05.09.1974
Neðri deild: 18. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í B-deild Alþingistíðinda. (271)

8. mál, söluskattur

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Ég þarf nú ekki að lengja þessar umr. um frv. sjálft. Mér finnst, að þær röksemdir, sem fram hafa komið með og móti, séu orðnar ákaflega skýrar. Mér sýnist, að við, sem teljum, að það séu ekki fullnægjandi rök fyrir því að flytja þetta frv., við stjórnarandstæðingar og einn af þm. stjórnarinnar a.m.k., sem hefur gert grein fyrir því opinberlega, hv. þm. Jón Skaftason, — við höfum ekki fengið neinar fullnægjandi skýringar á því, að það sé ástæða til að flytja þetta frv. Þess vegna sé ég ekki ástæðu til að fara að munnhöggvast neitt frekar um það. En það er eitt atriði, sem mig langaði til að spyrja um í tilefni af því, sem hér hefur komið fram.

Hv. þm. Þórarinn Þórarinsson reyndi að samræma málflutning tveggja hæstv. ráðh., Halldórs E. Sigurðssonar og Matthíasar Á. Mathiesen, með því að segja, að Halldór hefði talað um innri vandann og Matthías um ytri vandann og hæstv. ráðh. Halldór væri eins konar innri fjmrh. og hæstv. ráðh. Matthías ytri fjmrh. Ég held, að það hafi verið þegar hann var að mæla fyrir munn ytri fjmrh., sem hann komst svo að orði, að eitt af vandamálum ríkisins væri það, að afla þyrfti 110 millj. kr. að láni til byggðalinu, sem að vísu verður ekki framkvæmd á þessu ári. Ég skrifaði þetta hjá mér, og ég hygg, að hv. þm. hafi sagt þetta. Og þetta þykja mér allmikil tíðindi.

Á síðasta þingi var samþ. að fela ríkisstj. að afla 300 millj. kr. á þessu ári til þess að hefja framkvæmdir á byggðalínu milli Suðurlands og Norðurlands. Ég sem iðnrh. gerði að sjálfsögðu ráðstafanir til þess, að þetta verk væri hafið af fullum krafti. Ég setti í það n., og hún hefur unnið sítt verk mjög vel. Hún hefur skipt því niður í tiltekna áfanga, og hún hefur gert pantanir á staurum og öðrum þörfum til þessa verkefnis. Þessar pantanir liggja nú hér á hafnarbakkanum, og áætlun mín og n. var sú, að þetta verk yrði hafið 15. sept., og það var ekkert því til fyrirstöðu af hálfu iðnrn. eða þessarar n., að hægt væri að hefja þetta verk 15. sept. En það verður að hefja þetta verk einmitt núna, ef það á að vera von til þess að koma á tengingu frá Andakílsárvirkjun og norður að Laxárvatni nm áramótin 1975–1976, þannig að hægt sé að flytja raforku, sem komi að notum veturinn 1975– 1976. Ef þetta verk verður ekki unnið nú í vetur, eins og áformað var, þá þýðir það, að það verður mjög alvarlegur orkuskortur í Norðurl. v. þennan vetur, sem ég var að nefna, og ekki aðeins orkuskortur, heldur óhemjulegur tilkostnaður í keyrslu á dísilstöðvum. Ég tel, að það hvíli ákaflega þung ábyrgð á mönnum, sem kunna að ætla sér að tefja þessa framkvæmd. Þess vegna vil ég fá um það greið svör, hvort það sé ákveðið innan ríkisstj., að ekki verði ráðist í þessar framkvæmdir á þessu hausti og þessu verkefni frestað, þannig að raforkuflutningur komi ekki að gagni fyrr en heilu ári síðar en áformað var. Ég tel þetta vera ákaflega veigamikið mál. Í tilefni af því, sem hæstv. fjmrh. ytri sagði hér áðan um ráðstafanir mínar, þá var aldrei tekin um það nein ákvörðun í fyrrv. ríkisstj. að hagnýta ekki þessar heimildir Alþ. um að verja 300 millj. til þessara þarfa, þannig að það var í fullu samræmi við ákvarðanir Alþ., sem ég hef gert þær ráðstafanir, sem ég gerði, til þess að hægt yrði að hefja þetta verk núna um miðjan sept. En mér finnst það vera mjög alvarlegt mál, ef það er rétt skilið hjá mér, að í orðum hv. þm. Þórarins Þórarinssonar hafi það falist, að það ætti ekki að vinna neitt að þessu verkefni á þessu ári.

Fyrst ég er farinn að spyrja, þá er kannske best, að ég bæti annarri spurningu við til hæstv. fjmrh. Það hefur lengi verið stefna Alþ. að fara sér hægt í hækkun söluskatts, vegna þess að þegar við gerðum samning um EFTA-aðild, þá var alltaf um það talað, að niðurfellingu á tollum yrði mætt með hækkun á söluskatti og þarna yrði að vera um þó nokkur söluskattsstig upp á að hlaupa, svo að söluskattur á Íslandi kæmist ekki upp úr öllu valdi, þegar þessi samningur væri kominn til fullra framkvæmda. Ég vil spyrja hæstv. fjmrh. um það, hvernig hann hugsi sér, að haldið verði á þessu máli. Hvað jafngildir sú tollalækkun, sem leiðir af EFTA-samningnum, mörgum söluskattsstigum? Og hvað yrði þá söluskatturinn orðinn hár, þegar þessi samningur er kominn til fullra framkvæmda, hvað yrði hann þá mörg prósent? Hvernig yrði hann þá í samanburði við þann skatt, sem tíðkast í nágrannalöndum okkar? Ég held, að hæstv. fjmrh. verði að gera sér það ljóst, að þegar hann er að taka ákvarðanir um atriði eins og þessi, þá er hann ekki aðeins að glíma við tímabundin vandamál, einhver hundruð millj., sem vanti hér og þar, heldur er hann líka að móta stefnu, sem hefur áhrif á ákvarðanir og getu um mörg ár framvegis.