19.12.1974
Efri deild: 33. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1231 í B-deild Alþingistíðinda. (1027)

64. mál, Framleiðslueftirlit sjávarafurða

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég fagna að sjálfsögðu þeim breytingum sem hafa verið gerðar við þetta frv., þær eru allar til bóta, og ég get fyllilega staðið með þeim. Ég fagna vissulega breytingunni við 9. gr. frv. um forréttindi nemenda Fiskvinnsluskólans til starfa við fiskmatið. Það er auðvitað sjálfsögð og rétt viðurkenning á mikilvægi þessa skóla.

Eins og ég hef áður bent á hér og hv. frsm. sjútvn. gerði einnig við 1. umr. málsins og gerði aftur að umtalsefni nú, þá er hér einnig um að ræða eldri matsmenn og verður svo lengi enn. Þeir verða við störf sin, og ég játa það að ég er ekki enn fyllilega sáttur við þau ákvæði sem gilda um almenna matsmenn samkv. 9. gr., þ.e.a.s. ég tel að enn vanti á að skýrar sé ákveðið um skyldur þeirra og þó aðallega um réttindi þeirra. Ég hygg að erfitt sé að koma sér niður á einhverja algilda lausn þessa máls og því biði það í raun þessarar nýju stofnunar að endurskipuleggja hreinlega þennan mikilvæga undirstöðuþátt í öllu fiskmatinu hvað sem allri yfirstjórn og öllum reglum líður.

Ég fagna því sem hv. frsm. flutti hér áðan frá hæstv. ráðh., m.a. með tilliti til þess sérstaka deilumáls sem uppi hefur verið milli matsmanna og framleiðenda. Ég veit mætavel um óánægju þessara manna eða réttleysi þeirra í raun og veru og illa aðstöðu á mörgum sviðum, ekki bara af hálfu framleiðenda, heldur fyrst og fremst af hálfu Fiskmats ríkisins, svo að ég hlýt að bera þá ósk fram eða ítreka hana, að hæstv. ráðh. sjái til þess, eins og hann hefur þegar gefið vilyrði um, að hann tryggi úrlausn þessum matsmönnum til handa með einhverjum hætti, og það þá um leið, að þeim verði tryggð starfsréttindi langt umfram það sem þeir hafa nú. Það færi sem sagt vel á því að hin nýja stofnun með þessu friða og fallega nafni fengi þetta sem eitt af sinum fyrstu verkefnum, og má vera að það sé þegar í undirbúningi, eftir því sem hér var upplýst áðan.