19.12.1974
Efri deild: 33. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1211 í B-deild Alþingistíðinda. (1018)
4. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Þetta frv. var lagt fram í byrjun þings í Nd., en hlaut ekki endanlega afgreiðslu þaðan fyrr en nú fyrir nokkrum mínútum. Þetta frv. fjallar fyrst og fremst um breytingar, sem hefur þurft að gera innan hinna ýmsu greina sjávarútvegsins víð þær aðgerðir, sem samþ. voru í lok síðasta þings með nýrri skráningu og gengi íslensku krónunnar. En ef ekki eru gerðar hliðarráðstafanir, þá eðlilega kemur gengishagnaðurinn á útfluttar sjávarafurðir á síðasta stigi og þá til þeirra sem selja þær úr landi, en hagur þeirra, sem afla þeirra og vinna á hinum ýmsu stigum, verður þá verri eftir gengisbreytinguna nema gerðar séu ráðstafanir til þess að jafna á milli hinna ýmsu greina.
Það fer ekki á milli mála að hagur útgerðar almennt var mjög bágborinn miðað við hin svokölluðu júlí-skilyrði og þær upplýsingar sem Þjóðhagsstofnunin hefur lagt fram, og gengisbreytingin var liður í því að bæta hag þeirra greina í sjávarútvegi sem verst voru settar. Þó skal ég taka það fram, að ég tel að það hafi ekki verið gert nægilega með þessu frv.
Frv. þetta felur í sér í fyrsta lagi, það grípur inn á verksvið Verðlagsráðs sjávarútvegsins, sem má auðvitað alltaf gagnrýna og hefur verið gagnrýnt, að miða við 11% hækkun á almennu fiskverði. En það var gert af knýjandi nauðsyn vegna þess að verðfall hafði orðið framan af árinu og jafnframt þurfti að gæta samræmis í launahækkunum, þannig að miðað við þær aðgerðir aðrar, sem gerðar voru af ríkisstj. og lagðar hafa verið fyrir Alþ., var ekki talið fært að fara út í frekari fiskverðshækkun þessa mánuði til áramóta. En þrátt fyrir það að kauphækkanir urðu mjög verulega á fyrstu mánuðum þessa árs, þá varð engin breyting á fiskverði frá áramótum og til þess tíma að þessi lög taka gildi og Verðlagsráð sjávarútvegsins hafði gengið frá fiskverði. Það má því segja að fiskverðshækkun hafi verið mun minni en hin almenna kauphækkun í landinu varð á fyrstu mánuðum ársins. En þá verðum við einnig að taka með í reikninginn að almenn kauphækkun varð ekki á árinu á undan,en þá urðu einnig töluverðar fiskverðshækkanir.
Mér er fyllilega ljóst að afkoma sjómanna, sérstaklega á minni báta flotanum, er engan veginn nægilega góð og þolir ekki samanburð við margar greinar í landi á þeim verðþenslutímum sem verið hafa á s.l. ári og þetta ár. Hins vegar held ég að enginn geti deilt um það, að afkoma sjómanna á skuttogurum er góð og það er ekki ástæða til þess að kvarta undan þeirri fjárhagslegu afkomu sem þeir menn hafa. En það er ekki mögulegt að gera þar greinarmun á með löggjöf, að hækka mismunandi fisk, eftir því hvort það er bátur eða togari sem veiðir hann. Á sama tíma og þetta gerist er afkoma skuttogaranna sú alversta samkv. því yfirliti og upplýsingum sem Þjóðhagsstofnun lagði fram á sínum tíma.
Þessar ráðstafanir fela í sér þær breytingar að stofnaður er sérstakur olíusjóður og tekjur hans eru af sérstöku útflutningsgjaldi, sem er 4% af fob-verði útfluttra sjávarafurða annarra en saltfisks, skreiðar og þeirra afurða, sem koma frá hvalveiðum, selveiðum og hrognkelsaveiðum og hins vegar 5.5% útflutningsgjald af fob.- verði útflutnings saltfisks og skreiðar. Mismunurinn, sem þarna er, er vegna þess að þessar greinar, einkum saltfiskurinn, hafa haft langbesta afkomu á þessu ári, og var talið eðlilegt að taka mun hærra gjald af honum en af öðrum greinum sjávarútvegsins samkv. till. þeirra manna sem um þetta fjölluðu.
Nú vitum við ekki, hversu lengi afkoma er góð í þessari grein eða hinni, en það verður að ráðast. Frá því að þessi brbl. voru sett hefur verið um versnandi stöðu að ræða, sérstaklega hjá hraðfrystiiðnaðinum, og heldur lakari framleiðslu á sviði saltfisks og yfirleitt flestra greina sjávarútvegsins.
Tilgangurinn með olíusjóði er að greiða niður olíu til fiskiskipanna úr 14.30 kr., sem olíuverðið er, í 5.80 kr., sem útgerðin greiðir sjálf. Í raun og veru er hér um að ræða framhald aðgerða sem teknar voru upp um síðustu áramót fyrir forgöngu fyrrv. ríkisstj. Þá gaf hún útgerðinni loforð um að olían mundi ekki hækka frá því sem hún var í nóvemberbyrjun 1973, og ætlun hennar var að afla fjár til þess að standa undir þessum niðurgreiðslum með sérstöku gjaldi á útfluttar loðnuafurðir. Það kom fljótlega á daginn að loðnuafurðir féllu í verði og þessi fyrirætlun náði ekki fram að ganga því að tekjurnar voru miklu minni en ráð var fyrir gert um síðustu áramót. Það var því gripið til þess ráðs að greiða úr gengishagnaðarsjóði, sem myndaðist eftir gengisbreytinguna 1972, að svo miklu leyti sem hann hrökk til, og láta það gilda til ágústloka. Núv. ríkisstj. eða stuðningsflokkar hennar framlengdu þessa skuldbindingu til 30. sept. Þegar upp var staðið er talið að hafi vantað um 300 millj. til þess að standa undir þessum skuldbindingum, og þær eru teknar af brúttógengishagnaði vegna síðustu gengisbreytingar, sem er áætlað að gefi um 1650 millj. kr., en þar af fari 350 millj. til þess að greiða niður olíuverðið á s.l. sumri, 100 millj. eiga að fara vegna hækkaðs flutningskostnaðar á allar útfluttar afurðir, sem seldar eru og afreiknaðar með hinu gamla gengi, svo að 1250 millj. er áætlað að komi til ráðstöfunar, sem ég kem síðar að. Talið er að heildarolíunotkun bátaflotans nemi um 2600 millj. kr. á ársgrundvelli og útgerðin muni greiða með 5.80 kr. verði milli 1000 og 1100 millj. Það er því um að ræða ca. 1500 millj. sem þarf að afla fjár til, en tekjur af þessu olíugjaldi eru áætlaðar 1230 millj., svo að það eru allar líkur til þess að hér vanti tekjuöflun upp á um það bil 270 millj. ef þessar áætlanir allar standast.
Í sambandi við hækkun á útflutningsgjaldi af sjávarafurðum, þá hefur það hækkað frá gildandi lögum um það sem nemur gengissiginu og gengisbreytingunni á þessu ári, þannig að það helst í því sama og verið hefur, en aftur þegar kemur til að greiða út gamla útflutningsgjaldið, eins og við köllum það, þá hækkar að krónutölu fyrst og fremst og eiginlega eingöngu sá liður sem fer til greiðslu á vátryggingaiðgjöldum fiskiskipa samkv. sérstökum reglum sem sjútvrn. setur eða 87.8%. Önnur framlög haldast óbreytt hlutfallslega, en er talið að standi að krónutölu samkv. áætlun, en það er framlagið til Fiskveiðasjóðs, framlagið til Fiskimálasjóðs og smíði haf- og fiskirannsóknaskips og til bygginga í þágu Rannsóknastofnana sjávarútvegsins. Hins vegar eru tvö smáframlög, annars vegar til Landssambands ísl. útvegsmanna og til samtaka sjómanna samkv. reglum sem sjútvrn. setur. Þau hækka hlutfallslega eins og vátryggingagjaldið eða úr 0.4% í 0.5% til hvors aðila fyrir sig.
Það er talið að útflutningsgjaldið muni gefa um 1150 millj. og rúmlega milljarður muni því fara til greiðslu á vátryggingaiðgjöldum fiskiskipa. Ekki liggur enn þá fyrir hverjar breytingar verða á vátryggingum fiskiskipanna. Bæði er það að tjón hafa verið mikil, sérstaklega á s.l. ári, og sömuleiðis hafa tjón verið töluvert mikil á þessu ári. Þar hefur verðbólgan líka haft sitt að segja því að viðgerðir tjóna hækkuðu á fyrstu 4 mánuðum þessa árs um eða yfir 50%. Þetta hefur aukið á útgjöld trygginganna mjög verulega og uppi eru kröfur um töluverða iðgjaldshækkun. Samhliða þessu hafa bæst við flotann ný og dýr skip og verðgildi peninganna hefur mjög rýrnað, þannig að hér er um miklu hærri upphæðir að ræða en áður var. Ég tel að það væri ekki óvarlegt að gera ráð fyrir því að útgjöld Tryggingasjóðs yrðu — ekki milljarður, eins og sagt var í haust, heldur er líklegt að þau muni verða ekki undir 1400–1450 millj. ef reglur verða þær sömu um greiðslu iðgjalda og verið hafa í gildi. En þessi tala er auðvitað alger áætlunartala frá mér sem ég bið hv. þm. að taka á þann veg að hún getur auðvitað breyst nokkuð.
Í sambandi við 7. og 8. gr. frv. skulu tekjur Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins vera allt að 3/4 hlutum af verðhækkun samkv. 7. gr., sem verður á þeim afurðum fiskiðnaðarins til útflutnings sem lög þessi ná til, og svo aftur á móti að verðbætur skuli aldrei nema meiru en 3/4 hlutum verðlækkunarinnar og ekki umfram það fé sem viðkomandi deild ræður yfir. Þetta þótti nauðsynlegt að setja vegna stöðu hraðfrystiiðnaðarins, að þessar bætur eru hækkaðar úr 50% í 75%, sem gerir það að verkum að teflt er á mjög tæpt vað ef ekki verður breyting til batnaðar á sölu hraðfrysta fisksins á næsta ári. Ef þetta hefði ekki verið gert, þá hefði ekki verið möguleiki á miklum breytingum og þá hefði rekstrarstaða frystihúsanna verið með þeim hætti, að mörg þeirra hefðu stöðvast strax á s.l. hausti. Var reynt að brúa þetta bil með þessum hætti.
Þá kem ég að 9. gr. um ráðstöfun á gengishagnaðinum, sem hefur tekið allmiklum breytingum í Nd., enda til þess ætlast af okkur í sjútvrn. Þegar við sömdum þessa gr. höfðum við þetta mjög opið til þess að þegar fyllri upplýsingar lægju fyrir væri hægt að koma þessu í fastara form, svo sem nú hefur verið gert.
Ríkisstj. samþykkti eftir útgáfu þessara brbl. að greiða nokkuð út fyrir fram af gengishagnaðinum og varð að samkomulagi að greiddar voru 80 millj. kr. til minni skuttogaranna og 22 millj. kr. til stærri togaranna til þess að bæta rekstrarstöðuna og var það miðað við úthaldsdag á fyrstu 6 mánuðum ársins, janúar til júníloka. Enn fremur var samþykkt að greiða tæpar 20 millj. kr. til norðursjávarbátanna, sem höfðu ekki fengið neina niðurgreiðslu á olíu, en þessir bátar flestir hverjir voru þeir sem mest öfluðu til loðnusjóðsins og stóðu að verulegu leyti undir niðurgreiðslunum á olíunni. Því fannst mér sanngjarnt að koma til móts við þessi skip, og það var gert með sama hætti, eingöngu í sambandi við úthaldsdaga.
Nú hefur Nd. Alþ. lagt til, að 600 millj. kr. verði varið til þess að greiða hluta af gengistapi vegna erlendra skulda eigenda fiskiskipa, en erlendar skuldir eigenda allra fiskiskipa, þá á ég bæði við minni og stærri togara og önnur skipakaup og breytingar á skipum, námu 1168 millj. kr. frá 1. jan. til 29. ágúst vegna gengissigs og aftur vegna gengisbreytingar 1523 millj. kr. Nú er ástæðulaust að láta þetta fé allt renna í einu til Stofnfjársjóðsins. Því höfum við talið rétt að láta til tveggja eða þriggja ára 400 millj. kr. til að bæta lausafjárstöðu fyrirtækja í sjávarútvegi. En þegar slíkum lánum verður ráðstafað, þá verður það auðvitað ekki gert nema í nánu samstarfi og samvinnu við hagdeildir bankanna og bankastjóra viðskiptabankanna og þeim þá auðvitað um leið falið bæði að ganga frá þessum lánum og sjá um tryggingar fyrir þeim og innheimtu þeirra. síðan verður að skipta hlutfallslega niður því, sem á að fara til Stofnfjársjóðsins, inn á reikning hvers skips fyrir sig eftir hinum erlendu skuldum, sem verður auðvitað mál sem Stofnfjársjóðurinn kemur til með að hafa með að gera.
Til viðbótar þessu er ætlunin að í þeim tilvikum, þegar útgerðir hafa samið um smíði erlendis fyrir gengisbreytingu 29. ágúst, en ekki greitt að fullu sin 20% kaupverðsins, sem greiða skal á smiðatímanum, þá á að greiða gengisbætur til þeirra vegna þess hluta kaupverðsins sem útgerðin hefur ekki staðið skil á, fjárhæðinni eða hluta hennar, um leið og viðkomandi yfirfærsla á sér stað. M.ö.o.: þeir, sem eiga skip í smíðum, eiga að njóta nákvæmlega þess sama og þeir sem skulda í erlendri mynt, þótt þeir séu búnir að fá skipin fyrir 1–2 eða fleiri árum.
B-liðurinn er um óafturkræft framlag til bátaflotans vegna rekstrarerfiðleika á árinu 1974, og er þá miðað við útgerðartímabilið til 15. sept. og ætlað að verja í þetta 250 millj. kr. Hér er talað um 15. sept. vegna þess að kauptryggingartímabilið rennur þá út, en annars hefði auðvitað verið miðað við gengisskráningardag. En annað er ófært en að miða við kauptryggingartímabil til þess að fá þar viðmiðun. Er ætlunin að þetta nái til bátaflotans alls og er miðað við 20 tonn og yfir. En hins vegar vill rn. skoða það, ef sérstaklega stendur á með hina minni útgerð, sem viðast hvar á ekki í neitt líkum erfiðleikum og hin svokallaða útgerð af miðlungsstærð, hvað þá skuttogararnir og aðrir togarar, sem eru undir sérstakri grein. Þetta verður allt að skoða og fara yfir í nánu samráði og samstarfi við hagdeildir bankanna, sem hafa í sambandi við lánastarfsemi með þau mál algerlega að gera, og þá verður að hafa í því sambandi mjög náin samráð við þessa aðila. Hins vegar er hugsað að allar útborganir í þessu skyni fari í gegnum Aflatryggingasjóð, og þá verða auðvitað dregnar frá bætur Aflatryggingasjóðs á árinu, en að öðru leyti verði tekið tillit til úthaldstíma að vissu marki eða um 40%, en 60% af greiðslunum verði aftur miðuð við fjölda í áhöfn og stærðarflokka báta og veiðarfæri, sem notuð eru, og þá farið algerlega eftir sömu reglu í þeim efnum og Aflatryggingasjóður setur.
Þá er e-liðurinn, það er óafturkræft framlag til skuttogara til að bæta rekstrarafkomu þeirra, 230 millj. kr., og þá yrði það gert á sama hátt og hefur verið gert til 30. júní, að þessari upphæð verði skipt algerlega eftir úthaldsdögum, eins og þeir liggja fyrir á öllum togaraflotanum, bæði minni og stærri togurum, og síðan verður það greitt út í gegnum Aflatryggingasjóð.
Þá hafa framleiðendur fiskmjöls farið mjög illa út úr starfsemi sinni á þessu ári og víða eru miklir erfiðleikar í sambandi við þessa grein. Er lagt til að tekið sé upp beint framlag til Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, 50 millj. kr., en þessir aðilar hafa ekki verið í Verðjöfnunarsjóðnum og hafa ekki viljað ganga í hann, því miður. Ég fyrir mitt leyti tel að þeir eigi að vera í Verðjöfnunarsjóðnum, og ég vil ekki fyrir mitt leyti standa að því að slík fyrirgreiðsla sé gefin nema þeir komi í Verðjöfnunarsjóðinn, og á því að nota það tækifæri þegar þannig stendur á, en ekki láta eitthvert ákveðið framlag og menn geti svo haldið áfram að vera utan við verðjöfnunarsjóðskerfið, setja það sem ákveðin skilyrði, hvort sem þeim aðilum líkar það betur eða verr.
Þá hefur sjútvn. Nd. tekið hér upp tvo liði til sjómanna eða sjómannasamtakanna í fullu samráði við okkur í sjútvrn. Það er til að verðbæta lífeyrisgreiðslur aldraðra, sem fá greiddan lífeyri úr lífeyrissjóðum sjómanna, 15 millj. kr., og til orlofshúsa sjómannasamtakanna, 11 millj. kr.
Eftirstöðvarnar verða svo til ráðstöfunar samkv. nánari ákvörðun sjútvrn. Sjútvrn. setur nánari reglur um framkvæmd þessarar greinar og greiðslutíma framlags.
Enn fremur kom hér inn önnur till., ákvæði til bráðabirgða, það er heimild að endurgreiða útflutningsgjald samkv. l. nr. 19 1973 af saltsíld og saltsíldarflökum sem framleidd eru á árinu 1974.
Ég vil taka fram að allar þær greiðslur og allar þær reglur, sem þegar hafa verið settar, og þær reglur, sem kunna að verða settar, verða lagðar fyrir ríkisstj. til samþykktar, áður en frá þeim verður gengið. Ríkisstj. hefur því í heild með málið að gera. Hins vegar lýsti frsm. meiri hl. sjútvn. því yfir í Nd. eftir mér, að haft yrði einnig samráð við fulltrúa frá sjútvn. þingsins sem fengju tækifæri til að skoða þær reglur sem settar kunna að verða, en nú er mjög naumur tími til stefnu og þarf að hafa hraðan á. Ég hygg að í sambandi við greiðslur til skuttogaranna séu svo hreinar og ákveðnar línur að það er nánast ekkert annað en reikningsatriði, það verði bara reiknað út og sá útreikningur lagður fyrir ríkisstj. og síðan hefjast greiðslurnar. Aftur í sambandi við bátana er þetta mun flóknara, og þá held ég að það verði ekki tími til að ganga endanlega frá þeim reglum fyrir áramót. En þá höfum við mestan hug á því að fá heimild ríkisstj, að mega setja strax af stað ákveðnar útborganir til bátanna, þ.e.a.s. aðeins til þeirra sem sent hafa sín gögn til hagdeildar bankanna. Aðrir, sem ekkert hafa látíð til sin heyra, geta ekki búist við því að fá neina peninga borgaða, því að það er auðvitað algert lágmark, þegar opinberir aðilar biðja um skýrslur og biðja um reikninga fyrirtækja, að þau sendi slíka reikninga frá sér.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri. En ég vona að þó að þessi hv. d. fái þetta mál svona seint til meðferðar, afsaki hún það og skilji að það hafa verið ýmsir erfiðleikar í veginum og geri sitt til þess að hraða afgreiðslu málsins, þannig að hægt verði að hefja þessar útgreiðslur fyrir áramót, sem ég hef hér tæpt á, að svo miklu leyti sem það er hægt. .
Herra forseti. Ég legg svo til að að lokinni þessari umr. verði þessu frv. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.