04.02.1975
Sameinað þing: 36. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1473 í B-deild Alþingistíðinda. (1288)

313. mál, rannsókn á virkjunarmöguleikum í Skjálfandafljóti

Fyrirspyrjandi (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Á þskj. 95 hef ég leyft mér að bera fram svo hljóðandi fsp. til hæstv. iðnrh.: „Hvað líður rannsókn á virkjunarmöguleikum í Skjálfandafljóti við Íshólsvatn í Bárðardal?“

Það er kunnugra manna mál, að við Íshólsvatn í Bárðardal séu hin álitlegustu skilyrði til vatnsvirkjunar. Tómas Tryggvason jarðfræðingur mun fyrstur hafa bent á þessa möguleika fyrir mörgum árum. Allmiklar athuganir munu hafa farið fram á þessum virkjunarmöguleikum. Hér er um það spurt á hvaða stigi þessar athuganir séu og hver sé niðurstaðan. Allir vita að á Norðurlandi er nú mikill raforkuskortur. Gert er ráð fyrir að Kröfluvirkjun og samtenging við önnur orkusvæði leysi bráðasta vandann í þessu efni. Engu að síður er tímabært að hyggja nú þegar að því, hvaða valkostir séu bestir þegar virkjun á Kröflusvæðinu lýkur.

Mikið hefur verið rætt um byggingu háspennulínu yfir hálendi Íslands milli orkustöðva norðanlands og sunnan. Frá Íshólsvatni að Sigöldu eru um 200 km en frá Íshólsvatni eru um 80 km til Húsavíkur og svipuð vegalengd til Akureyrar. Samtenging stórra orkustöðva á Norður- og Suðurlandi mundi auka mjög öryggi í orkumálum og jafna aðstöðu hinna ýmsu byggðarlaga til að njóta raforkunnar í uppbyggingu atvinnulífs. Líkur benda til að bygging virkjunar við Íshólsvatn gæti farið fram í áföngum og því væri virkjun þar hentug til að mæta vaxandi orkuþörf til almennra heimilisnota, upphitunar og smærri atvinnurekstrar. Aðstaða til vatnsmiðlunar er mikil, miðlunarlón eru í óbyggðum og sjálft er Íshólsvatn mikill vatnsgeymir, 5.2 ferkm. að flatarmáli og meðaldýpt er 19 m.