10.02.1975
Neðri deild: 40. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1608 í B-deild Alþingistíðinda. (1357)
84. mál, útvarpslög
Forseti (Ingvar Gíslason):
Enn eru margir hv. þm. á mælendaskrá og mér sýnist ekki líklegt, að þessu máli verði lokið á tilsettum fundartíma. Auk þess hefur komið fram mjög ákveðin beiðni um að taka hér fyrir önnur mál, sem einn hv. varaþm. flytur, en hann er að hverfa af þingi á morgun. Mér þykir eðlilegt að hv. þm. fái tækifæri til að tala máli sínu. Ég mun því fresta umr. um 2. dagskrármál, en taka fyrir 4. dagskrármálið.