30.01.1975
Neðri deild: 37. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (1250)

124. mál, alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó

Frsm. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó.

Á undanförnum árum hefur orðið mjög ör þróun á sviði siglingatækni, skipum hefur farið fjölgandi og þau stækkað mjög mikið. Þótti því nauðsynlegt að endurskoða reglur sem um þessi efni hafa gilt frá 1965. Hingað til hafa siglingareglurnar byggst á samkomulagi þjóða í milli, án þess að þær væru byggðar á alþjóðasamþykkt. Nú hefur hins vegar í fyrsta sinni verið gerð samþykkt um reglurnar. Því var það, að í okt. 1972 var haldin í London alþjóðaráðstefna til að endurskoða þessar reglur. Þessi samþykkt var undirrituð af fulltrúum 16 landa, þ. á m. af hálfu Íslands með fyrirvara. En síðan hefur samþykkt þessi verið lögð fyrir samgrn. og leggur það til að hún verði staðfest fyrir Íslands hönd.

Athygli n. var vakin á því að í þetta frv. vantaði gildistökugr. Því er lögð fram á þskj. 260 brtt. um þetta efni, þ.e.a.s. að á eftir 4 gr. komi ný gr., sem orðist svo: „lög þessi öðlast þegar gildi.“ Allshn. er sammála um að leggja til, að frv. þetta verði samþ. að öðru leyti óbreytt, en tveir nm. voru fjarverandi.