20.12.1974
Sameinað þing: 29. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1290 í B-deild Alþingistíðinda. (1106)
1. mál, fjárlög 1975
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessa umr., en ég hét því í sambandi við umr., sem fram fóru á milli mín og hv. 5. þm. Vestf., að gefa skýringar í sambandi við lántökur Hafnabótasjóðs. Með leyfi hæstv. forseta vil ég lesa hér upp í fyrsta lagi bréf frá Tryggingastofnun ríkisins, sem er svo:
„Reykjavík, 12. nóv. 1974.
Á fundi sjóðsins 6. þ. m. var ákveðið að veita Hafnabótasjóði lán að upphæð 35 millj. kr. vegna hafnarframkvæmda. Afgreiðsla lána er háð venjulegum skilyrðum af sjóðsins hálfu um verðtryggingu og fullnaðarskil.
F.h. Atvinnuleysistryggingasjóðs,
Tryggingastofnun ríkisins,
Guðjón Albertsson.“
Við deildum um það, hv. 5. þm. Vestf., hvort þetta hefði verið afgreitt í sept. eða eins og ég sagði í nóv. eða á fyrsta fundi í des. og hér liggur það fyrir. Ég skal láta hv. 5. þm. Vestf. hafa þessar skýringar í hendur, þegar ég fer héðan úr ræðustólnum.
Í öðru lagi hef ég svo frá Framkvæmdastofnun ríkisins bréf sem er svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta, — bæði eru þessi bréf til samgrn.:
„Á fundi sinum 29. maí s.l. samþykkti stjórn Framkvæmdastofnunarinnar áætlun um útlán Framkvæmdasjóðs til fjárfestingarlánasjóða á árinu 1974. Þar með var lán til Hafnabótasjóðs að fjárhæð 75 millj. kr.
Á næsta fundi þar á eftir, þann 11. júní s.l., fjallaði stjórnin um lánveitingar til einstakra sjóða og samþykkti m.a. að veiting væntanlegs láns Framkvæmdasjóðs til Hafnabótasjóðs, að fjárhæð 75 millj. kr., sé háð þeim skilyrðum að vanskil hafnarsjóða, bæjarsjóða vegna hafnarframkvæmda, við Framkvæmdasjóð Íslands og Byggðasjóð verði greidd að fullu af fé þessu.
Í framhaldi af viðræðum samgrh. við Framkvæmdastofnunina samþykkti stjórn stofnunarinnar 9. des. s.l. að Byggðasjóður gæfi eftir helming vanskila hafna hjá Byggðasjóði, að undanskildum vanskilum Akureyrarkaupstaðar, þar sem helmingur yrði lánaður til 10 ára með 8% vöxtum og skuld þessi yrði greidd í íslenskum krónum. Lánstíminn var lengdur í 16 ár. Þessi ákvörðun stjórnar Framkvæmdastofnunar var bundin því skilyrði, að Hafnabótasjóður greiði helming vanskila til Byggðasjóðs, að hálfu á árinu 1974 og að hálfu á árinu 1975 við afgreiðslu lána Framkvæmdasjóðs til Hafnabótasjóðs.“
Ég held að þetta nægi til þess að skýra það, að rétt var með farið, sem ég skýrði hér frá um daginn. Og þá skýrði ég einnig frá því, að samgrn. hefði skrifað fjvn. og þar með gert till. um skiptingu á þessu fé sem hér um ræðir, en eins og sést á þessum bréfum var það ekki framkvæmanlegt fyrr en þetta mál var komið í þann farveg sem hér greinir.
Út af því, sem hv. þm. sagði um Ísafjarðarflugvöllinn, þá lýsti ég því yfir hér við 2. umr. að ég mundi athuga það mál nánar og tel mig hafa staðið við það.
Ég vil enn fremur skýra frá því, að ég hef enn á ný skoðað mál Súðavíkurhafnar og eins og fyrr er þar allt óljóst. Hins vegar er ljóst, að það þarf að gera plan í kringum frystihúsið þar, sem að einhverju leyti snertir höfnina, og í því sambandi gef ég hér fyrirheit um að sjá um 3 millj. kr. greiðslu af láni til hafnarinnar á næsta ári, svo að það þurfi ekki að tefja fyrir því að því máli verði fram komið.
Þetta vona ég, að nægi hv. þm. Því, sem hann kann svo að eiga vantalað við mig, mun ég svara við tækifæri ef ég sé ástæðu til, en ekki taka frekar þátt í þessum umr.