreiðslur.

Þegar ég nefndi niðurgreiðslur, hefur verið mjög um það spurt: Verður þeim hætt? Hvernig fer með niðurgreiðslur? Hví getum við ekki fengið svör? Eins og allir hv. þm. vita, eru þegar hafnar viðræður við aðila vinnumarkaðarins í sambandi við lausn efnahagsmálanna. Vitaskuld verða ákvarðanir í sambandi við niðurgreiðslur teknar í sambandi við þær viðræður og þær aðgerðir, sem kunna að verða teknar í sambandi við efnahagsástandið, og vonandi með þeim hætti, að hægt verði að bægja frá þeim horfum, sem eru á vinnudeilum næsta vetur, eins og hv. 8. landsk. þm. var að spá hér í ræðustól áðan. En við skulum vona, að honum verði ekki að þeim spádómi. Þess vegna verður, eins og ég sagði áðan og hér hefur komið skýrt fram, staða ríkissjóðs um næstu áramót að óbreyttum ákvörðunum halli upp á 930 millj. Í framsöguræðu minni ræddi ég um 1000 millj. kr. halla hjá ríkissjóði, og held ég, að ekki verði sagt, að ég hefði farið með rangt mál, þó að skeiki 70 millj., því að vel gæti svo farið, að niðurgreiðslur yrðu ekki 800, heldur kannske 830–840 millj. kr.

Ég vék að því í ræðu minni, að vandi ríkissjóðs var töluvert miklu stærri en upp á einn milljarð, hann væri í raun og veru nærri 3 milljarðar, ef engar breytingar yrðu gerðar á þeim ákvörðunum, sem þegar hafa verið teknar.

Það er búið að skera niður vegaframkvæmdir um hundruð millj. Samt sem áður er Vegasjóður í þrengingum upp á 1000 millj. kr. Verði ekki teknar ákvarðanir í sambandi við vegamálin og haldið í horfinu, kostar það ríkissjóð einn milljarð. Gert hefur verið ráð fyrir því að leysa vanda Vegasjóðs með lántöku upp á 500 millj. kr., en mér er sagt í morgun, að mjög óvist sé um þá lántöku, ef hún muni fáanleg, þá sé það með ákaflega óhagstæðum kjörum. Ef svo færi, að tækist að útvega lán upp á 500 millj. kr., verður ríkissjóður að sjá fyrir hinum 500 millj., nema tekin sé ákvörðun um að fresta framkvæmdum, og vel má vera, að svo verði. En vandamálið er engu að siður upp á einn milljarð.

Rafmagnsveitur ríkisins eru með halla á þessu ári, 1974. Samkv. síðustu útreikningum er sá halli talinn vera upp á 400 millj. kr. Ég geri ekki ráð fyrir því, að reiknað sé með, að verðjöfnunargjald það, sem kemur inn á þessu ári og næsta ári, fari til þess að jafna halla ársins 1974, þannig að það muni lenda verulega á ríkissjóði að finna lausn á þessu vandamáli, hvort heldur það verður með útlánum úr ríkissjóði eða einhverjum öðrum hætti.

Þá var rætt um og kom fram í ræðu frsm. n., að önnur lánsfjáröflunarvandamál væru upp á 355 millj., þannig að heildarvandinn er 2685 millj. kr. eða nærri 3 milljarðar, eins og ég gat um í minni framsöguræðu.

Það var minnst á það hér áðan, að hæstv. fyrrv. fjmrh. reiknaði þetta dæmi út frá öðrum forsendum en ég, en aðalatriðið væri, eins og hv. frsm. komst að orði, að við kæmumst að sömu niðurstöðu. Það er alltítt, að þegar menn reikna, þá reikna þeir með tveim mismunandi aðferðum, en séu báðir með réttar aðferðir, komast þeir að sömu niðurstöðum. (Gripið fram í.) Tölurnar og niðurstaðan voru þær sömu, en forsendurnar, sem gefnar voru, voru með öðrum hætti.

Hv. þm. Karvel Pálmason, 5. þm. Vestf., vék að einni þeirri skýrslu, sem gefin hefur verið um stöðu ríkissjóðs í þeim umr., sem fram hafa farið á milli stjórnmálaflokkanna undanfarnar vikur, skýrslu dags. 11.8.1974. Í þeirri skýrslu kemur fram, miðað við að niðurgreiðslur 4 seinustu mánuðina verði 400 millj., að þá verði halli ríkissjós upp á 400 millj. kr. Þegar engin ákvörðun hefur verið tekin um breyttar niðurgreiðslur, liggur í augum uppi, að við leggjum saman 400 og 400 og fáum þá út 800 millj. kr. halla. Síðan gat ég um 130 millj. kr. greiðslu úr ríkissjóði, sem hefur komið til eftir þessa skýrslu, og niðurstaðan verður nákvæmlega sú sama hjá hv. þm. og mér, 930 millj. kr. halli á ríkissjóði, miðað við óbreyttar niðurgreiðslur, en um breyttar niðurgreiðslur hefur ekki nein ákvörðun verið tekin. Í skýrslunni 11. ágúst er sú forsenda gefin, að niðurgreiðslurnar breytist 1. sept. En 1. sept. er kominn og þær hafa ekki breyst. Við skyldum þá gefa okkur þá forsendu, að niðurgreiðslurnar breyttust 1. okt. Hvað gerist þá? Þá bætast 100 millj. kr. við þann halla, sem kemur fram í þessu reikningsdæmi. Hann verður 500 millj. + 130, þannig að í hans dæmi ætti að koma út 630 millj. kr. halli, miðað við þær forsendur, að niðurgreiðslur breytist 1. okt., þannig að þær verði ekki nema helmingur á móti því, sem þær voru ákvarðaðar. Eftir allt komumst við því allir þrír, hæstv. fyrrv. fjmrh., hv. 5. þm. Vestf. og ég í mínu dæmi, að sömu niðurstöðu: Miðað við óbreyttar niðurgreiðslur verður halli ríkissjóðs 31. des. 930 millj. kr.

Þá vék hv. þm. að því, að það væri saga til næsta bæjar að leysa vanda ríkissjóðs, sem hann taldi 400 millj., miðað við skjalið 11. ágúst, — hann er enn í ágústmánuði, 11. ágúst, það er kominn sept. núna, og hann er enn að ræða um stöðuna, sem honum var gefin upp, þegar hann tók þátt í stjórnarmyndunarviðræðum, — og hann orðaði það þannig, að það væri saga til næsta bæjar, ef ætti að fara að leysa slíkan halla með 2% söluskattsstigahækkun, sem ætti svo að gilda áfram. En á þessu skjali, sem hv. þm. vitnaði hér til, er dæmið örlitið meira. Þar er líka tekið, hver verði útgjöld ríkissjóðs miðað við niðurgreiðsluákvörðunina og miðað við það, að 1. sept. verði niðurgreiðslurnar lækkaðar um helming. Þá kemur fram, að halli ríkissjóðs 1975 vegna þessara ákvarðana verður 1200 millj. kr. Ég er honum alveg sammála, að það væri að mínum dómi ekkert vit í því að fara að bæta við og hækka söluskatt til að leysa vandamál ríkissjóðs, sem væri eingöngu árið 1974. En það liggur í augum uppi, að vandi ríkissjóðs verður líka 1975 vegna þeirra ráðstafana, sem fyrrv. ríkisstj. gerði í sambandi við þessi mál. Og sá vandi er samkv. þessu blaði upp á 1200 millj. kr. Að vísu gefa 2 söluskattsstig ríkissjóði 1800 millj. árið 1975, en þá má benda hv. þm. á það, að þær greiðslur almannatrygginga, sem komu á þessu ári, komu 1. apríl 1974, þannig að gera verður ráð fyrir heils árs greiðslu árið 1975. Það má ennfremur benda á, að verðlagsuppbætur voru greiddar á laun opinberra starfsmanna frá 1. mars 1974, en þær koma á heilsársgrundvelli að sjálfsögðu 1975. Síðan má benda á, að töluverðar greiðslur koma vegna sjúkratrygginga á árinu 1975. Þessar upphæðir samanlagt verða eitthvað á þriðja milljarð kr., og fyrir þessu hefur ekki verið séð.

Ef við værum að leysa vandamál ársins 1974 eingöngu, skil ég mjög vel sjónarmið hv. þm. En þar sem verið er að leysa vandamálið til frambúðar og þær ákvarðanir, sem við erum að glíma við í dag, eru teknar af fyrrv. ríkisstj., þá verður þessi hv. þm. að sætta síg við þá staðreynd, að þennan vanda hafði sú ríkisstj. ekki leyst, vegna þess að hún gerði ráð fyrir, að það mundi verða gert, þegar kæmi til þess stjórnarsamstarfs, sem vitað var, að mundi koma. Hvert það var, vissu hins vegar þm. ekki, þegar þessar ákvarðanir voru teknar:

Hv. 3. þm. Reykv., hæstv. fyrrv. iðnrh., vék að því hér í ræðu í morgun, að hann gæti ekki fellt sig við, að það væri verið að innheimta tvisvar sinnum eða tryggja fjárhag Rafmagnsveitna ríkisins með tvenns konar gjöldum, annars vegar hækkun verðjöfnunargjalds og hins vegar hækkun söluskatts. Þarna er mjög mikill misskilningur hjá hv. þm. Við erum í dag með halla Rafmagnsveitna ríkisins 1974, sem einhvern veginn verður að leysa á þessu ári. Við fáum í ríkissjóð aðeins 300 millj. kr., og það dugir ekki til þess að leysa halla Rafmagnsveitna ríkisins 1974. Verðjöfnunargjaldið er fyrst og fremst hugsað út frá því, að Rafmagnsveitur ríkisins safni ekki slíkum hala í sínu m rekstri, eins og gert hefur verið. Ég er hv. þm., hæstv. fyrrv. ráðh. sammála um, að þar á þurfti að gera bragarbót. Hvort það dugir, það sem nú hefur verið lagt til í sambandi við verðjöfnunargjaldið, það skal ég ekki segja, það verður tíminn að leiða í ljós. En þegar sagt er, að það sé verið að leggja á tvenns konar gjöld til að leysa sama vandamál, þá er um að ræða misskilning, sem einnig kom fram hjá hv. 5. þm. Vesturl.

Í grg. er vikið að því, að hver greiðslustaða ríkissjóðs við Seðlabankann er og megi m.a. rekja hana til þess, að ríkissjóður hefur orðið að taka á sig greiðslur vegna Rafmagnsveitna ríkisins. Það er búið að gera skuldbindingar á vegum Rafmagnsveitna ríkisins í sambandi við byggðalínuna upp á 65 millj. kr. Mér er ekki kunnugt um, að samþykki fyrir þessum skuldbindingum sé til í fjmrn. nema sem samsvarar 25 millj. kr. Hér er um að ræða t.d. skuldbindingu um 40 millj. umfram það, sem rn. hefur samþ., og má e.t.v. rekja eitthvað af þeim fjárhagsvanda, sem Rafmagnsveitur ríkisins hafa við að glíma, til slíkra ákvarðana. En við skulum vona, að það frv., sem hv. þm. lagði fram og nú er til meðferðar í Ed., verði þar samþykkt og þannig leysist töluvert það vandamál, sem Rafmagnsveitur ríkisins hafa haft við að glíma.

Í sambandi við þær tölur, sem hv. 5. þm. Vestf. ræddi hér um, frá 11. ágúst, þá verð ég aðeins að geta þess, að honum fannst eðlilegt í þessum útreikningum, að tekjur af gengisbreytingu yrðu áætlaðar miklu hærri en þetta skjal sagði til um. Það mátti hugsa sér breytingu á þeirri tölu, þó að hann stæði fastur á fyrstu tölunni í þessu skjali, niðurgreiðslum ársins 1974, 400 millj. kr. Honum var ekki úr að aka, jafnvel þótt hann gerði sér grein fyrir því, að niðurgreiðslurnar vegna þessara ákvarðana verða í sept. 200 millj. kr., en ekki 104 millj. Ekki mátti heldur taka með í hans reikningsdæmi 130 millj. kr. útgjöld ríkissjóðs, sem orðið hafa eftir 11. ágúst. En það var sjálfsagt að breyta gengishagnaði af gengisbreytingunni og hafa hann eins háan og mögulegt er. Ef við á annað borð viljum byggja tölur okkar á útreikningi sérfræðinga, verðum við að halda okkur við hverja og eina tölu og taka síðan mið af því, sem breytist frá því að þær eru útreiknaðar. Þessar tölur voru reiknaðar út frá þeirri gengisfellingu, sem rætt var um meðal forustumanna þingflokkanna í sambandi við stjórnarmyndun, og dæmið var sett upp eins og hv. þm. var ætlað að samþykkja það, þegar hann stóð í stjórnarmyndunartilraunum, og hef ég ekki heyrt um, að hann hafi haft neitt við það að athuga.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess, herra forseti, að fjölyrða meir um þetta mál. Það kemur hér fram, sem ég sagði við 1. umr., að vandi ríkissjóðs verður um næstu áramót, ef ekkert er að gert, 930 millj. kr. Hins vegar er heildarvandamál ríkissjóðs og stofnana ríkisins tæpir 3 milljarðar, og við það vandamál verður ríkisstj. að glíma.