28.01.1975
Sameinað þing: 32. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1387 í B-deild Alþingistíðinda. (1204)

309. mál, þjóðhátíðarmynt

Fyrirspyrjandi (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Ég vona að hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson verði sér úti um álitsgerð Guðjóns Hansens þar sem fjallað er um þetta mál á ákaflega fróðlegan hátt, og ég er viss um að hann sem áhugamaður um lífeyrismál hefur mikið gagn af því plaggi. Ég held að þar sé greint sundur hvernig mál standa hér og hvaða leiðir við getum farið til þess að tryggja jafnrétti þegnanna á þessu sviði.

Það hefur aldrei staðið til að menn hugsi sér að ganga á rétt lífeyrissjóða þeirra sem fyrir eru í landinu. Það stóð í bréfi mínu, sem ég vitnaði til áðan, m.a. að þeir, sem aðild eiga að eldri sjóðum, eigi þess kost að flytjast í hinn nýja sjóð. Það hefur aldrei verið um það að ræða að þessir sjóðir verði gerðir upptækir eða að þeim verði bannað að starfa eða eitthvað þess háttar. Það, sem hins vegar skiptir máli og er algert meginatriði, er að landsmenn allir verða að njóta jafnréttis á sviði ellilífeyrismála, og vandamál þessara sérstöku sjóða, sem komu upp við þessar sérstöku aðstæður, mega ekki tefja þá þróun. Það verða allir landsmenn að búa við jafnrétti á þessu sviði. Það er félagsleg krafa sem ekki verður staðið á móti. Ef menn hins vegar vilja hafa einhverja viðbótarsjóði og ávaxta þá á einhvern hátt, þá er þeim það að sjálfsögðu frjálst. En jafnrétti verður að tryggja. Og málin standa þannig, að þetta mál er búið að kanna til fullkominnar hlítar. Við höfum reynslu af framkvæmdum annarra Norðurlandaþjóða á þessu sviði sem hafa tekist vel. Þótt þær ættu við sömu vandamál að stríða og víð, að þar voru komnir upp frjálsir lífeyrissjóðir, þá tókst þeim að leysa það mál á þann hátt að menn eru sæmilega ánægðir með. Við eigum að geta leyst þetta mál á alveg hliðstæðan hátt. Þess vegna skiptir það öllu máli að við tökum á þessu vandamáli og látum okkur ekki nægja, eins og hv. síðasti ræðumaður sagði, að láta það mjakast áfram. Ég held að nú þurfi að reyna að reka duglega á eftir til þess að þetta réttlætismál komst sem fyrst í höfn.