20.08.1974
Neðri deild: 6. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í B-deild Alþingistíðinda. (61)

2. mál, viðnám gegn verðbólgu

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Það er auðséð á því nál., sem útbýtt hefur verið frá hv. fjh: og viðskn., og þeim brtt., sem n. samþ. í gær, að í burðarliðnum er ný ríkisstj. á Íslandi, ríkisstj. Framsfl. og Sjálfstfl. Það fer vart á milli mála, að það samkomulag, sem hér hefur orðið á milli fulltrúa Framsfl. og Sjálfstfl. í hv. fjh.- og viðskn., er liður í þeim tilraunum til stjórnarmyndunar, sem nú eru á döfinni. Þær ráðstafanir, sem hér er um að ræða, þ.e. brbl. frá því í vor um tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu, sem áttu að falla úr gildi í lok þessa mánaðar, eru að sjálfsögðu aðeins liður, aðeins þáttur í miklu viðtækari ráðstöfunum, sem öll þjóðin mun viðurkenna og allir ábyrgir stjórnmálamenn munu og viðurkenna, að eru nauðsynlegar. Það var tilgangurinn með þessum tímabundnu ráðstöfunum til viðnáms gegn verðbólgu að gefa hugsanlegum nýjum þingmeirihluta, sem myndast kynni eftir kosningarnar, tækifæri til að takast á við þann mikla vanda, sem fyrrverandi ríkisstj. hefur skapað í efnahagsmálum með algjöru stjórnleysi sínu á grundvallarþáttum efnahagsmálanna. Það lá ljóst fyrir í allt vor og hefur raunar legið ljóst fyrir meginhlutann af stjórnartímabili — ja, ég veit ekki, hvort ég á að segja núv. eða fyrrv. ríkisstj., best að segja ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar, að hún hefur engin tök haft á stjórn efnahagsmálanna. Því er svo komið sem komið er og rækilega var rætt í kosningunum og ég skal ekki fjölyrða meira um í þessu sambandi.

Það er rétt, að komi alveg skýrt fram, að Alþfl. hefur gert sér þess fulla grein, að eftir þá dæmalausu óstjórn, sem verið hefur í íslenskum efnahagsmálum undanfarin 3 ár, hlaut að vera nauðsyn víðtækra efnahagsráðstafana. Það kom skýrt fram af hálfu Alþfl. í þeim viðræðum, sem hann tók þátt í undir forustu núv. forsrh., Ólafs Jóhannessonar, að Alþfl. gerir sér þess fulla grein, að víðtækra efnahagsráðstafana er þörf, ef bæta á fyrir þau stórkostlegu mistök, sem gerð hafa verið í stjórn efnahagsmála undanfarin 3 ár. En þessi brbl., sem ætlað var að gilda aðeins út ágúst, fjölluðu í raun og veru aðeins um þátt þessara mála, þau veittu vissan frest til ágústloka, enda var reiknað með því, að tíminn frá kosningum, til ágústloka mundi duga til þess að mynda samhentan meiri hluta á Alþingi um enn þá viðtækari efnahagsráðstafanir.

Nú hefur hins vegar komið í ljós, að þeir flokkar, sem nú eru að reyna að mynda ríkisstj., eru þó ekki samstæðari en svo, að skoðanir eru ekki samstæðari en svo, að þeir meta ástandið í dag eða mátu það í gær þannig, að þeim muni ekki duga tíminn til loka þessa mánaðar til þess að koma sér niður á, hverjar frambúðarráðstafanir séu nauðsynlegar. Þannig stendur á þessu bráðabirgðasamkomulagi. Hér kemur eitt bráðabirgðasamkomalagið ofan á annað, ein bráðabirgðaráðstöfunin ofan á aðra þ.e. að fá 4 vikna frest til viðbótar til þess að reyna að koma sér saman um, hvernig hægt sé að koma viti í vitleysuna, sem ríkt hefur í íslenskum efnahagsmálum undanfarin ár.

Það kom fram á fundi í fjh.- og viðskn. í gær, að ríkisstj. virtist ekki hafa tekið afstöðu til þriggja mjög mikilvægra atriða í þessu sambandi, sem sagt hvort niðurgreiðslum þeim, sem ákveðnar voru í vor, einnig til bráðabirgða, skyldi haldið áfram, hvort niðurgreiðslum á olíuverði skyldi haldið áfram og hvort hækkun á búvöruverði skyldi eiga sér stað 1. sept. Þetta lá ekki fyrir í gær, þegar nefndarfundurinn var haldinn. Nú hins vegar svarar hæstv. forsrh. því til, að niðurgreiðslum muni verða haldið áfram, bráðabirgðaniðurgreiðslunum muni verða haldið áfram, þangað til endanleg ákvörðun hafi verið tekin um heildarráðstafanir í efnahagsmálum. Hann lýsir því einnig yfir, að niðurgreiðslum á olíuverði muni einnig verða haldið áfram, þangað til samkomulag hafi orðið á milli Framsfl. og Sjálfstfl. um heildarráðstafanir. En svo lýsir hann því yfir, þingheimi til mikillar undrunar og eflaust þjóðinni allri, sérstaklega launþegum, að það sé ráð fyrir því gert, að hækkun á búvöruverði skuli koma til framkvæmda 1. sept., þó að gert sé ráð fyrir því, að kaupgjald verði þá áfram bundið í einn mánuð til viðbótar. M.ö.o.: það virðist vera búið að taka ákvörðun um, að launþegar skuli þola bótalaust í einn mánuð til viðbótar hækkum á landbúnaðarverði, sem að grunni til er tæplega 10%. Hvað hefur gerst frá því í gær og þangað til hæstv. forsrh. tekur þessa ákvörðun núna? Það hefur auðvitað gerst, að haldinn var fundur í hæstv. ríkisstj. í morgun, og þar hlýtur þessi ákvörðun að hafa verið tekin, enda segir svo í 1. gr. þeirra brbl., sem enn eru í gildi og gilda til ágústloka, með leyfi hæstv. forseta, — fyrstu setningarnar eru þannig: „Fram til 31. ágúst má ekki hækka verð vöru eða þjónustu eða endurgjald af fasteign eða lausafé frá því, sem var 22. maí 1974, nema að fengnu samþykki réttra yfirvalda, og skulu þau ekki leyfa neina hækkun, nema þau telji hana óhjákvæmilega. Leyfi til hækkunar tekur þó ekki gildi, fyrr en það hefur hlotið staðfestingu ríkisstj.

Það er m.ö.o. ríkisstj., sem samkvæmt brbl. hefur úrslitavald um verðhækkanir, og það er hún, sem á að dæma um, hvort þær séu óhjákvæmilegar eða ekki. Nú er það alkunna, að til verðlagsyfirvalda og ríkisstj. hafa borist fjölmargar beiðnir frá ýmsum, sem annast rekstur, um hækkun á útsöluverði vegna sannanlegrar hækkunar á rekstrarkostnaði. Þeim beiðnum hefur yfirleitt verið hafnað. Miklum meiri hluta af slíkum beiðnum hefur veríð hafnað. En hér berst beiðni frá aðila, sem framleiðir vörur, sem eru einn meginþáttur í neyslu alls almennings, neyslu launþega, beiðni um allt að 20% hækkun á verði allra landbúnaðarvara. Virðist ríkisstj. í morgun hafa samþykkt að verða við þeirri beiðni. M.ö.o.: einu vörurnar, sem eiga og mega hækka að fullu í samræmi við aukinn kostnað, eru íslenskar landbúnaðarvörur, sem eru aðalfæðutegund íslensku þjóðarinnar, íslenskra neytenda.

Það verður ekki hjá því komist að spyrja, hvort ríkisstj. hafi verið sammála um þessa afgreiðslu í morgun. Að ríkisstj. standa enn 3 flokkar, Framsfl., Alþfl. og SF. Það er nauðsynlegt, að þing og þjóð fái að vita: Var ríkisstj. á einu máli um þessa ákvörðun? Var hún á einu máli um það, að allar íslenskar landbúnaðarvörur skuli hækka um 20% 1. sept. n.k. og launþegar skuli bera þá hækkun bótalaust í heilan mánuð, meðan þessir þrír flokkar eru enn að reyna að koma sér saman um, hverjar skuli verða frambúðarbráðabirgðaráðstafanir í efnahagsmálum. Auðvitað verða það enn bráðabirgðaráðstafanir, sem þessir flokkar koma sér saman um, jafnvel þó að þeim verði ætlað að gilda í eitt ár eða svo, jafnvel þó að þar verði tjaldað til eins árs eða svo. Spurning mín er sem sagt sú: Var ríkisstj. sammála um þessa ákvörðun, sem hlýtur að hafa verið tekin í morgun? Á því á þing og þjóð rétt að vita.

Síðustu orð mín skulu vera þau að segja, að hvernig svo sem hefur verið um samkomulag innan þeirrar ríkisstj., sem er að fara frá, þá er auðséð, að þetta er eitt fyrsta samkomulagið, sem Framsfl. og Sjálfstfl. gera með sér, og um það held ég, að öll þjóðin muni segja, að ill var hin fyrsta ganga.