04.02.1975
Sameinað þing: 36. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1472 í B-deild Alþingistíðinda. (1287)
306. mál, auðæfi á eða í íslenskum hafsbotni
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Það er rétt ábending, að okkur ber að fara okkur rólega og hægt í þessum málum, það sé kannske ekki ástæða til þess að vera fullir bjartsýni, þó að ég sé ekki viss um að bjartsýni sé rétta orðið sem á að nota yfir þetta. En við verðum líka að gera okkur grein fyrir því að atburðirnir á þessum sviðum hafa gerst svo hratt á undanförnum mánuðum og fáum árum, að vera má að okkur sé ekki til setunnar boðið.
Þar til fyrir örfáum árum var talinn lítill sem enginn möguleiki á því, að olía kynni að finnast við Ísland. Það ern aðeins örfá ár síðan faríð var að ræða um þetta sem hugsanlegan möguleika. En nú er farið að skrifa um þetta sem staðreynd, bæði í erlend fagtímarit og í erlend dagblöð, af mönnum sem eru sérfróðir á þessu sviði. Á þeim stutta tíma sem liðið hefur frá því að þessi fsp. var upphaflega lögð fram hér á Alþ. og þangað til hún kom til umr, hefur geysimikið gerst í þessum málum, m.a. að birtar hafa verið í erlendum fagtímaritum spár um það hvenær olíuútflutningur hæfist frá Íslandi, eða réttara sagt hvenær olíuvinnsla hæfist í nágrenni landsins. Þeir atburðir, sem þarna eru að gerast, gerast því mjög hratt vegna orkuástandsins í heiminum, og má vel vera að við höfum ekki mikinn tíma fyrir okkur til þess að hugsa okkur um, hvað við eigum að gera í þessum málum og hvernig við eigum að standa að því, vegna þess að við eigum erfitt um vik með að fá yfirráð yfir þeim auðlindum í hafinu í nágrenni Íslands sem fiskurinn er. Ef olían bætist nú þar ofan á, þá verður baráttan enn erfiðari fyrir okkur.
Ég vil taka það sérstaklega fram í þessu sambandi, að það hefur komið fram í erlendum blöðum að sú rannsóknarstarfsemi, sem stunduð hafi verið af erlendum aðilum í nágrenni Íslands, sé ekki aðeins vísindalegs eðlis. Skýrt er frá því í blaðinu New York Times, að um borð í skipinu Glomar Challenger, sem var hér við land og blaðið segir að hafi fundið olíu undan suðausturströnd Íslands, hafi m.a. verið sérfróðir fulltrúar olíufélaga. Þessir menn eru þarna auðvitað til að gæta hagsmuna sinna félaga, hinna miklu olíuauðhringa. Þeir eru komnir hingað til þess að vera fyrstir á vettvang, til þess að geta fyrstir gripið upp það sem finnast kunni. Það hefur einnig komið fram, að íslendingar hafi ekki fengið niðurstöðurnar af rannsóknum, sem framkvæmdar voru af Glomar Challenger. En olíuauðhringarnir í Bandaríkjunum hafa þessar niðurstöður í höndum.
Ég vil ljúka máli mínu með því að segja ykkur litla sögu, sem mér sagði einn af sérfræðingum okkar í landgrunnsmálum, sem tengd er þessum rannsóknum Glomar Challenger. Hann sagðist hafa hitt einn af þessum vísindamönnum fyrir nokkrum mánuðum og spurt hann að því hvort möguleiki væri fyrir íslendinga að fá eitthvað að vita um hver niðurstaðan af rannsóknunum hafi orðið. Þá hefði erlendi vísindamaðurinn brosað og sagt: „Ef þið hafið efni á því að kaupa vitneskjuna af okkur, annars ekki.“ Olíufélögin hafa efni á því að kaupa þessa vitneskju, íslendingar hafa það ekki. Þess vegna held ég að við ættum að fara okkur hægt í því að veita erlendum aðilum leyfi til rannsókna á jarðlögum á landgrunnssvæðinu í kringum Ísland, nema sjá svo um að þar sé um borð vísindamaður frá okkur sjálfum til þess að fylgjast með hvað þar fer fram og tryggilega sé gengið frá því að íslendingar fái sjálfir að sjá hvað út úr þessum rannsóknum kemur.