19.12.1974
Neðri deild: 31. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1261 í B-deild Alþingistíðinda. (1063)
106. mál, löndun á loðnu til bræðslu
Frsm. meiri hl. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Ég vil biðja hæstv. forseta að hlutast til um að hæstv. sjútvrh., ef hann er ekki bundinn skyldustörfum annars staðar, svo sem í Ed., verði viðstaddur. Ég á örstutt erindi við hann vegna fyrri fsp. minnar til hans.
Þau orð, sem hv. 8. þm. Reykv. beindi til mín í þessu sambandi, voru öll gersamlega út í hött. Ég hef ekki verið forsvarsmaður neinnar hringfararkenningar í sambandi við nýtingu fiskveiðilögsögunnar, öðru nær. Hann hefur þá ekkert fylgst með því máli þegar það var til afgreiðslu hér á hinu háa Alþ. í fyrra. Ég var, enda þótt
ég sætti mig við þá aðferð sem við var höfð, mjög gagnrýninn á hana, taldi að fiskigöngur mundu ekki haga sér eftir lagaboði, áleit að við ættum að hafa yfirstjórn hennar miklu lipurlegri en raun ber vitni um, taldi að sú n., sem hafði haft hana til meðferðar, hefði helst unnið það sér til afreka að fara landshornanna á milli og draga sérvisku þar upp úr hverjum hreppsómaga og sveitarþroti. Þannig var viðhorf mitt til þess arna. Ég vil að við getum stjórnað þessu með heimildarlögum, þannig að sérfræðingar hafi leyfi til að segja: Við getum friðað heilu svæðin þegar í stað — og þess sé ekki þörf að breyta lögum vegna smáfiskadráps eða ofníðslu með öðrum hætti. Ég vísa því algerlega frá mér öllum slíkum kenningum um ákveðna línu eftir hringfara, eins og hv. 8. þm. Reykv. drap á.
Ég hef heldur aldrei haldið því fram að við værum að eyðileggja eitt eða neitt upp á framtíðina með því að sækja um of í loðnustofninn með þessum hætti, þótt við bættum einu skipi við. Þetta tal var gersamlega út í hött og mér algerlega óviðkomandi. Ég álít þvert á móti og hef mitt vit úr fiskifræðingum í því efni alfarið, eins og hv. 8. þm. Reykv. hlýtur líka að hafa því að hann hefur ekkert kannað þetta sjálfur auðvitað, að stofninn þoli verulega veiði og aukna frá því sem nú er. Þannig er allt tal í minn garð í þessu sambandi einnig út í hött.
Um þrælsótta gagnvart dönum er sama að segja, allt var það upp í vindinn talað. Ég hafði ekki sneitt að því með neinum hætti að ég óttaðist einhverja samninga, milliríkjasamninga, eins og kom fram hjá hæstv. dómsmrh. Allt mitt mál hefur snúist um þetta, að þetta er í fyrsta skipti síðan lögin um landhelgina voru sett 1922 sem gera á undantekningu og undanþágu í þessu efni. Ég er enginn maður til að sjá fyrir hvort þetta verður alvarlegt fordæmi eða ekki. Það er skoðun mín, þótt menn æði á veggina og blandi og blöndri með málið til og frá í aukaatriðum alls konar, — það er skoðun mín að það geti leitt til óheppilegs fordæmis og ég vil ekki hætta á það með neinu móti. Fyrir því er það að ég snýst gegn þessari heimild, og með öllu þykir mér það óeðlilegt að þessu sé blandað saman við ekki stærra mál en ákvæðið og reglurnar um löndun á loðnu til bræðslu eru.
Þar sem hæstv. sjútvrh. er genginn í salinn vil ég vekja athygli á því að hann svaraði ekki þeirri fsp. sem ég beindi til hans. Ég hafði ekkert verið að tala um það að hinu háa Alþ. bæri að fara eftir einhverjum fyrirskipunum eða kröfum frá stéttarsamtökum eða félögum í landinu. Það hefur mér aldrei dottið í lífandi hug. Ég var ekkert að fara fram á það. Ég spurði einfaldlega — og því svaraði hann ekki — hvort út af þessu máli, þessu litla máli ef á heildina er tekið, væri ástæða til að efna til ófriðar við þessi samtök útvegsins í landinu. Um þetta spurði ég. Ég kalla það lítið af heildinni tekið, þótt það sé vissulega sanngirniskrafa, ef á málið eitt út af fyrir sig er litið, að ungur maður fái að efla sig með því að sækja á þessi mið með nýju skipi o.s.frv., o.s.frv., aukandi útflutningsafurðirnar og atvinnu í landinu og verkefnin fyrir síldarverksmiðjur. En í mínum augum er þetta algert aukaatriði þegar litið er á hitt málið, algert aukaatriði.
Ég spurði bara af kurteisi minni hvort það væri meiningin og hvort það væri ástæða til að efna til ófriðar við samtökin út af ekki stærra atriði en þessu? Og hæstv. sjútvrh. sagði að það væri rétt að láta ganga til atkv. um þetta. Hafði einhverjum dottið annað í hug? Eða hafa kannske nóg atkv. gengið þegar um þetta ef hæstv. ríkisstj. hefur lofað þessu sjálf — eða þykir þeim það, hæstv. ráðh? (Sjútvrh.: Ríkisstj. hefur ekki lofað neinu um þessi mál.) Nú, en auðvitað hljóta að ganga atkv. hér um þetta mál. Enginn gerir öðru skóna, ekki hef ég gert öðru á fæturna.
En ég vil benda á að aðalmálið varðandi bréf LÍÚ er auðvitað ekki að ansa einhverjum kröfum eða hótunum frá því. Aðalmálíð er hvort það er rétt sem þar kemur fram, að með því að gera þessa samþykkt, sem bráðabirgðaákvæðið felur í sér, sé verið að rjúfa samkomulag sem gilt hefur um stjórn á löndun á loðnu til bræðslu. Þetta er auðvitað meginatriðið. Og menn geta svo eftir vild sinni óskapast út í þá frekju sem fram kemur í bréfi Landssambandsins. Ég vil fá svar við því. Er þetta rétt? Er verið með þessari samþykkt að rjúfa samkomulag af opinberri hálfu sem gert hefur verið í þessu efni? Því þarf að svara. Öllu öðru um hótanir í þessu sambandi er auðvitað ekki ansað. En sé samkomulag rofið, sem ég get ekki dæmt um, með þessum hætti, þá er auðvitað ekkert óeðlilegt þótt þeir íhugi að draga sinn fulltrúa út úr þessari samvinnunefnd. Ég get ekki skilið það sem neina ókurteislega hótun. Ég beini því eindregið til hæstv. sjútvrh. að athuga það gaumgæfilega sérstaklega, hvort hér er virkilega um það að ræða að rofið sé samkomulag sem gilt hefur.
Ég vil svo ekki lengja þessar umr. meir, enda hef ég talað þrisvar sinnum sem frsm., en vildi aðeins úr því að mörg verkefni bíða hér úrlausnar, láta þess getið að til þess að tefja ekki frekar fyrir störfum, þá fell ég frá beiðni minni um það að hér fari fram nafnakall þegar að atkvgr. kemur.