20.12.1974
Sameinað þing: 29. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1327 í B-deild Alþingistíðinda. (1121)
1. mál, fjárlög 1975
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Við 2. umr. gerði ég grein fyrir nokkrum atriðum sem ég taldi að leiðrétta yrði í þessu frv. til fjárl. Mér þykir rétt nú að þakka það, sem gert hefur verið, og mun jafnframt drepa á fáein önnur atriði.
Ég lagði áherslu á það að nú yrði að grípa tækifærið og malbika a.m.k. Ísafjarðarflugvöll að hluta eins og lofað hefur verið undanfarin ár. Nú eru tækin þar stödd og líða mun langur tími þar til þau verða þar aftur. Ég fagna því að nú hefur hv. fjvn. tekið inn í heimildagr. heimild til 20 millj. kr. lántöku til þess að framkvæma þetta verk, og ég get fullvissað hv. 5. þm. Vestf. um, að samgrh. hefur allan hug á því að nota þessa heimild. Ég hef rætt málið ítarlega við hann og á því leikur enginn vafi.
Mikið hefur verið rætt um hafnamál Vestfjarða og ekki að ástæðulausu. Þegar áætlun kom fram fyrir fjárlög frá vita- og hafnarmálastjóra var gert ráð fyrir, ef ég man rétt, 44 millj. kr. og var það lægsta framlag, hygg ég, til hafna í flestum landshlutum fyrir utan Reykjavík. Þó er það staðreynd og óumdeilanlegt að óvíða á landinu eru íbúar svo háðir höfnum sem á Vestfjörðum. Auk þess hefur skuttogurum fjölgað þar mikið og aðstaða þeirra mjög víða ákaflega slök. Í meðferð fjvn. hefur tekist að fá þessa fjárveitingu hækkaða úr 44 millj. í 63.6 millj. Einnig það vil ég þakka, þó að ég taki undir það sem hefur komið fram, að ekki er nóg gert. En tekist hefur m.a. að fá inn byrjunarfjárveitingu í stóra framkvæmd á Bíldudal og fjárveitingu til þess að halda áfram nauðsynlegum framkvæmdum í Bolungarvík.
Segja má að deilan standi mest um Súðavík. Ég tek undir það, sem hér hefur verið sagt, að þar þarf að ráðstafa í mikla hafnarframkvæmd, m.a. vegna þess skuttogara sem þangað hefur verið keyptur og hefur ekki þá aðstöðu sem með nokkru móti er viðunandi. Hins vegar olli það mér vonbrigðum á fundi sem við Vestfjarðaþm. áttum með vita- og hafnamálastjóra og yfirverkfræðingi Hafnamálaskrifstofunnar, að þar komu fram allt aðrar skoðanir á hafnargerð í Súðavík en ég hef frá heimamönnum og raunar aðrar en hv. síðasti ræðumaður lýsti hér áðan. Ég ætla ekki að rekja þann skoðanamun, en hann snerist ekki síst um það hvort hafnarframkvæmdir væru nauðsynlegar til þess að unnt væri að ganga frá umhverfi frystihússins eins og reglur krefjast. Það var ljóst að málið lá alls ekki svo vel fyrir hjá Vita- og hafnamálaskrifstofunni að unnt væri að byggja á því. Og mér þykir þetta undarlegt, það segi ég, því að ég hafði einnig þá trú, eins og síðasti hv. ræðumaður, að þetta mál væri frá gengið og útrætt og samþ. á milli heimamanna og Vita- og hafnamálaskrifstofunnar. Mér er vel kunnugt um að það er fyrst og fremst þessi ágreiningur sem hefur valdið því að hæstv. samgrh. hefur ekki treyst sér til að leggja þrýsting á með fjárveitingu til Súðavíkurhafnar. Hann hefur hins vegar heitið því að heimila kaup á efni þannig að framkvæmdir geti hafist af fullum krafti á árinu 1976. Ég efast ekki um að hann mun standa við það. Ég þekki hann vel að því að standa við sín orð. Þetta er að sjálfsögðu ekki nema lítil búbót, en þarna er þó gert ráð fyrir að verja 3 millj. kr. í þessu skyni, en það er sú upphæð sem hv. síðasti ræðumaður leggur til að sett verði í fjárl. Ég sé því ekki ástæðu til að samþ. þá till.
Um hafnamálin almennt vil ég hins vegar segja það að ég hef hvað eftir annað hér á þingi þann stutta tíma sem ég hef verið hér vakið máls á því, að að hafnamálum beri að vinna á annan máta en gert hefur verið. Þar ber að vinna eins og gert er að vegamálum, með í a.m.k. 4 ára áætlun. Þetta er mikilvægast m.a. vegna þess að í höfnum stendur oft þannig á áföngum að framkvæmdir geta orðið minni eitt árið en hið næsta. Og það er nauðsynlegt að heimamenn og þm. fái að sjá og fái að samþ. og ákveða á hvern máta unnið verður að hafnaframkvæmdum yfir lengri tíma. Því vil ég sérstaklega fagna því sem komið hefur fram hjá hæstv. samgrh., að hafnaáætlun mun nú loksins verða lögð fyrir þingið til meðferðar á þessum vetri. Þá þurfum við þm. Vestf. sannarlega að gæta vel þeirra mikilvægu hagsmuna sem þar er um að ræða fyrir Vestfjarðakjördæmi.
Hér var áðan minnst nokkuð á Flugfélagið Erni, og get ég staðfest allt það sem kom fram hjá hv. 8. landsk. þm. þegar hann ræddi um það. Flugfélagið Ernir hefur innt af hendi ómetanlega þjónustu í Vestfjarðakjördæmi eins og ég hygg raunar að hin litlu flugfélög, sem tekið hafa sér aðsetur úti á landi, hafa víðast hvar gert. Það hefur ekki aðeins komið fjölmörgum manninum til læknis þegar aðrar leiðir hafa verið ófærar, heldur hefur það hlaupið undir bagga í hinum ótrúlegustu tilfellum. Það er þegar orðinn nærri ómissandi eða algerlega ómissandi samgöngubót í þessu kjördæmi, þar sem vegir eru svo oft lokaðir um langan tíma og raunar aðrar leiðir fljótfarnari ekki til til að komast þar á milli staða. Það er hins vegar ljóst að þetta flugfélag hefur ekki rekstrargrundvöll eins og er og mun svo vera viðar með hin smáu flugfélög.
Við höfum tveir þm. flutt frv. um breyt. á verðjöfnunarlögum, þar sem við leggjum til að verðjöfnun verði komið á á flugvélabensíni sem er undanskilið nú. Það er að okkar viti mikilvægt skref í þessa átt, en þó hvergi nærri nóg.
Nú skilst mér að svo sé hjá hv. fjvn. að hún hefur ekki skipt því fjármagni sem til sjúkrastyrkja á að verja. Hins vegar hefur sú upphæð verið hækkuð nokkuð. Ég hygg úr 1.6 millj. í 2.5 millj., og ég set mitt traust á það að við skiptingu þessa fjármagns verði þess gætt að þetta litla, en mikilvæga, ómissandi flugfélag fái þá aðstoð sem geri því kleift að halda áfram þeirri þjónustu sem það veitir Vestfjarðakjördæmi. Ég leyfi mér að fullyrða að ef þess verður ekki gætt að hækka allverulega þann styrk sem flugfélagið hefur, þá mun það ekki verða rekið þar lengur.
Við 2. umr. minntist ég töluvert á raforkumálin og get þar tekið undir það sem hv. 3. þm. Reykv. sagði hér í kvöld um mikilvægi þeirra mála. Ég er honum sammála. Það er, eins og ástatt er í dag, ef til vill okkar stærsta mál — e.t.v. samgöngumálin á svipuðu stigi — en vegna orkuskortsins og erfiðleikanna er alveg ljóst að við verðum að leggja þar á höfuðáherslu. Ég vil einnig vekja athygli á því að í málefnasamningi ríkisstj. er þetta einmitt dregið fram og því heitið að á þetta mál verði lögð rík áhersla. Ég taldi fjárveitingu í þessu skyni alls ófullnægjandi og tel það raunar enn, þó að ég fagni því að í meðferð fjvn. hefur þarna töluvert verið bætt um og hafa verið veittar víðtækar heimildir til lántöku í þessu skyni. Ég tel lántökur í sambandi við raforkuframkvæmdir ekki óeðlilegar. Þær spara sannarlega mikinn gjaldeyri, sérstaklega þegar rafmagn er notað til upphitunar, og má vel fjármagna þær framkvæmdir með erlendum lántökum. Mér sýnist hins vegar að fjármagn til vatnsorkurannsókna sé ekki nægjanlegt. Staðreyndin er sú, miðað við þá dýrtíð sem er, að minna fjármagni verður varið á árinu 1975 í þessu skyni en var á árinu 1974, og það tel ég illt. Ég fagna að vísu því að fengist hafa 2 millj. kr. til viðbótar til rannsókna á Vestfjörðum. Ég hef rætt við orkumálastjóra um það mál og hann hefur tjáð mér að með þeirri fjárveitingu, sem þá verður sem er 5.2 millj. kr., muni reynast unnt að kanna línustæðið frá byggðalínunni í Hrútafirði og vestur. Þó að ég vilji ekki draga úr mikilvægi annarra framkvæmda, eins og t.d. kortagerðar af Glámusvæðinu og Drangajökulssvæðinu sem hvort tveggja mun nú verða minna af en ráð var fyrir gert, hygg ég að það sé staðreynd að lína sem þessi er skjótasta lausnin á raforkuvanda Vestfjarða. Ég legg því höfuðáherslu á að þá linu sé hægt að byggja í beinn framhaldi og raunar um leið og byggðalínan er komin norður. Því er ákaflega mikilvægt að línustæðið sé fullrannsakað á næsta sumri. Og eins og ég segi, ég fagna því að með þessari viðbótarfjárveitingu, er mér tjáð af orkumálastjóra, verður þetta unnt.
Ég hefði viljað gera róttækar breytingar á fjárveitingum til orkumála almennt. Hins vegar geri ég mér grein fyrir því að það kostar einnig róttækar breytingar á öðrum liðum fjárlaga og það veður ekki gert á einni kvöldstund. Ég hygg að öðruvísi þurfi að vinna að og þarna þurfi stefnumörkunin að ráða frá upphafi. Mér sýnist að þetta þurfi að gera og sé sjálfsagt. Ég treysti hæstv. orkumálaráðh. til að sjá svo um að við gerð næstu fjárlaga verði þessi yfirlýsta stefna hæstv. ríkisstj. ráðandi.
Að lokum vil ég þakka fjvn. fyrir 3 millj. kr. til landgrunnsrannsókna. Þetta er ekki mikið fé til að rannsaka okkar stóra landgrunn, en ég met það mest að með þessu strikar fjvn. yfir fullyrðingu fjárlagafrv. um að landgrunnsrannsóknum sé lokið. Það hefði verið okkur til háborinnar skammar að láta slíka fullyrðingu standa. Þetta gerir kleift að halda áfram af veikum mætti því sem er verið að gera, kortagerð og öðru, sem er forsenda þess að við getum nýtt okkar landgrunn, getum þekkt okkar landgrunn eins og landið sjálft. En ég fagna hins vegar orðum hv. form, fjvn. Hann hét því að þessi mál yrðu skoðuð betur við gerð næstu fjárlaga.