20.12.1974
Sameinað þing: 29. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1309 í B-deild Alþingistíðinda. (1115)

1. mál, fjárlög 1975

Eyjólfur Sigurðsson:

Herra forseti. Ég flutti ásamt tveim þm. öðrum, Jóni Árm. Héðinssyni og Sighvati Björgvinssyni, brtt. við 2. umr. fjárl. á þskj. 172, og þar er í 9 liðum fjallað um málefni fyrst og fremst líknarfélaga. Var þar um að ræða smávægilegar hækkanir til ákveðinna aðila, sem þar eru sundurliðaðar, og átti ég von á því, þar sem hér var í fyrsta lagi um mjög lítil fjárframlög að ræða, þ.e.a.s. litla aukningu, og í öðru lagi mikilsverða málaflokka og stofnanir, að þeir kæmu óbreyttir til baka frá fjvn. án endurskoðunar, flestir þessir liðir, þannig að þessar stofnanir fái áfram þau smánarlegu framlög sem ákveðið er í fjárlfrv. að þær komi til með að hafa, og sumir aðilarnir óbreytt fjárframlag í mörg ár. Hins vegar hafa verið teknir til greina af fjvn. 3 liðir af þeim, sem við fluttum, og vil ég þakka það að þeir skyldu þó komast í till. n., sem lagðar eru fyrir til 3. umr., og sérstaklega þakka fyrir það, að þar kemur inn nýr liður, sem ég lagði mikla áherslu á að kæmist inn í fjárlög, 300 þús. kr. til Foreldrafélags fjölfatlaðra.

En mig langar að rifja hér upp nokkur atriði í sambandi við þá liði, sem ekki fá enn náð fyrir augum fjvn., og reyndar langar mig til þess að vita skýringar á hvernig stendur á því að þessar litlu tölur, sem þarna er um að ræða, eiga svo torvelt með að komast inn á fjárl. með tilliti til þess sem er að gerast nú með þessum háu fjárl. og þeim breyt., mörgum um margar millj. kr., sem koma fram til hækkunar nú við 3. umr.

Við fluttum á þskj. 172 brtt. við 2. umr., m.a. um að barnaheimilið Sólheimar í Grímsnesi fengi 300 þús. kr. framlag, en á fjárl. eru því ætlaðar 65 þús. kr. Það liggur við að maður spyrji: Hvers vegna er verið að halda slíkum lið inn á fjárl., þegar um 65 þús. kr. framlag er að ræða? Ég sagði við 2. umr. að þarna væri um að ræða upphæð sem samsvaraði því sem ein fóstra á slíku heimili hefði í mánaðarlaun. Þetta heimili, barnaheimilið Sólheimar í Grímsnesi, er fyrst og fremst verk einnar konu, sem nú er nýlátin, og hafði hún alla sína tíð og allt sitt líf fórnað sér fyrir málefni þessa heimilis og þau börn sem þar voru. Mér er sagt að vegna láts þessarar konu telji fjvn.- menn, a.m.k. sumir, enga ástæðu til að hækka þetta 65 þús. kr. framlag til heimilisins, vegna þess að það sé óvíst um framtíð þess. Ég vil halda því fram, að einmitt vegna þess, hvað það er mikið vandamál hjá þessu heimili að þessi ágæta kona er látin, þá sé ástæða til þess að auka fjárframlag til heimilisins. Mér er kunnugt um að það er fullur hugur fyrir því að þetta heimili verði rekið áfram og það jafnvel með meiri starfsemi en hingað til. Og það er slæmt til þess að vita, að slík heimili skuli fá litla náð fyrir augum fjárveitingavaldsins.

Í sambandi við önnur heimili, sem falla undir þennan lið þá eru Fávitaheimilinu í Skálatúni ætlaðar 65 þús. kr. Við fórum fram á að þetta framlag yrði hækkað í 300 þús., sem er allt of lítið og raunverulega háðung að maður skyldi ekki fara miklu hærra. En með tilliti til þess ástands, sem nú er, vildum við ekki fara lengra og töldum okkur örugga með að þessu yrði svarað með jáyrði og samþykki fjvn. En svo hefur ekki orðið. Á Fávitaheimilinu í Skálatúni eru 54 sjúklingar, þangað fara daggjöld sem svarar 1400 kr. á dag til hvers sjúklings, og geta allir gert sér grein fyrir hvað slík fjárhæð, 1400 kr. á einstakling, nægir við slíka stofnun, þegar daggjöld í sjúkrahúsum nálgast nú 10 þús. kr. Mér er kunnugt um að þetta nær ekki bara yfir Fávitaheimilið í Skálatúni, Barnaheimilið Sólheima og Tjaldanesheimilið hér í Mosfellssveit, öll þessi heimili þjást mikið af peningaskorti og þau eiga fyrst og fremst undir félög áhugamanna að sækja hvort þau geta starfað áfram eða ekki. Þegar við tölum hér í fjárl. um milljónir á milljónatugi ofan til hinna ýmsu framkvæmda, þá er það hrein háðung af hinu háa Alþ. að þessi félög og þessar stofnanir skuli ekki fá náð fyrir augum fjárveitingavaldsins. Ég vil mælast til þess, að það verði endurskoðað af hv. þm., sérstaklega þeim sem ekki hafa séð ástæðu til þess að hækka þetta í fjvn., og þeim öðrum sem taka þátt í atkvgr. á morgun, að fylgja nú eftir þessum smáu fjárveitingum til þessara aðila.

Ég rakst á viðtal í dagblaðinu Tímanum í morgun við aðstandendur skólaheimilis þroskaheftra barna á Selfossi, og með leyfi forseta langar mig að lesa aðeins nokkrar línur úr þessari grein eða þessari frásögn, sem segir nokkuð um ástand þessara mála í landinu:

„Þótt sú hafi verið stefnan hér á landi eins og í grannlöndum okkar að veita þeim, sem fyrir einhverra hluta sakir mega sin minna í lífsbaráttunni, sívaxandi aðstoð, fer því þó enn fjarri að nóg sé að gert í þeim efnum. Þeir einstaklingar, sem sakir einhvers konar vanmáttar falla ekki inn í það venjulega þjóðfélagskerfi, hafa átt og eiga enn mjög erfitt uppdráttar, þótt svo virðist sem samfélagið sé að verða sér betur meðvitandi um skyldur sínar í þessum efnum. Málefni fjölfatlaðra og þroskaheftra barna hafa verið nokkuð í brennidepli að undanförnu, sérstaklega eftir að foreldrafélög viðkomandi barna hafa verið sett á stofn. Vakin hefur verið athygli á vanda þeirra og jafnframt sýnt fram á að með góðri umönnun og kennslu frá unga aldri má ná mjög góðum árangri við að auka þroska þeirra, svo að þau verði svo sjálfbjarga sem framast má verða.“

Þetta var sagt í þessari grein í Tímanum í morgun. Allt eru þetta staðreyndir um þessi málefni og sýna ljóslega hvernig ástandið er. Það er að vakna nokkur áhugi almennings fyrir þessum málum og kemur hann fram í ýmsu. Ég get sagt sem dæmi um það, að ég var að vissu leyti tengdur ákveðinni fjársöfnun sem fór fram fyrir tveim mánuðum til geðveiks fólks í þessu landi, og það sýndi hvað fólk hefur mikinn áhuga á að leysa þetta mál, að það söfnuðust á einum degi á fjórðu millj. kr. Almenningur er að vakna til áhuga um þessi mál, og þess vegna er hart til þess að vita, ef hið háa Alþ. ætlar að láta það fara fram hjá sér einu sinni enn að sýna þessum samtökum, fólki sem stendur í því að aðstoða þessa sjúklinga, svo mikla lítilsvirðingu að veita þeim sömu upphæð á fjárl. og ætluð er til Dýraverndunarfélags Íslands og Fuglaverndunarfélags Íslands, með allri virðingu fyrir þeim félögum.

Ég sat í hv. fjh: og viðskn. nokkra fundi meðan ég hef setið þessa stuttu þingsetu, nú undanfarnar þrjár vikur, og ég varð vitni að því einu sinni eða tvisvar að milljónahundruð urðu þar að samkomulagi milli einstakra manna og var þar verið að sameina byggðasjónarmið, sérstaklega fulltrúa utan af landi. Ég varð vitni að því að eitt frv. breyttist úr 1 200 millj. í 2 000 millj. kr. Það var happdrættislánaútboð, og kom mér þá til hugar hvort hundruð milljóna yrðu svona fljótt til á þingi eins og þarna varð í sambandi við þetta frv. Með tilliti til slíks verður maður að segja, að það er einkennilegt ef þessir skjólstæðingar okkar, sem eiga að vera skjólstæðingar okkar allra, verða útundan á fjárl. rétt einu sinni.

Ég kom auga á það t.d., þó að ég sé ekki að tala um liði sem ég vildi fá út af fjárl., heldur fyrst og fremst til viðmiðunar, að nú við 3. umr. fjárl. kemur inn nýr liður: Listdansflokkurinn 2 millj. kr. Ég skal ekki segja um það hversu mikils virði þessi dansflokkur er, en ég sagði það hér við 2. umr., að ef það er talið nauðsynlegt að þetta menningarþjóðfélag, sem við státum svo mikið af, hafi listdansflokk og styrki hann með milljónunum, Þjóðleikhús og styrki það með 126 millj., sinfóníuhljómsveit til að styrkja það með 27 millj., þá getum við ekki verið þekkt fyrir það að úthluta þessum stofnunum innan við 100 þús. kr. á fjárl. fyrir heilt ár.

Ég vil þess vegna vonast til þess að við atkvgr. á morgun sýni þm. í verki, að þeir vilja þessu fólki vel, og að það gangi ekki þannig á morgun að það verði bara samþ. þau litlu fjárframlög sem farið er fram á í þessum brtt., heldur hitt, að þessar hugmyndir okkar, sem hér eru reifaðar, verði á næstu mánuðum og framvegis til þess að þm. hugsi meira um þessa þjóðfélagsþegna en þeir hafa gert hingað til og við látum það ekki henda okkur um lengri tíma en verið hefur að geta ekki metið aðstöðu þessa fólks, hversu sorgleg hún er og hversu nauðsynlegt það er að allir vakni til átaka um að koma þessu fólki betur á veg en verið hefur, það týnist ekki, hvorki í máli manna né í framkvæmdum ríkisvaldsins á næstu árum.