28.01.1975
Sameinað þing: 33. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1395 í B-deild Alþingistíðinda. (1219)
89. mál, öryggisþjónusta Landssímans
Flm. (Gunnlaugur Finnsson):
Herra forseti. Ég mun fylgja úr hlaði þessari þáltill. okkar sem lögð var fram hér á þinginu í byrjun des. og hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hlutast til um að Landssíminn geri áætlun um öryggisþjónustu, þannig að fullnægt verði ákvæðum 42. gr. l. um heilbrigðisþjónustu, nr. 56 frá 1973. Framkvæmd áætlunarinnar hafi forgang.“
Ég tel ekki ástæðu að hafa um þetta mál langa og ítarlega framsögu, en vil leyfa mér að vísa til grg. og geta þess sérstaklega, að í þessari 42. gr. l. er gert ráð fyrir því í 1. mgr., að rn., þ.e. heilbrrn., hafi samráð við samgrn. og dóms- og kirkjumrn. (vegamálastjóra, Landhelgisgæsluna og flugmálastjóra) um ferðir lækna til eða milli heilsugæslustöðva. Við vitum að vegamálastjóri og Landhelgisgæslan hafa iðulega verið hjálpleg varðandi þessa þjónustu.
Í 2. mgr. þessarar gr. er gert ráð fyrir heimild fyrir heilbrrn. að gerast aðili að rekstri flugvélar eða þyrlu eða semja við flugfélög til þess að annast vissan þátt í heilbrigðisþjónustunni. Það er svo annað mál, sem ekki verður rætt hér, þótt veitt hafi verið árlega nokkurt fé á fjárlögum til styrktar flugfélögum, sem annast sjúkraflug, félögum sem eru staðsett í öllum landshlutum, þótt svo sé nú málum komið, eins og kom fram í umr. fyrir jól, að enginn slíkur aðili annast rekstur sjúkravélar á Vestfjörðum.
En í 3. mgr. þessarar gr. segir svo orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Á sama hátt gerir rn. í samráði við samgrn. áætlun um fjarskipta- og símaþjónustu í héruðum landsins, svo að tryggt sé að landsmenn geti náð til læknis án tafar.“
Svo stór eru þau orð og í dag eru þau í æpandi ósamræmi við staðreyndirnar. Mál þessi hafa verið mjög til umræðu um allt land á liðnu sumri og hausti, ekki síst vegna breytts afgreiðslutíma símstöðvanna, og ýmis bráð sjúkdómstilfelli hafa skerpt þá mynd sem sýnir við hvert öryggisleysi mörg afskekkt byggðarlög búa.
Í þessum umr. hefur komið fram að sá háttur, sem nú er á hafður, er allsendis ófullnægjandi. Ég hygg að flestum hv. þm. sé kunnugt um hvernig þessu er varið víða um landið. Það er gert ráð fyrir að sveitabæir séu tengdir saman svo og svo margir, það séu nokkur númer og fjöldi bæja á hverju númeri og síðan sé utan afgreiðslutíma símstöðvanna mögulegt að hringja neyðarhringingu til stöðvanna. Það er svo mál fyrir sig, hvort hægt er að ætlast til þess að símstöðvarstjórar á þessum stöðum séu allan sólarhringinn bundnir á vakt og hvort hægt er að ætlast til þess að þeir hafi hjá sér inni í sínum svefnherbergjum glymjandi bjöllur allan sólarhringinn. Ég tel að það sé annað fyrirkomulag, sem hægt er að taka upp. En hvað sem um þetta má segja, þá er hitt þó miklu verra, að þær hringingar, sem ætlast er til að gegni neyðarhlutverki, heyrast oft og tíðum ekki vegna þess, hve margir símar eru tengdir saman. Þess vegna tel ég að hægt sé að bæta verulega um þessa þjónustu, og í grg. er bent á leiðir til þess.
Það er í fyrsta lagi að gera athugun á þessu um landið allt og áætlun um hversu margir og ákveðnir sveitabæir fyrst og fremst tengist saman í eitt númer, en þetta númer hafi síðan möguleika til að ná sambandi til heilsugæslustöðva eða hjúkrunarkvenna eða lækna hvenær sem er á sólarhringnum og þá fyrst og fremst hugsað þannig að hægt sé að hagnýta hið sjálfvirka kerfi í landinu, en sjálfvirkt símkerfi er komið í þorp víða um land og nánast með nokkru millibili hringinn í kringum landið. Ég hygg því að það sé spurning meir um skipulag heldur en um fjármögnun hvernig hægt yrði að leysa þetta svo að viðunandi sé. Í annan stað má gera ráð fyrir því að í þeim byggðarlögum, sem mjög eru fjarri slíkum sjálfvirkum stöðvum og þar sem ekki verður komið við beinni linu til einhvers ákveðins kjarna, þar verði staðsettar neyðartalstöðvar þannig að viðkomandi bær, sem tengdur yrði þá ákveðnum hópi bæja eða ákveðinni tölu símtækja, geti í gegnum neyðarbylgju náð sambandi hvenær sem vera skal.
Till. þessi er flutt til þess að herða á um það að þetta ákvæði laganna komi til framkvæmda og að menn geri sér grein fyrir umfangi verkefnisins og síðan í ljósi þess hver hinn raunverulegi kostnaður verður. En síðan verði ákveðin röð verkefnanna og þau látin sitja í fyrirrúmi þar sem þörfin er brýnust.
Ég held að ég hafi ekki um þetta fleiri orð, en leyfi mér að leggja til að þessu máli verði vísað til allshn.