05.09.1974
Neðri deild: 18. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í B-deild Alþingistíðinda. (277)

10. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis

Svava Jakobsdóttir:

Herra forseti. Svo sem fram kemur í nál. á þskj. 49, legg ég til, að frv. þetta verði fellt. Rökstuðningur ríkisstj. fyrir frestun á samkomudegi reglulegs Alþ. er sá, að ekki gefist nægilegur tími til málatilbúnaðar fyrir 10. okt., þar eð ný ríkisstj. hefði ekki verið mynduð fyrr en 28. ágúst. Þessi rökstuðningur sýnir það eitt, að stjórnarflokkarnir hafa ekki komið sér saman um nein þau mál, sem hæstv. fyrrv. forsrh., Ólafur Jóhannesson, lagði þó ríka áherslu á, að yrðu að vera fullfrágengin við stjórnarmyndun, þegar hann átti í vinstri viðræðunum. Við sjálfstæðismenn hefur hann auðsjáanlega haft annan hátt á.

Það, sem einkennt hefur störf Alþ., síðan þessi ríkisstj. var mynduð, er frestun á frestun ofan. Heita má, að hver einasti þingfundur hafi hafist með frestun, vegna þess að stjórnarflokkarnir hafi ekki verið búnir að koma sér saman um málin. Það er því ekki óeðlilegt, þótt ríkisstj. telji hagkvæmara fyrir sig að draga allar þessar smáfrestanir saman í eina stóra. Þeir eiga eftir að æfa sig betur í þeirri íþrótt, sem hæstv. fjmrh. lýsti svo spaklega hér áðan, að komast að sömu niðurstöðu og tölum eftir mismunandi aðferðum og forsendum.

Hitt er þó alvarlegra, að á þessu tímabili, þessum tveim mánuðum, sem fram undan eru, er, eins og allir vita, von stórfelldra efnahagsaðgerða, sem mjög munu snerta hag launafólks í landinu. Allt bendir til, að ríkisstj. hyggist framkvæma. þessar efnahagsaðgerðir með brbl. og reyna þannig að koma í veg fyrir áhrif þingsins á mótun þeirra. Það er ljóst, að ríkisstj. vill losa sig við Alþ., ekki eingöngu vegna stjórnarandstöðunnar, heldur vegna stjórnarþm. einnig. Fleiri en einn stjórnarþm. hafa sýnt það, að ekki hefur verið haft samráð við þá um málatilbúnað, áður en frv. voru lögð á borð þm. Ég hlýt því að lýsa furðu minni á því, að stjórnarþm. skuli láta hafa sig til að samþykkja það frv., sem hér liggur fyrir.

Þessa tilhneigingu til að sniðganga Alþ. lít ég og flokkur minn mjög alvarlegum augum. En þessarar tilhneigingar gætti þegar í síðustu viku. Þá var leitað eftir áliti þingflokka að undirlagi hæstv. forsrh., að ég hygg, á því, að þing væri sent heim og þau frv., sem hér hafa verið samþ., yrðu afgreidd með brbl. Að vísu mun hæstv. forsrh. hafa séð að sér eða varkárari menn í hans þingflokki haft vit fyrir honum, þegar ekki dró til úrslita í þessu máli. En nú hyggst hæstv. forsrh. bæta úr því með till. um frestun á samkomudegi reglulegs Alþ. Við Alþb.-menn erum andvígir þessu á þeim forsendum, að við teljum þetta tilræði við þingræði og tilraun til að koma í veg fyrir, að fulltrúar Alþb. á þingi geti gegnt því hlutverki sínu að gæta hagsmuna launafólks í landinu á örlagaríkum tímum.