19.12.1974
Efri deild: 34. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (1035)

124. mál, alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað frv. um heimild fyrir ríkisstj. til að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um atþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, en þessi samþykkt var gerð 1972. N. hefur orðið sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt. Axel Jónsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins, en allir aðrir nm. skrifuðu undir nál.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta mál. Þetta eru miklar samþykktir og langar, sem þegar hafa verið staðfestar annars staðar. Ég endurtek að n. varð sammála um að mæla með að frv. yrði samþykkt.