12.11.1974
Sameinað þing: 6. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í B-deild Alþingistíðinda. (101)

297. mál, virkjun Bessastaðaár í Fljótsdal

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Á síðasta þingi fjölluðum við nokkuð um orkuvandamál, bæði á Austfjörðum og á Norðurlandi. Þá var samþ. frv. um heimild til 55 mw. virkjunar við Kröflu og í meðförum Alþ. var ákveðið að í sambandi við þá virkjun skyldi lögð tengilína til Austurlands þannig að austfirðingar ættu sama kost á orku frá þessari virkjun, og norðlendingar. Ég vil spyrja hæstv. iðnrh. að því, hvort þetta frv., sem hér liggur fyrir, feli í sér nokkra breytingu á þeirri afstöðu sem þá var tekin. Það var þegar hafist handa um að hagnýta þá heimild, sem Alþ. gaf, og lögð áhersla á að flýta þessum framkvæmdum eins og kostur var á. Væri fróðlegt að vita hvort það er ekki ætlun núv. ríkisstj. að samtengingin frá Kröfluvirkjun til Austfjarða komi til framkvæmda strax og farið er að framleiða orku frá Kröfluvirkjun, að þetta frv. feli það ekki í sér að það sé ætlunin að þessir staðir verði einangraðir hvor frá öðrum eins og verið hefur.