29.01.1975
Neðri deild: 36. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1416 í B-deild Alþingistíðinda. (1240)
133. mál, fjarskipti
Flm. (Magnús Kjartansson):
Hæstv. forseti. Þetta frv. fjallar um að tekin verði upp í lög um fjarskipti ákvæði um það, að ákveða megi í reglugerð að þeir, sem hljóta uppbót á elli- og örorkulífeyri skv. 19. gr. l. um almannatryggingar frá 1971, verði undanþegnir afnotagjöldum fyrir síma.
Þeir aðilar, sem fjallað er um í 19. gr. almannatryggingalaga, eru þeir sem njóta svokallaðrar tekjutryggingar, þ.e.a.s. fólk sem hefur engar tekjur eða sáralitlar tekjur aðrar en greiðslurnar frá almannatryggingum.
Þær þjóðir, sem vilja hafa vandaðar almannatryggingar, hafa kappkostað að reyna að búa þannig að þessu fólki að það búi ekki við skort eða alltof sára þjóðfélagserfiðleika. Og það hefur tíðkast mjög í nágrannalöndum okkar, að auk þess að greiðslur almannatrygginga komi til, þá njóti þetta fólk ýmiss konar fríðinda frá stofnunum eða opinberum aðilum. Þetta á við í nágrannalöndum okkar um útvarp, þetta á við um síma, þetta á við um ýmis ferðalög og ýmsa aðra þjónustu sem ég hirði ekki um að tíunda hér. Við höfum hins vegar gert minna af þessu en margar þjóðir aðrar. Þó var það svo þegar lög um ríkisútvarpið voru hér til athugunar á þingi síðast, að þá kom sú hugmynd upp í menntmn. þessarar d. að taka þar upp hliðstæð ákvæði um að ráðh. væri heimilt að ákveða að þeir, sem fengju uppbót á elli- og örorkulífeyri, yrðu undanþegnir afnotagjöldum fyrir útvarp. Mér er kunnugt um að þessi heimild hefur verið notuð, hins vegar er hún notuð núna í miklu þrengra formi en almannatryggingalögin sjálf eru. Hún hefur ekki tekið mið af þeim breyt. sem gerðar hafa verið á þeim lögum síðan þau voru ákveðin síðast 1963, þannig að í þessari reglugerð er aðeins miðað við þá uppbót sem gert var ráð fyrir 1963. Ég tel að hæstv. menntmrh. ætti að kanna hvort ekki sé ástæða til að breyta reglugerðinni til samræmis við breyt. á l. um almannatryggingar.
Hér er lagt til að alveg hliðstætt ákvæði verði tekið upp í reglugerð um fjarskipti, þ.e.a.s. um síma, að heimilt sé að undanþiggja þessa elli- og örorkulífeyrisþega, sem eru með algerar þurftartekjur, því að greiða afnotagjöld af síma. Ég hygg að öllum sé um það kunnugt, að það er mjög mikil þörf fyrir þetta fólk margt hvert að hafa síma. Þetta fólk býr margt eitt á heimilum sínum — það hefur farið mjög í vöxt — og þarf mjög mikið á síma að halda, bæði til að hafa eðlileg tengsl við umhverfi sitt og einnig í öryggisskyni, því að þetta fólk getur orðið snögglega veikt og þarf þá að komast í samband við aðra með sem minnstum fyrirvara. Hins vegar er mér kunnugt um að þetta eru orðin allerfið útgjöld fyrir marga með þessar lágu tekjur, að þurfa að greiða símagjöldin að fullu. Það hafa m.a. margir hringt í mig og vakið athygli mína á þessu. Við skulum minnast þess að nú nýlega hækkuðu símagjöldin um hvorki meira né minna en 35%, á sama tíma og bætur þessa fólks hafa verið að skerðast af völdum dýrtíðar á undanförnum mánuðum, eins og ég hygg að enginn dragi í efa. Þær bætur, sem aldrað fólk og öryrkjar sem njóta tekjutryggingar fengu vegna kauphækkunar 1. des., voru aðeins um 600 kr. á mánuði. Það hrekkur ekki langt til að greiða þá hækkun sem orðið hefur á símagjöldum einum saman, hvað þá þegar önnur atriði koma þar til.
Hér er lagt á vald ráðh. að ákveða þetta. En fyrir því er að sjálfsögðu hefð, að þegar Alþ. lýsir vilja sínum í slíku efni, þá fer ráðh. eftir því. En um þetta þarf auðvitað að setja sérstakar reglur, til þess að þessi ívilnun komi þeim einum að gagni sem ætlað er að njóta hennar.
Ég vil vænta þess að um þetta mál geti orðið næsta víðtæk samstaða hér á þingi. Ég hygg að menn í flestum flokkum geti verið sammála um að hér sé um sanngirnismál að ræða, og hér er naumast um svo mikið fjárhagsatriði að ræða, að menn þurfi að hika af þeirri ástæðu. Því geri ég ráð fyrir að þetta frv. ætti að geta fengið tiltölulega skjóta afgreiðslu. Þó að málið sé flutt sem breyting á lögum um fjarskipti, tel ég eðlilegt, hæstv. forseti, að málinn verði vísað til heilbr.- og trn., því að þetta er í eðli sínu heilbrigðis- og tryggingamál, þó það sé flutt sem brtt. við þessi lög.