19.12.1974
Efri deild: 33. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (1026)

64. mál, Framleiðslueftirlit sjávarafurða

Frsm. (Stefán Jónsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur orðið sammála um að mæla einróma með samþykkt þessa frv. um framleiðslueftirlit sjávarafurða með breytingum á sérstöku þskj., þskj. 208. Undir nál. skrifa Steingrímur Hermannsson, formaður sjútvn., Jón G. Sólnes, Oddur Ólafsson, Jón Árm. Héðinsson og Stefán Jónsson. Við tókum við þessu frv., sem áður hafði verið borið fram í tíð fyrri stjórnar og var nú borið fram öðru sinni með mjög lítils háttar breytingum, en hefðum að vísu helst þurft að fá meiri tíma til þess að fjalla um það. Þrátt fyrir tímaskortinn fengum við til okkar á sérstaka fundi fulltrúa sjútvrn. og Fiskmatsins og lásum einnig bréf og álitsgerðir frá ýmsum aðilum, svo sem skólastjórn Fiskvinnsluskólans, Verkfræðingafélagi Íslands og Fiskmatsmannafélagi Íslands. Bréf fengum við undirritað af öllum nemendum Fiskvinnsluskólans og frá nemendafélögum Sjómannaskólans. Ég leyfi mér að fullyrða, að miðað við allar aðstæður fór sjútvn. af samvískusemi í gegnum þau plögg, sem frammi lágu, og gerði nokkrar breytingar á frv. að athuguðu máli. — Við skulum nú aðeins athuga þessar breytingar og gera grein fyrir orsökum.

Af hálfu fulltrúa Fiskmatsins var lagst eindregið gegn breytingunni á heiti frv., sem gerð hafði verið frá því að frv. var flutt í fyrra. Fiskmatsstjóri taldi m.a. að það mundi hafa 2–3 millj. kr. kostnað í för með sér að breyta heiti frv., sem áður hét frv. til l. um Ríkismat sjávarafurða, en heitir nú frv. til l. um Framleiðslueftirlit sjávarafurða. Við nm. sannfærðumst aftur á móti um ástæður hæstv. sjútvrh. fyrir nafnbreytingunni. Óþarft er að fara nánar út í þær ástæður, við tókum þær gildar og teljum að þær séu þessa kostnaðar virði, þó að þurfi að skipta um bréfhausa og ýmislegt smávegis sem hafi óneitanlega nokkurn kostnað í för með sér.

Í 2. gr. frv., 4. línu að ofan, breytum við einu smáorði, þar sem stendur „Stofnunin skal meta eða hafa eftirlit“. Í staðinn fyrir það komi: „Stofnunin skal meta og hafa eftirlit“. Með þessum hætti hyggst n. taka af öll tvímæli um það að n. beri að hafa eftirlít með útflutningi ofangreindra sjávarafurða.

Næsta breyting, sem n. leggur til að gerð verði, er við 5. gr. Hún breytist öll og orðist svo að till. nefndarinnar:

„Framleiðslueftirlit sjávarafurða skiptist í eftirtaldar deildir:

1. Hreinlætis- og búnaðardeild, sem einkum skal hafa eftirlit með hreinlæti og búnaði fiskiskipa, flutningatækja vinnslustöðva og því er varðar heilnæmi við framleiðsluna.

2. Ferskfiskdeild, sem einkum skal annast eftirlit og gæðamat á ferskum, nýjum eða ísuðum fiski, krabbadýrum og skeldýrum.

3. Freðfiskdeild, sem einkum skal annast eftirlit og gæðaflokkun á framleiðslu frystra sjávarafurða, meðferð þeirra, geymslu og útflutningi.

4. Saltfisk- og skreiðardeild, sem einkum skal annast eftirlit og gæðaflokkun á öllum söltuðum sjávarafurðum og skreið.“

Síðan kemur óbreytt, eins og er í frv.: „Ráðh. getur breytt deildaskipun og kveðið nánar á um verkefni einstakra deilda að fengnum till. forstjóra stofnunarinnar.“

Við þessa breytingu tökum við sérstakt tillit til till. Fiskmatsins, einnig álits Fiskmatsmannafélagsins, en þessir aðilar töldu að tæpast væri hægt að láta búnaðar- og hreinlætisdeild vinna hlutverk sitt samtímis hlutverki frystideildar.

Á 6. gr. frv. gerðum við þá breytingu, að við kváðum á um menntun forstjóra Framleiðslueftirlitsins, að vísu ekki alveg á sama hátt og gert var í frv. til l. um Ríkismat sjávarafurða, heldur ætluðum við sjútvrh. meira svigrúm til þess að velja forstöðumann heldur en gert var í fyrra frv. Það er sem sagt breyting við 6. gr., að aftan við gr. bætist: „Við skipun í starfið skal ráðh. taka tillit til háskólaprófs í matvælafræðum eða annarrar sambærilegrar menntunar umsækjenda“.

Með breytingunni hyggjumst við kveða á um það, að hin æðsta menntun á þessum sviðum, sem nú er, í matvælaframleiðslu, gefi nokkurn rétt til þessa starfs, án þess þó að binda algerlega hendur ráðh. um veitingu starfsins.

Þá kemur næst breyting við 9. gr. frv. Gr. hljóðar svo:

„Matsmenn, er starfa á vegum Framleiðslueftirlits sjávarafurða, framkvæma undir umsjón yfirmatsmanna eftirlit það og mat sem lög þessi gera ráð fyrir.

Lögreglustjóri löggildir matsmenn samkv. tilnefningu forstjóra Framleiðslueftirlits sjávarafurða og sér um að þeir riti undir eiðstaf um að þeir vilji rækja með alúð og kostgæfni skyldur þær sem á þeim hvíla í starfi þeirra.“ Aflann við leggur sjútvn. síðan til að komi: „Nemendur, sem lokið hafa prófi frá Fiskvinnsluskólanum, skulu njóta forgangs við ráðningu matsmanna.“

Okkur var kunnugt um að því hafði verið heitið í sambandi við fyrra frv., — frv. eins og það var flutt í sinni upprunalegu mynd, að nemendum frá Fiskvinnsluskólanum skyldi ætlaður slíkur forgangsréttur. Fyrir lágu einnig mjög eindregin tilmæli, bréfleg tilmæli nemendanna um að tekið yrði tillit til náms þeirra í sambandi við samningu laganna. Það töldum við rétt að gera. Við vorum sammála um að mjög æskilegt væri að hvetja fremur en letja ungt fólk til þess að stunda nám í Fiskiðnskólanum.

Við gerum síðan ekki brtt. við 10., 11. og 12. gr. frv., ekki fyrr en við 13. gr. Þar breytum við, leggjum til, að gerð verði breyting í 2. línu. Hér stendur í frv.: „Hver sá, sem ætlar að flytja úr landi fisk eða sjávarafurðir sem lög þessi taka til, skal tilkynna það hlutaðeigandi deildarstjóra eða yfirmatsmanni með hæfilegum fyrirvara.“ Við leggjum til að í staðinn verði mgr. svona: „Hver sá, sem ætlar að flytja úr landi fisk eða sjávarafurðir sem lög þessi taka til, skal tilkynna það skrifstofu stofnunarinnar“ —- að út fari „hlutaðeigandi deildarstjóra eða yfirmatsmanni“, í staðinn komi: „skrifstofu stofnunarinnar“. Þá hljóðar 13. gr. svona:

„Hver sá, sem ætlar að flytja úr landi fisk eða sjávarafurðir sem lög þessi taka til, skal tilkynna það skrifstofu stofnunarinnar með hæfilegum fyrirvara, enda fari hleðsla vörunnar í skip eða annað flutningatæki fram undir umsjón starfsmanna Framleiðslueftirlits sjávarafurða.“

Fleiri brtt. gerðum við í sjútvn. ekki við frv. En þess skal getið í leiðinni að formaður sjútvn., sem ræddi frv. við hæstv. sjútvrh., kom á framfæri við ráðh. bréflegum óskum Fiskmatsmannafélags Íslands um það, að gerðar verði ráðstafanir til þess í sambandi við þetta nýja frv. að tryggja kjör þeirra betur en nú er gert. Hæstv. sjútvrh. greindi formanni n. frá því, að hann hefði nú þegar gert ráðstafanir í þessa átt til þess að leysa deilu sem um tíma hefur verið á milli fiskmatsmanna og helstu framleiðenda og seljenda sjávarafurða, þ.e.a.s. SH og SÍS annars vegar og Fiskmatsmannafélagsins hins vegar. Hann hefur þegar gert ráðstafanir í þessa átt og lét í ljós mjög svo eindreginn áhuga sinn á því að kjör fiskmatsmannanna yrðu bætt og þeim veitt aukin starfstrygging. Við fengum sem sagt heimild ráðh. til þess að segja frá þessu, um leið og við gerðum grein fyrir áliti sjútvn.