04.02.1975
Sameinað þing: 36. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1479 í B-deild Alþingistíðinda. (1297)
86. mál, kaup á Nesstofu
Oddur Ólafsson:
Herra forseti. Á tímum þegar sjálfsagt þykir að geyma danskar vöruskemmur, sem byggðar hafa verið hér á landi, er ekki óeðlilegt þó að ýmsum komi til hugar að varðveita Nesstofu. Líklega er bygging Nesstofu upphaf að batanum í okkar heilbrigðisþjónustu. Nesstofa var ekki einungis bústaður fyrsta landlæknis okkar og læknaskóli, heldur dvöldu þar síðan 4 landlæknar og meira en hálfa öld var hún aðsetur landlækna. Einnig er talið, að þar sé e.t.v. okkar fyrsta sjúkrahúsbygging, bygging sem notuð var sem almennt sjúkrahús, því að landlæknirinn hafði þar að jafnaði hjá sér sjúklinga, og mjög líklegt að þar hafi veríð byggt sérstakt hús einmitt í þessum tilgangi. Auk þess var þarna lengst af lyfjabúð. Má því segja að þessi staður eigi sér merka sögu í heilbrigðisþjónustu íslendinga og þess vegna vel til fallið að hann verði geymdur og honum meiri sómi sýndur hér eftir en hingað til.