19.12.1974
Efri deild: 35. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (1038)
4. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi
Frsm. meiri hl. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Sjútvn. þessarar d. hefur haft til meðferðar frv. til l. um ráðstafanir í sjávarútvegi og ráðstöfun gengishagnaðar. Nál. meiri hl. mun ekki hafa verið dreift. N. varð ekki sammála um afgreiðslu málsins. Komu því fram tvö nál., nál. meiri hl. og nál. minni hl. Nál. meiri hl. er á þskj. 222. Þar segir svo, með leyfi forseta:
„Nefndin hefur athugað frv. og mælir með samþykkt með þeim breytingum, sem orðið hafa við meðferð málsins í Nd.“
Þetta nál. er frá meiri hl. sjútvn. Undir nál. skrifa Steingrímur Hermannsson, Halldór Ásgrímsson, Jón G. Sólnes, Jón Árnason, Oddur Ólafsson.
Frv. það, sem hér um ræðir, er staðfesting á brbl. um ráðstafanir í sjávarútvegi og um ráðstöfun gengishagnaðar sem gefin voru út 20. sept. 1974. Þótt menn kunni að greina á um réttmæti gengisfellingar er það viðtekin regla að í kjölfar slíkra aðgerða eru ýmsar ráðstafanir nauðsynlegar. Talið er eðlilegt m.a. að hið opinbera ráðstafi þeim gengishagnaði sem myndast. Í þessu frv. er fyrst og fremst að finna ákvæði sem að þessu miða og eru mjög í samræmi við það sem gert hefur verið við fyrri gengisfellingar.
Ég vil svo geta þess að sjútvn. Ed. hefur ekki haft þetta mál svo til meðferðar sem æskilegt væri. Að vísu var haldinn einn sameiginlegur fundur með sjútvn. báðum, en síðan hefur n. haft mjög skamman tíma til að fjalla um málið. Ég hygg þó að segja megi að einstakir nm. hafi haft tækifæri til þess að fylgjast með meðferð málsins. Því hefur n. treyst sér til að afgreiða þetta mikla mál á svo skömmum tíma.
Í meðferð Nd. hafa verið gerðar nokkrar breytingar á upphaflegu frv. Fyrsta breyt. sem hv. sjútvn. Nd. lagði til og samþ. var, er við 4. gr. frv. N. lagði til að ekki skuli greiða útflutningsgjald af lagmeti eins og var gert ráð fyrir. Þegar ég sá frv. fyrst, taldi ég að lagmeti hlyti að vera undanskilið með tilliti til þeirrar samþykktar sem hv. Alþ. gerði á síðasta reglulegu þingi, þar sem segja má að lagmetið hafi verið flutt frá sjávarútvegi yfir til iðnaðar. Hins vegar við athugun á frv. telja lögfróðir menn að þetta sé ekki nógu öruggt, og hefur lagmetisiðnaðurinn lagt á það ríka áherslu að þarna væri örugglega fram tekið að honum beri ekki að greiða það útflutningsgjald sem um ræðir. Þetta er eðlileg afstaða. Lagmetisiðnaðurinn greiðir sín gjöld til sjóða iðnaðarins, og er jafnframt gert ráð fyrir því að þaðan aðeins fái lagmetisiðnaðurinn nú lánafyrirgreiðslu.
Í öðru lagi gerði Nd. þá breyt. á frv. að bætt er lið við 5. gr., 4. lið, sem felur í sér breyt. á l. nr. 19 frá 1973 og heimilar hækkun á þeim frádrætti sem heimilt er að veita vegna saltsíldar, úr 500 kr. í 1300 kr. Er þetta gert með tilliti til þess að gjöld þau, sem greidd eru af saltsíld innanlands, eru orðin það há að þau hafa veruleg áhrif á samkeppnisaðstöðu þess iðnaðar hér á landi við þann iðnað erlendis sem að miklu leyti byggist á saltsíld sem íslendingar landa þar.
9. gr. frv. greinir frá því hvernig fé því, sem kemur á reikning ríkissjóðs við gengisfellinguna skv. 2. gr. l. nr. 78 1974, skuli ráðstafað. Þar er um að ræða mikla fjárupphæð, um 1250 millj. kr. Eins og ég sagði í upphafi míns máls er það venja að þessu fé sé ráðstafað til hinna ýmsu greina sjávarútvegsins og þá að sjálfsögðu fyrst og fremst til þess að greiða hluta af því gengistapi sem á þessar greinar hefur lagst við gengisfellinguna.
Í bréfi frá sjútvrn., sem barst Nd. Alþ. 9. des. s.l. og var dags. þann dag, greinir sjútvrn. frá því hvernig það hyggst ráðstafa þessum gengishagnaði, sem svo er nefndur. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir því að 600 millj. kr. renni til þess að greiða hluta gengistaps vegna erlendra skulda eigenda fiskiskipa. Jafnframt er í sambandi við þessa upphæð tekið fram að sjútvrn. sé heimilt að ráðstafa allt að 400 millj. kr. af þessari fjárhæð til lánveitinga í sjávarútvegi til 2–3 ára til að bæta lausafjárstöðu fyrirtækja. Þá er í öðru lagi gert ráð fyrir því að 250 millj. kr. verði óafturkræft framlag til bátaflotans vegna rekstrarerfiðleika í s.l. vetrarvertíð. Í þriðja lagi er gert ráð fyrir því að 230 millj. kr. verði varið sem óafturkræfu framlagi til skuttogara til að bæta rekstrarafkomu þeirra. Í fjórða lagi er gert ráð fyrir að verja 50 millj. kr. til Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins til greiðslu verðbóta vegna fiskmjöls, annars en loðnumjöls, sem framleitt var á tímabilinu 1. jan. til 31. ágúst 1974, enda komi allt fiskmjöl til verðjöfnunar í deild fyrir afurðir síldar- og fiskmjölsverksmiðja. Eftirstöðvar af heildarupphæðinni verða þá 120 millj. kr.
Með þessum till. sjútvrn. fylgdi allítarleg grg. Er þar fyrst og fremst fjallað um það hvernig rn. hyggst haga framkvæmd þessa máls.
Rn. gerir í sambandi við a-liðinn ráð fyrir því að stofnaður verði sérstakur reikningur fyrir hvert skip hjá Stofnfjársjóði fiskiskipa, sem skuldar erlend lán. Þeirri fjárhæð, sem ávísað yrði á hvern reikning, yrði skipt í þrjá hluta til að aðstoða viðkomandi útgerð við að standa í skilum með afborganir og vexti við Fiskveiðasjóð, Ríkisábyrgðasjóð og Byggðasjóð næstu 3 árin. Verði inneign á þessum reikningi þegar viðkomandi útgerð hefur greitt sina árlegu afborgun eða tvær sex mánaða afborganir, skal greiða mismuninn út af reikningnum til útgerðarinnar. Einnig kemur fram í þessu skjali útreikningur á gengistapi frá 1. jan. til 29. ágúst annars vegar og hins vegar vegna gengisbreytingarinnar 29. ágúst. Einnig er greint frá því hvernig rn. hyggst nota 400 millj. til skammtímalána til þess að bæta lausafjárstöðu fiskvinnslufyrirtækja. Um það atriði var töluvert rætt á fyrrnefndum sameiginlegum fundi sjútvn., þar sem mættir voru fulltrúar rn., og hefur verið að því spurt, á hvern máta slíkt verði gert. Hér er um skammtíma lán að ræða af fjármagni sem þarf að vera handbært innan mjög stutts tíma í greiðslur vegna hækkunar erlendra lána skipa- og bátaeigenda. Því hefur verið svarað, að bankar muni sjá um þetta að öllu leyti, þeir muni lána þetta fé sem lið í breytingu lausaskulda í lengri lán. Jafnframt hefur verið upplýst þegar spurt hefur verið um endurheimtu þessa fjár, að ríkissjóður muni að sjálfsögðu standa ábyrgur fyrir því að þetta fjármagn verði til reiðu til greiðslu í Stofnlánasjóð fiskiskipa þegar þess gerist þörf. Það er ekki að ástæðulausu að þetta hefur verið rætt. Greiðsluerfiðleikar eru miklir hjá mörgum þeim aðilum sem þarna mundu njóta. Innheimta er oft erfið og í mörgum tilfellum e.t.v. vafasamt að unnt að tryggja skammtíma lán sem þetta með þeim veðum, að vel geti talist öruggt að lánið fáist greitt á viðhlítandi tíma. Mér sýnist í fljótu bragði að þessi ráðstöfun geti orkað tvímælis, en legg höfuðáherslu á það í þessu sambandi, að ríkissjóður verður að sjálfsögðu, eins og fullyrt hefur verið, að standa ábyrgur fyrir því að þetta fjármagn verði til reiðu þegar þess gerist þörf samkvæmt því sem ég hef áður sagt um notkun þess.
2. liður fjallar um 250 millj. kr. óafturkræft framlag til bátaflotans vegna rekstrarerfiðleika á s.l. vetrarvertíð. Þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Lagt er til að ákveðnum aðila, t.d. Aflatryggingasjóði, verði falið að annast þessa greiðslu eftir ákvörðun rn. í hverju einstöku tilfelli og geti rn. ákveðið ef það telur þess þörf, að einstakar greiðslur fari beint til lánardrottna viðkomandi útgerðar.“
Rn. vinnur nú að samningu reglna varðandi skiptingu þessarar fjárhæðar o.g er þar stuðst við upplýsingar frá Aflatryggingasjóði um einstaka báta. Satt að segja er engin furða þótt menn hafi staldrað við þetta og sýnst framkvæmdin æði flókin að mörgu leyti.
Rétt er að geta þess í þessu sambandi, að í till. rn. var upphaflega gert ráð fyrir því að þetta yrði eingöngu bundið við tímabilið frá 1. jan. til 15. maí í ár. Hins vegar hefur nú orðið samkomulag um að þessi tími verði lengdur allt til 15. sept., þannig að þessi aðstoð nái ekki aðeins yfir vetrarvertíðina, heldur einnig yfir sumartímann. Í reglum rn. var einnig gert ráð fyrir því að miðað yrði víð báta 20 smálestir eða stærri. Nú hefur orðið samkomulag um að aðstoðin r.ái til báta allt að 12 smálestum. Að sjálfsögðu eykur þessi útvíkkun, bæði tíminn og bátastærðin, allverulega á umfang þessa máls og gerir það að ýmsu leyti erfiðara í framkvæmd. Ljóst er að meta verður mörg tilfelli sem eru á mörkum og ekki ólíklegt að skoða verði bátastærð með tilliti til þeirra aðstæðna sem eru í hinum ýmsu landshlutum og eru mjög breytilegar.
Einnig er vert að geta þess, að till. rn. gera ráð fyrir því að farið verði eingöngu að reglum Aflatryggingasjóðs við úthlutun þessa fjármagns. Við það hefur LÍÚ gert athugasemd. Leggur LÍÚ áherslu á að helmingi þessarar fjárupphæðar verði úthlutað eftir úthaldsdögum. Samkomulag hefur orðið um það í sjútvn. og við rn. að úthlutunin verði þannig að 150 millj. kr. verði úthlutað skv. reglum Aflatryggingasjóðs eða með hliðsjón af þeim, en 100 millj. kr. verði úthlutað á úthaldsdaga. Er þar gengið verulega til móts víð óskir LÍÚ.
Einnig kemur fram í bréfi rn., að rn. telur sig þurfa að taka tillit til óhappa, sem orðið hafa og meta slík óhöpp í einstökum tilfellum.
Af því, sem ég hef sagt um þennan lið, hygg ég að mönnum sé ljóst að þarna er um margslungið mál að ræða, og það er að mörgu leyti illt að þær reglur, sem rn. nú vinnur að, skuli ekki liggja fyrir sjútvn. þingsins til að skoða.
3. liður í till. rn. gerir, eins og ég sagði áðan, ráð fyrir því að 230 millj. kr. verði varið sem óafturkræfu framlagi til skuttogara til að bæta rekstrarafkomu þeirra. Í grg. rn. kemur fram að úthlutað muni verða miðað við úthaldsdaga. E.t.v. má deila um þá reglu eins og flest annað, þegar um slík mál er að ræða. En við getum verið sammála um það að sú regla er stórum einfaldari en þær sem gert er ráð fyrir að fylgt verði í sambandi við 2. lið og ég hef rætt um.
Að því hefur verið spurt, hvort ekki eigi sömu reglur að gilda um togara. Því hefur verið svarað að togarar eru langtum minna háðir aðstæðum en bátar. Þeir leita afla í kringum landið allt. Úthaldsdagar þeirra eru að ýmsu leyti öruggari mælikvarði heldur en hjá minni bátunum, og hefur því rn. talið eðlilegt að hafa þennan hátt þarna á. Ég fyrir mitt leyti er þessu samþykkur, fyrst og fremst með tilliti til þess, að framkvæmd á þennan veg er stórum einfaldari, og ég hygg að nokkuð sé fyrir það gefandi.
Í 4. lið er fjallað um ráðstöfun á 50 millj. kr. til Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins vegna fiskmjölsframleiðslu á þessu ári. Í grg. rn. kemur fram að þar verður ekki tekin með vinnsla á loðnu. Þar segir svo, með leyfi forseta:
„Miklir rekstrarerfiðleikar hafa skapast á þessu ári hjá fiskmjölsverksmiðjum vegna vinnslu fiskmjöls, þar sem þessir aðilar eiga ekki aðild að Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins og fá þar af leiðandi engar bætur frá honum vegna þess verðfalls sem orðið hefur á þessu ári. Rn. leggur til að 50 millj. kr. af gengishagnaðarsjóði verði ráðstafað sem óafturkræfu framlagi til Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins til greiðslu verðbóta vegna fiskmjöls sem framleitt var á tímabilinu frá 1. jan. til 31. ágúst 1974, enda komi fiskmjölið inn í deild fyrir afurðir síldar- og fiskmjölsverksmiðja.“
Um þennan lið má eflaust margt segja og deila. Í raun og veru er hér verið að þrýsta þessum framleiðendum inn í Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins. Ég fyrir mitt leyti tel að þeir eigi þar að vera.
Að lokum er rætt um eftirstöðvarnar sem eru 120 millj. kr. Í sept. s.l. voru tæplega 20 millj. kr. fengnar að láni úr gengishagnaðarsjóði til að greiða bætur til þeirra skipa, sem stundað hafa síldveiðar í Norðursjó á þessu ári, vegna aukins olíukostnaðar. 20 millj. kr. hefur því raunar þegar verið ráðstafað, en 100 millj. er óráðstafað.
Í umr. um þetta mál var að sjálfsögðu allmjög fjallað um þessar 100 millj. kr. Ég hygg að allir geri sér grein fyrir því að þörfin er mikil. Þessir peningar munu að sjálfsögðu notast auðveldlega. Fram kom m.a. sú ábending að rétt væri að nokkrum hluta af þessu væri ráðstafað til aðstoðar sjómönnum. Sérstaklega var á það bent að eðlilegt gæti talist að ráðstafa nokkurri upphæð til að styrkja lífeyrissjóð þeirra sem vissulega verður einnig fyrir barðinu á gengislækkuninni og þeim verðhækkunum sem í kjölfar hennar fylgja. Sjútvn. Nd. lagði til að 15 millj. kr. væri varið til að verðbæta lífeyrisgreiðslur aldraðra sem fá greiddan lífeyri úr lífeyrissjóði sjómanna. Jafnframt hefur deildin samþykkt að 11 millj. kr. verði varið til orlofshúsa sjómannasamtakanna. Þetta eru samtals 26 millj. kr., og er það góðra gjalda vert. Þó sýnist mér að þessi upphæð hefði mátt vera meiri, og tel ég eðlilegt að við athugun á því, hvernig þeim 74 millj. kr., sem enn er óráðstafað, verði ráðstafað, verði þetta mál skoðað betur og væntanlega meira fjármagni varið til þess að styrkja lífeyrissjóð sjómanna.
Í 9. gr. frv. segir svo í lok greinarinnar: „Sjútvrn. setur nánari reglur um framkvæmd þessarar greinar.“ Þetta ákvæði er óvenjulegt í svipuðum lögum um ráðstöfun gengishagnaðar. Í flestum tilfellum hefur verið um mikið fjármagn að ræða og svo er óumdeilanlega í þessu tilfelli. Talið hefur verið eðlilegt að ríkisstj. í heild setti reglur um ráðstöfun á slíku fjármagni. Þetta hefur verið talið eðlilegt, m. a. vegna þess að um ráðstöfun slíks fjármagns eru eðlilega skiptar skoðanir. Ég fyrir mitt leyti tel því mjög óæskilegt að eitt rn. axli þennan vanda og tel að það geti valdið verulegri tortryggni við framkvæmd þessa mikilvæga máls. Ég hef því lagt á það áherslu í þeim viðræðum, sem ég hef átt við aðra um þetta mál og m. a. hæstv. sjútvrh., að hér þurfi að verða önnur framkvæmd Ég legg á það mjög ríka áherslu að við setningu reglna um ráðstöfun á þessum gengishagnaði verði ríkisstj. öll til kvödd. Ég legg einnig á það áherslu með tilliti til þess sem ég hef sagt hér áður um ýmislegt, sem er óljóst í þessu sambandi og ég ætla ekki að endurtaka, að ég hefði talið æskilegra, eins og ég sagði, að sjútvn. þingsins hefðu fengið að sjá þær reglur sem settar verða, því tel ég eðlilegt að sjútvn. þessa þings fái einnig að fylgjast með setningu þeirra reglna sem hér um ræðir.
Með tilliti til þessa fagna ég þeim ummælum sjútvrh. í framsöguræðu hans áðan, þar sem hann lagði áherslu á að hann muni við setningu reglna um ráðstöfun á gengishagnaði hafa fullt samráð við ríkisstj. Jafngildir það í mínum huga að ríkisstj, sem slík setji þær reglur. Ég fagna því einnig sem kom fram hjá honum, þar sem hann vísar að vísu til frsm. sjútvn. Nd., en ég skildi hann svo að hann staðfesti hans ummæli, að samráð mun verða haft við sjútvn. þingsins þegar reglur þessar eru settar. Þótt ég hafi að vísu kosið að orðalag þetta væri ákveðnara í frv. sjálfu, lít ég svo á þessi ummæli að þau séu fullnægjandi og geri því ekki athugasemdir. Ég lít á þessi ummæli sem bindandi.
Að þessu mæltu endurtek ég að meiri hl. n., sem að standa þeir einstaklingar sem ég nefndi áðan, mælir með því að frv. verði samþ. óbreytt eins og það hefur til okkar borist frá hv. Nd.