05.02.1975
Neðri deild: 39. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1512 í B-deild Alþingistíðinda. (1324)
84. mál, útvarpslög
Ingvar Gíslason:
Hæstv. forseti. Ég þarf ekki eins langan tíma til þess að segja það, sem ég vildi segja við þessa umr., eins og sá hv. þm. sem var að ljúka máli sínu. Ég sé þó ástæðu til þess að segja hér fáein orð til þess að lýsa afstöðu minni til þess máls, sem hér liggur fyrir. Og ég vil segja það strax, að ég get ekki lýst stuðningi mínum við það frv. sem hér er til umr., vegna þess að ég tel að sú breyting, sem frv. gerir ráð fyrir, sé ekki tímabær. Meginástæðan til þess að ég segi þetta er sú, að útvarpsl. eru tiltölulega nýsett. Þau voru sett árið 1971 og ekki hefur fengist sú heildarreynsla af þessum lögum að ástæða sé til þess nú að fara að breyta hér nokkru til. Ég held að ef við ætlum að fara að breyta útvarpsl. þá sé ástæða til þess að bíða frekari reynslu. Þetta er meginástæðan til þess að ég get ekki fellt mig við það frv. sem hér liggur fyrir.
Í öðru lagi tel ég það ákaflega vafasamt að miða kosningu í útvarpsráð við hverjar alþingiskosningar, m.a. vegna þess, að það stríðir beinlínis gegn meginsjónarmiðum útvarpslöggjafarinnar um sjálfstæði Ríkisútvarpsins, auk þess sem alþingiskosningar verða í reynd aldrei tímasettar reglubundið. Það geta t.d. orðið tvennar kosningar á ári og það geta orðið kosningar á tveggja eða þriggja ára fresti og allt þar á milli. Hins vegar held ég, að það sé mjög æskilegt að útvarpsráð hafi fast kjörtímabil, hvort sem það er lengra eða skemmra.
Eins og ég minnti á áðan voru gildandi útvarpslög sett fyrir tæpum 4 árum. Ég minnist þess ekki — og var ég þá á þingi — að deilur yrðu um efni frv. þegar það var lagt fram, heldur held ég að ég muni það rétt að alþm. hafi yfirleitt tekið þessu máli mjög vel, talið það til bóta og í samræmi við nútímaskoðun á því er varðar stöðu og starfsemi Ríkisútvarpsins. Í þessu efni réð miklu sú skoðun, að Ríkisútvarpið skuli vera sjálfstæð stofnun, eins og ég held að standi í lögunum, þ.e.a.s. að það yrði sem allra óháðast pólitískum flokkum og sérhagsmunalegum duttlungum sem kunna að koma upp í landinu. Og eins og ég segi, þá leggur gildandi löggjöf um útvarpið mjög mikla áherslu á sjálfstæði Ríkisútvarpsins. Þetta var í rauninni kjarni þess, sem fyrir lá til umr. hér fyrir þremur, fjórum árum, þegar við vorum að ræða þessi mál þá. Og ég fullyrði raunar og minni á það þrátt fyrir þetta, að allt frá því að Ríkisútvarpið var sett á fót í kringum 1930 hefur það sjónarmið ríkt að útvarpið skuli vera óhlutdrægt og það skuli vera óháð hvers konar pólitísku valdi. Þessi regla hefur verið meginstarfsregla Ríkisútvarpsins. Það hefur verið gengið út frá henni sem meginforsendu, og ég held að það hafi iðulega á hverjum tíma verið reynt að leitast við að fylgja þessari reglu.
Eins og ég sagði áðan liggur ekki fyrir nein viðurkennd athugun á því, hvernig núgildandi útvarpslög hafa reynst, þau 3–4 ár sem þau hafa gilt. Ég held því að veigamiklar efnisbreytingar á l. séu ekki tímabærar og eigi þar af leiðandi ekki rétt á sér. Maður heyrir að vísu stundum raddir í þá átt, að pólitísk misbeiting eigi sér stað í útvarpi og sjónvarpi. En það hafa aldrei verið færðar á þetta neinar sönnur, raunar hvorki fyrr eða síðar. Ég hef verið útvarps- og sjónvarpshlustandi og áhorfandi ákaflega lengi, í rauninni allt frá því að Ríkisútvarpið tók til starfa fyrir 45 árum, og ég hef aldrei, hvorki fyrr né síðar getað staðreynt neina pólitíska misnotkun á Ríkisútvarpinu. Hitt kann aftur að vera, að það finnist tilhneigingar til slíkrar misnotkunar hjá einstöku mönnum, ákaflyndum mönnum í hópi stjórnmálamanna eða talsmanna stjórnmálaflokka. Ég get vel trúað því, að það séu til í ýmsum flokkum einstakir menn eða fámennishópar, sem ekki mundu skirrast við að misnota útvarp og sjónvarp í pólitískum tilgangi, ef þeir sæju sér leik á borði. Slíkt kann vel að vera rétt. Það kunna að vera dæmi þessa. En ég veit ekki til þess, að útvarpsráð sem slíkt hafi nokkru sinni verið þannig skipað eða þannig hugsandi að það ástundaði pólitíska misnotkun og önnur gróf brot á anda og bókstaf útvarpslaganna. Þetta á við um núv. útvarpsráð eins og önnur sem setið hafa síðustu 45 ár. Ég held því að það sé ekki mikið unnið við það nú að hreyta útvarpsl. eins og hér er gert ráð fyrir. Ég held að þjóðinni stafi ekki hætta frá þeim einstaklingum, sem nú sitja í útvarpsráði, hvort heldur sem þar er Magnús Þórðarson eða einhver annar, og mín vegna mega þeir allir sitja þarna út kjörtímabil sitt í samræmi við það, sem útvarpslögin ákveða. Hitt er svo annað mál, að það kemur vel til greina almenn athugun á því, hvort rétt sé að hafa kjörtímabil ráða og stjórnarnefnda, sem Alþ. kýs, svo löng sem nú á sér stað. Ég nefni í þessu sambandi bankaráð, stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins og ég vil einnig nefna útvarpsráðið. Ég er þeirrar skoðunar, að engu væri spillt, þótt Alþ. kysi þessar nefndir árlega í stað fjögurra ára. En ef einhverjar breytingar eru taldar nauðsynlegar, þá fyndist mér eðlilegast að kanna málið á viðtækum grundvelli og hafa sem mest samræmi í þessum efnum. Ef það er nauðsynlegt að breyta reglunum um kosningu útvarpsráðs, ætti einnig að breyta ákvæðum um kosningu bankaráða og stjórnar Framkvæmdastofnunar ríkisins og fleiri nefnda sem Alþ. kýs hlutfallskosningu.
Hæstv. forseti. Ég held að ég hafi nú í örstuttu máli gert svo greinilega grein fyrir mínu máli, að ég þurfi ekki að eyða í það öllu meiri tíma. En ég vil vegna þeirrar till., sem fram er komin frá minni hl. menntmn., taka það fram að ég sé ekki ástæðu til að styðja hana. Eins og hér hefur komið fram sé ég enga ástæðu til þess að fara nú að hrófla við útvarpslögunum. Þau hafa aðeins gilt á 4. ár, og það hefur ekkert það fram komið sem gefur tilefni til þess, að ástæða sé til að fara að gera á þessari löggjöf stórfelldar breytingar.