12.11.1974
Sameinað þing: 6. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í B-deild Alþingistíðinda. (103)

298. mál, staða félagsheimilasjóðs

Fyrirspyrjandi (Helgi F. Seljan):

Herra forseti. Á þskj. 9 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. menntmrh. um stöðu Félagsheimilasjóðs, svohljóðandi:

„1. Hve mörg félagsheimili hafa notið framlaga úr sjóðnum frá upphafi, hve mörg munu njóta framlags á þessu ári og hve mörg eru í byggingu eða vitað er um fyrirhugaða byggingu á sem ekki hafa enn hlotið framlög?

2. Hver er staða sjóðsins nú gagnvart félagsheimilunum, og ef um vangoldin skylduframlög er að ræða hverju nema þau þá nú?

3. Hefur sjóðurinn tekið þátt í viðhaldi og endurbótum eldri félagsheimila, og ef svo er ekki hverjir möguleikar eru þá á slíkri þátttöku?“

Félagsheimilin eru oftlega stolt hvers staðar eða byggðarlags glæsileg hús með sífellt fullkomnari aðstöðu til svokallaðrar menningarneyslu, eins og nú tíðkast að nefna það. Reyndar hafa félagsheimili og starfsemi þeirra verið umdeild og það orð á komist, að einhverju með réttu, að miður menningarleg dansiböll væru aðal þeirra og einkenni. Hinu er þá gjarnan gleymt, viljandi eða óviljandi, sem vel er gert. Aðstaðan er til alls fyrst ásamt því áhugastarfi sem er hvati þess menningarlífs sem viðast hvar er sinnt á landsbyggðinni og það á margan veg með engu minni reisn en hér á höfuðborgarsvæðinu, a.m.k. hef ég af því góða reynslu og dansiböll höfuðborgarinnar eru nú ekki til að státa af umfram sveitaböllin.

Með Félagsheimilasjóðnum kom ríkisvaldið til móts við þessa viðleitni byggðanna til að skapa sér aðstöðu til viðunandi möguleika á menningarstarfsemi, félagsstarfsemi og um leið til skemmtanahalds sem ég tel engu að síður nauðsynlegt þó að með menningarblæinn fari allt eftir áliti manna á þeirri sérstæðu tegund menningar sem kallast vínmenning og er kapítuli út af fyrir sig. Það væri sannarlega fróðlegt að vita hve mörg þau félagsheimili eru sem hér hafa notið góðs af, hve mörg njóta þess nú og hve mörg eru á undirbúningsstigi. Að því lýtur 1. liður fsp.

Hvað sem öllu tali sjálfskipaðra menningarpostula höfuðborgarsvæðisins líður hafa fjölmörg þessara félagsheimila verið lyftistöng félags- og menningarlegra átaka sem margir þessara góðu manna hafa aldrei sýnt nema í orði og á pappír. Því er hins vegar ekki að leyna, að erfiðleikar Félagsheimilasjóðs hafa oft verið miklir við að standa í skilum við félagsheimilin og verið til mikils baga fyrir félög þau sem að hafa staðið og þá ekki síður sveitarfélögin sem hafa oftast verið hvað stærstir aðilar. Því er spurt í 2. lið hver staða sjóðsins nú sé og hver vangoldin skylduframlög eru, sem ég vænti þó að séu ólíkt minni nú en oft áður, enda um margt eðlilegt. Félagsheimilin eru orðin það mörg að nýrra félagsheimila í stórum stíl er vart þörf þótt einstaka staðir séu enn út undan og þá helst þeir minni og þeir sem hafa búið við sæmileg samkomuhús eða notað skólahúsnæði til þessarar starfsemi.

Í þriðja lagi, og þá er ég kominn að höfuðtilgangi fsp. í heild, spyr ég hæstv. ráðh. um það hvort sjóðurinn hafi tekið þátt í viðhaldi og endurbótum eldri félagsheimila. Hér á ég ekki við gerbreytingu eldri húsa í nýrri og fullkomnari eða viðbyggingar sem með hefur verið reiknað í upphafi, en ekki tekist að koma upp jafnhliða vegna fjárhagserfiðleika, m.a. vegna vanskila Félagsheimilasjóðs, ekki heldur viðbyggingar sem síðan hafa reynst nauðsynlegar vegna ýmiss konar aðstöðu sem önnur nýrri félagsheimili hafa fengið í upphafi. Ég hygg að slík þátttaka hljóti að teljast sjálfsögð, enda mun þetta hafa verið gert. Ég á hér fyrst og fremst við eldri félagsheimili, 15, 20 ára og jafnvel eldri, þar sem stundum er ekki nema um tvennt að ræða: ráðast í stórfelldar lagfæringar og þá um leið vissar endurbætur á allri aðstöðu eða þau verða fyrr eða siðar ófullnægjandi og að því kemur að ný hús þarf að reisa. Ég tel fyrri leiðina ólíkt vænlegri sé það mögulegt og um leið fullnægjandi fyrir alla venjulega starfsemi og sjóðnum ólíkt hagkvæmara að taka þar þátt í af myndarskap en þurfa að taka þátt í nýrri byggingum. Því er spurt um möguleika sjóðsins á slíkri þátttöku.

Ég hef margoft hér á þingi bent á erfiðleika félagsheimilanna með rekstur sinn, m.a. flutt þar um þáltill. Erfiðleikar á almennum rekstri koma ekki hvað síst niður á félags- og menningarlegri starfsemi sem minni arð gefur en hitt sem lýtur að hreinni afþreyingarstarfsemi. Þeim mun meiri nauðsyn er að alhliða rekstur á traustum grunni sé tryggður. Viðhald og endurbætur eldri húsanna er oft einn þyngsti liðurinn í kostnaði árs hvers. Til móts við þetta hafa sveitarfélögin komið fyrst og fremst með stórauknum framlögum sínum. En skoðun mín er sú að Félagsheimilasjóður eigi að vera hér virkur aðili einnig, létta að hluta þessum vanda af heimaaðilum sé þess nokkur kostur, hafi hann til þess nú eða í náinni framtíð bolmagn, sem ég trúi vart öðru, svo fremi skuldahali sé ekki því lengri. Um þetta mál mun ég flytja lagabreyt. ef þörf krefur, en til þess að undirbúa það mál æski ég þess að fá sem fyllstar upplýsingar. Því er þessi fsp. fram borin fyrst og fremst.