27.01.1975
Sameinað þing: 31. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1370 í B-deild Alþingistíðinda. (1187)

Umræður utan dagskrár

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti: Ég sé á því svari sem hæstv. sjútvrh. hefur gefið hér við fsp. minni, að hann vill túlka gildandi lög um þetta efni á annan veg en hingað til hefur verið gert. Það var ljóst á svari hans, að hann vill slá því föstu að það sé heimild að finna í lögum til þess að ríkisstj. geti veitt erlendum skipum leyfi a.m.k. til þess að stunda fiskverkun í íslenskri fiskveiðilandhelgi. En ég benti á að hingað til hefur öðru verið haldið fram, og ég minnist þess að í bæði þau skipti sem ég var ráðh. felldu ráðuneytisstjórar þeir, sem þá höfðu með sjútvrn. að gera, úrskurði um þetta efni og þeir voru á þá lund sem ég greindi hér frá áður, að þetta væri ekki heimilt skv. lögum. Þegar síðan ólögfróðir menn lesa lögin sýnist mér a.m.k. fyrir mitt leyti að þau svari þessu allskýrt og greinilega.

Hæstv. ráðh. minntist á l. nr. 33 frá 1922, sem sérstaklega fjalla um þetta og mest hefur verið vitnað í, og hann reyndi að byggja álit sitt á því að lögin væru fyrst og fremst um fiskveiðar, ekki fiskverkun, enda hétu lögin: „lög um rétt til fiskveiða í landhelgi“. En hæstv. ráðh. hefði mátt lesa lengra í l. til þess að sjá um hvað l. fjalla. Í 3. gr., en svo langt komst hæstv. ráðh. ekki að lesa upp úr l., segir orðrétt á þessa leið, þar sem áður er búið að tilgreina að veiðar erlendra skipa séu ekki heimilar í fiskveiðilandhelginni — í þessari 3. gr. segir enn fremur orðrétt: „Það er bannað erlendum skipum að verka veiði í landhelgi eða á höfnum inni.“ Enda eru mörg dæmi um það, að erlend skip hafi beinlínis hlotið landhelgissekt fyrir að hafa brotið þetta ákvæði. En í þessum l. er um að ræða tvær undanþágur sem varða heimild til þess að víkja frá þessum l., frá meginákvæðum l., og er rétt að lesa þessi undanþáguákvæði bæði í heilu lagi, en hið fyrra er á þessa leið orðrétt:

„Sjútvrh. er heimilt þrátt fyrir bann þessarar gr. að leyfa vinnslu- og verkunarstöðvum að kaupa afla af erlendum veiðiskipum í íslenskum höfnum. Ráðherra skal binda leyfið við ákveðna staði eða landshluta, eftir því sem hagkvæmt þykir. Svo getur ráðherra og bundið leyfið við ákveðnar tegundir fisks eða annars sjávarafla og sett skilyrði um magn, verð og sérstakar löndunarreglur. Í leyfi ber að taka fram, að það veiti eigi erlendum skipum heimild til fiskveiða eða fiskverkunar í landhelgi.“

Þessi heimild hefur ævinlega verið túlkuð þannig og framkvæmd þannig, að það sé heimilt að veita íslenskum verkunarstöðvum leyfi til að kaupa afla af erlendum skipum. Þetta byggist m.a. á því að þegar afli er gerður upptækur eða þegar eitthvert sérstakt óhapp kemur fyrir erlent skip og það þarf að leita hafnar, þá er ráðh. samkv. þessu veitt heimild til að leyfa íslenskum aðila að taka þennan fisk og kaupa hann, en þá verður að taka það fram, að þetta veitir ekki á neinn hátt hinu erlenda skipi leyfi til fiskveiða eða fiskverkunar í landhelgi.

Þetta var önnur heimildin. En hin heimildin, sem er að finna í 9. gr., er orðrétt á þessa leið: „Atvinnumálaráðherra getur veitt leyfi til þess að eigendur síldarolíu- eða síldarmjölsverksmiðju eða slíkra verksmiðja megi nota erlend skip til þess að fiska fyrir verksmiðjur þessar til eigin nota, þrátt fyrir bannið í 2. mgr. 3. gr. Í leyfinu, sem veita má fyrir 2 ár í senn, ber að taka fram að það veiti ekki erlendum skipum heimild til fiskveiða eða fiskverkunar í landhelgi, og enn fremur skal það tekið fram, að leyfið falli burt ef skilyrði þess séu eigi haldin í öllum greinum.“

Þetta eru einu heimildirnar til fráviks sem er að finna í lögunum, og í báðum þessum heimildum er skýrt tekið fram að það verði þrátt fyrir þessi frávik að undirstrika það skýrt að hvorki sé heimilt að veita erlendu skipi veiðileyfi né verkunaraðstöðu í landhelgi. Þetta er skýrt tekið fram. Af þessum ástæðum hafa ráðuneytisstjórarnir í sjútvrn. þegar þeir hafa verið spurðir þegar þessi atvik hafa komið upp, — því að þau hafa oft komið upp, það hafa margar beiðnir legið fyrir um að vikið yrði frá þessu, — þá hafa þeir fellt sinn úrskurð á þá lund, sem ég veit að hv. alþm. kannast við. Það hefur alltaf verið gengið út frá því hér á Alþ. að það væri ekki á valdi ráðh. eða ríkisstj. að víkja frá þessum meginatriðum.

En nú er ljóst að hæstv. sjútvrh. hefur fengið nýja lagatúlkun, og ég tel að hún sé mjög alvarlegs eðlis ef á að halda sér við hana, því að það mun margt á eftir fylgja. Þessi mál eru ekki svo einföld sem mér heyrðist að hv. ræðumaður, sem talaði næst á undan mér, vildi vera láta, sem sagt að við gætum tekið þannig á þessum málum að segja einfaldlega: Við þurfum á þessu að halda, við þurfum á allri vinnu að halda og á öllum afla að halda, við skulum bara veita leyfi. — Við skulum gæta vel að því, að það togast á í þessum efnum tvenns konar og mismunandi hagsmunir hjá þeim sem sjávarútveg stunda. Það hafa komið fram margar beiðnir fiskverkunarstöðva í landinu um að fá heimild til þess að taka fisk af erlendum skipum til vinnslu þegar þessar verkunarstöðvar hafa ekki haft verkefni. Og þegar það lá einnig fyrir að það var hægt að selja hinn verkaða afla, þá voru það verkunarstöðvarnar sem vildu fá fisk af erlendum skipum. En þá komu venjulega sjómennirnir og útgerðarmennirnir og mæltu harðlega á móti þessu, því að með þessu væri verið á óbeinan hátt, að auka samkeppnina við þá á miðunum við landið eða þeim miðum sem þeir gætu auðveldlega stundað. Af þessum ástæðum hafa menn einnig farið varlega í þetta og yfirleitt neitað slíkum beiðnum.

Á hinn bóginn eru auðvitað hagsmunir bæði hjá sjómönnum og í sumum tilfellum útgerðarmönnum að hafa sem allra mest af erlendum vinnslustöðvum, ekki bara eitt skip, heldur ótalmörg skip, svo að þeir þurfi svo að segja ekki að fara til lands. Auðvitað er hægt að greiða þannig fyrir þeim. En við höfum litið þannig á þessi mál að við ætlum okkur, íslendingar sem ein heild, bæði þeir sem verða að vinna á sjónum og hinir sem vinna í landi, að nýta þessar auðlindir fyrir okkur sameiginlega og hleypa hér ekki öðrum að, hvorki gegnum leigumála né eftir öðrum leiðum. Það hefur legið lengi á mikill þrýstingur frá ýmsum erlendum aðilum að komast inn á okkar svæði með sínar verkunarstöðvar eða veiðiskip, og m.a. var hér beiðni fyrir ári frá innlendum aðilum um að þeir vildu taka á leigu afkastamikið erlent skip sem átti að taka að sér að frysta loðnu fyrir Japansmarkað. Þá var talið að þar væri ótakmarkaður markaður og mjög hátt verð í boði. Þessir aðilar sóttu fast á um að fá að taka þetta skip á leigu og stunda þessa framleiðslu hér. Það var auðvelt að reikna út að þetta hefði getað bætt við okkar heildartekjur. En auðvitað snerust jöfnum höndum frystihúsin í landinu gegn þessu og margir aðrir. Og yfirleitt voru þeir, sem um þessi mál hafa hugsað, hræddir við að opna þennan möguleika. Í þessu tilfelli var felldur úrskurður um að ef þetta leyfi ætti að veita, þá yrði það að gerast með lögum frá Alþingi.

Ég vil vænta þess að hæstv. sjútvrh. taki þetta mál að nýju til athugunar, þá hlið málsins sem snýr að því að leggja fram frv. og fá málið afgr. hér á eðlilegan og löglegan hátt, þannig að við höldum okkur áfram við þær lagaskýringar sem við höfum haldið okkur við til þessa. Það er mál út af fyrir sig ef meiri hl. Alþ. vill samþ. slík lög í þessu tilfelli. Úr því geri ég fyrir mitt leyti ekki mikið. Ég er því andvígur samt fyrir mitt leyti, eins og ég gat hér um, og mun þá, þegar að því kemur, gera nánari grein fyrir því og sé ekki ástæðu til að fara að ræða það hér í löngu máli. Ég tel fyrir mitt leyti að það hafi ekki gerst svo mikið í sambandi við vinnsluaðstöðu okkar og veiðar að það sé ástæða til að fara að opna fyrir þennan möguleika, auk þess sem ég hef ekki mikla trú á rekstri þessa skips. Það stafar m.a. af því, að það fór í minni tíð fram rækileg athugun á vinnslumöguleikum þessa skips við íslenskar aðstæður. Og það var einmitt það sem hv. 1. landsk. þm., Jón Árm. Héðinsson, var að minnast á, að þegar Vestmannaeyjagosið kom upp kom fram tilboð um leigu á þessu sama skipi og þá var athugað vegna þeirra aðstæðna, sem þá komu upp, hvort talið væri rétt að taka þetta skip á leigu og opna þannig fyrir meiri möguleika. Niðurstaðan af þessari athugun varð sú að það þótti ekki rétt. Ég var einnig á þeirri skoðun, að það væri ekki rétt að taka skipið á leigu, og voru þó ólíkt meiri og stærri ástæður þá til þess að taka skipið á leigu við þær aðstæður sem þá voru í okkar markaðsmálum með mjöl og lýsi og rekstraraðstöðu alla. Þá var hins vegar horfið að því ráði að gera sérstakt átak í því að koma loðnunni til vinnslu á fjarlægari stöðum.

Því fer vitanlega víðs fjarri, að ég fyrir mitt leyti sé á þeirri skoðun að það eigi að segja við okkar veiðiskip að sigla með aflann norður fyrir land alveg tillitslaust. Ég álít að það sé ekki hægt að gera það nema í miklu sjálfsvali útgerða og skipstjórnarmanna. Það er heldur engin frágangssök að gera það við vissar aðstæður. En miðað við allar kringumstæður nú, þá sýnist mér miklu meiri líkur á því að flotinn, sem stundar veiðarnar, verði svo miklu minni en hann var árið á undan og hætti svo miklu fyrr að þetta geti komið til með að bitna á fleiri verksmiðjum en þeim sem eru á Norðurlandi, ef þetta skip reyndist duga á þann hátt sem þeir gera sér vonir um, sem eru að taka skipið á leigu, en dugi það lítið og verði mislukkað, þá auðvitað breytir það litlu um það atriði.

Ég skal, eins og ég sagði áðan, ekki fara út í langar umr. um hvaða ástæður liggja til þess að ég tel ekki rétt að víkja frá þessu þýðingarmikla meginatriði varðandi landhelgislöggjöf okkar, það sé ekki svo knýjandi tilefni. En ef það er mjög knýjandi, þá kemur vitanlega til greina að samþ. ný lög um frávik frá gildandi lögum. En hitt er mér miklu stærra mál, að fá það skýrt fram og skýrt úr því skorið hvort hér á að taka upp nýjar lagaskýringar í þessum efnum, þannig að það sé hér eftir talið á valdi ráðh. og ríkisstj. að heimila erlendum skipum aðstöðu í íslenskri fiskveiðilandhelgi til þess að stunda þar fiskverkun. Ég tel að það sé alveg tvímælalaust að það sé ekki heimilt og styðst þar jöfnum höndum við úrskurð þekktra lögfræðinga, sem um málið hafa fjallað og áttu að hafa betri aðstöðu til þess en nokkrir aðrir vegna starfa sinna, og eins miðað við þann skilning sem ég get dregið út úr þeim lögum sem fyrir hendi liggja. Og það er þetta atriði sem er miklu stærra en þeir hagsmunaárekstrar sem upp koma hér hjá ýmsum aðilum. Það hefur litið fengið á mig að lesa upp meðmæli einhverra og andmæli einhverra annarra í þessum efnum. Þetta mál er miklu stærra en svo að slíkt eigi að ráða þar úrslitum. Ef við hefðum átt að fara eftir slíkum kröfum á undanförnum árum, þá hefðum við jöfnum höndum verið að veita útlendingum leyfi til veiða og vinnslu. En það hefur ekki verið gert og ég vona að þó að þetta hafi verið ákveðið á þennan hátt, að mínum dómi af misskilningi, þá verði það leiðrétt og haldið við þá skýringu á lögunum sem hefur verið viðurkennd til þessa.