10.02.1975
Efri deild: 41. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1583 í B-deild Alþingistíðinda. (1351)
149. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Eggert G. Þorsteinsson:
Herra forseti. Hæstv. iðnrh. hefur nú gert grein fyrir frv. hæstv. ríkisstj. um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði.
Svo sem fram kom í ræðu hæstv. ráðh og í grg. frv., sem hér er nú til umr., hefur mál þetta átt alllangan aðdraganda og að því er virðist vandlegan undirbúning af Íslands hálfu. Hið fyrsta, sem fram kemur í þessu máli, um hagnýtingu á orkufrekum iðnaði, er skýrsla í upphafi árs 1971 að frumkvæði þáverandi iðnrh., Jóhanns Hafsteins. Þar á eftir, eða 28. sept. það ár, skipar þáv. iðnrh., Magnús Kjartansson, n. til þess, eins og í skipunarbréfi þeirrar n. segir, sbr. grg., sem frv. fylgir, að vera til ráðuneytis um viðræður við erlenda aðila sem áhuga hafa á þátttöku í orkufrekum iðnaði ásamt íslendingum. Fyrsti fundur umræddrar nefndar var svo haldinn ásamt aðstoðarmönnum n. í okt. 1971. Þann veg er upphaf þessa máls, og má öllum ljóst vera, að áhugi íslenskra stjórnvalda hefur frá upphafi verið fyrir hendi um samninga við erlenda aðila, sem áhuga höfðu á þátttöku í orkufrekum iðnaði með okkur. Þessi afstaða hefur ekki greinst á milli þeirra stjórnmálaflokka er fulltrúa eiga á Alþ., svo sem ljóst er af samsetningu þeirra ríkisstj., er afskipti hafa haft af málinu fram til þessa.
Hlutdeild okkar í sjálfum rekstri umræddrar járnblendiverksmiðju kann að vera umdeilanleg frá beinu hagsmunalegu sjónarmiði okkar íslendinga, þ.e. hve mikil þátttaka okkar á að vera í slíkum fyrirtækjum. Þingfl. Alþfl. hefur rætt þetta mál eins ítarlega og kostur hefur verið á eftir þeim gögnum og upplýsingum, sem hægt hefur verið að afla um allan aðdraganda málsins.
Það er niðurstaða flokksins, að hann að lokinni athugun sinni sé efnislega samþykkur aðild íslendinga og þátttöku í umræddri járnblendiverksmiðju í Hvalfirði.
Allar tölur frá upphafi rannsóknar þessa máls og undirbúningi hafa breyst mjög og ávallt til hækkunar frá ári til árs og eru því óáreiðanlegar. En hlutföll sjást þó glöggt þegar grannt er skoðað um sölu — og virkjunarmöguleika.
Ég tel nauðsynlegt að þetta álit komi nú fram við 1. umr. málsins, þrátt fyrir að ég eigi sæti í þeirri þingnefnd, sem málið fær væntanlega til meðferðar, þ.e.a.s. iðnn. Eðlilega hefur Alþfl. fyrirvara um einstök atriði, sem ekki eru þegar nógu skýr, til þessa stóra máls sem er nátengt orkuaukningu og virkjunarmöguleikum hér á landi. Þessi fyrirvari flokksins er ekki minnst varðandi fjármögnun þeirrar hafnargerðar, sem nauðsynlegt er talið að framkvæma vegna járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga í Hvalfirði.
Ég taldi nauðsynlegt að þetta kæmi fram nú þegar, væntanlega fær svo hv. þm. frekari upplýsingar um málið, þegar málið kemur til meðferðar hennar.