27.01.1975
Sameinað þing: 31. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1364 í B-deild Alþingistíðinda. (1184)
Umræður utan dagskrár
Lúðvík Jósepsson:
Herra forseti. Ég kveð mér hér hljóðs utan dagskrár í tilefni af því að frá því hefur verið skýrt í fréttamiðlum nú að undanförnu að ríkisstj. hafi heimilað íslenskum útgerðarmönnum að taka á leigu norskt síldarbræðsluskip sem geti tekið við loðnu af loðnuveiðiflotanum á þessari vertíð.
Þar sem ég tel alveg ótvírætt að ríkisstj. hafi ekki heimild til að veita slíkt leyfi lögum skv. spyrst ég fyrir um það, hvort ekki sé ætlunin að leggja fram frv. um þetta efni og leita eftir lagalegri staðfestingu á því vilyrði, sem eflaust hefur verið veitt af ríkisstj. til þessara aðila til að taka skipið á leigu.
Ég tel að gildandi lög um þetta efni séu alveg skýr, enda hefur tvívegis komið fyrir í minni ráðherratíð að úrskurður hefur verið felldur um þessi atriði, nákvæmlega hliðstæð, af þeim lögfræðingum sem rn. hefur fyrst og fremst leitað til. Ég tel líka að hér sé um svo mikilsvert atriði að ræða, að það verði að fást alveg skýrt fram á Alþ. hvort komin er upp ný lagatúlkun þess efnis að ráðherra eða ríkisstj. geti veitt erlendum aðilum eða erlendum skipum leyfi til fiskveiða eða til fiskverkunar, en um það fjalla lögin jöfnum höndum, í íslenskri fiskveiðilandhelgi. Það hefur aldrei verið dregið í efa hér á Alþ. að það þyrfti lög í þessum tilfellum öllum. En nú hefur sem sagt verið skýrt frá þessu á þá lund, að helst er að sjá að það sé komin upp ný lagaskýring og ríkisstj. telji sig hafa heimild til að veita þessa undanþágu, en það tel ég að ekki sé.
Það var ekki ætlun mín að ræða hér sérstaklega um þá ráðstöfun að taka þetta skip á leigu. Um það sýnist eflaust sitt hvað hverjum fyrir sig. Ég fyrir mitt leyti tel að hafi ekki verið aðstæður nú til þess að veita leyfi af þessu tagi. Það er augljóst mál að mun minni floti kemur til með að stunda loðnuveiðar á þessari vertíð en á síðustu vertíð, og allt bendir til þess að veiðarnar verði einnig stundaðar miklu skemmri tíma vegna verðlagsmála. En aðalatriðið frá mínu sjónarmiði er þetta, að það er ekki heimilt skv. lögum að veita undanþágu eins og þessa. Þarf því að leita eftir lagalegri staðfestingu. Ef öðru er haldið fram, þá er nauðsynlegt að fá það fram hér á Alþ. að sú túlkun sé nú orðin gildandi að ríkisstj. geti veitt heimild af þessu tagi því að það hefur ekki verið lítið svo á hingað til.
Ég vildi í tilefni af þessu spyrja hæstv. sjútvrh. um það, hvort hann hafi ekki í huga að leggja frv. um þetta mál fyrir Alþ. eða hvort hann telji sig hafa heimild til að veita þessa undanþágu.