21.12.1974
Sameinað þing: 30. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1358 í B-deild Alþingistíðinda. (1166)
1. mál, fjárlög 1975
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Eitt af þeim flugfélögum, sem styrkja á með þessari fjárveitingu, er flugfélagið Ernir, eins og hefur komið fram. Það félag varð fyrir miklum skakkaföllum á s.l. sumri, og enn lesum við í blöðunum í morgun að orðið hefur mikill bruni á Ísafirði og það hefur enn orðið fyrir skakkaföllum. Með tilliti til þess sýnist mér að umrædd upphæð, 2.5 millj. kr., sem gert er ráð fyrir, sé ónóg og því segi ég já.