18.07.1974
Sameinað þing: 1. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í B-deild Alþingistíðinda. (4)
Rannsókn kjörbréfs
Aldursforseti (Guðlaugur Gíslason):
Fundarstaðir fyrir kjördeildir verða sem hér segir: 1. kjördeild hér í fundarsal neðri deildar, 2. kjördeild í fundarsal efri deildar og 3. kjördeild í flokksherbergi Sjálfstæðisflokksins.
Ég vil biðja hv. þm. Axel Jónsson að kalla saman 1. kjördeild, hv. þm. Benedikt Gröndal að kalla saman 2. kjördeild og hv. þm. Ásgeir Bjarnason að kalla saman 3. kjördeild. Verður gert hlé á fundinum, meðan kjördeildir starfa. — [Fundarhlé.]
Þá verður fundi fram haldið í Sþ. og verða teknar fyrir tillögur kjördeilda um kjörbréf. Ef enginn mælir því mót, vil ég gefa frsm. 1. kjördeildar, hv. 10. landsk. þm., Axel Jónssyni, fyrstum orðið.